Morgunblaðið - 11.07.2019, Qupperneq 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Collin Pryor, landsliðsmaður í
körfuknattleik, er hættur hjá bik-
armeisturum Stjörnunnar en hann
hefur spilað með liðinu undanfarin tvö
ár. Collin, sem er 29 ára framherji,
hefur leikið fjóra landsleiki fyrir Ís-
lands hönd en hann lék áður með
Fjölni og með FSu á Selfossi. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins er
óvíst að hann spili með íslensku liði á
komandi tímabili.
Norska knattspyrnufélagið Start
staðfesti í gær að Jóhannes Harð-
arson yrði áfram aðalþjálfari liðsins
sem leikur í B-deildinni. Jóhannes var
aðstoðarþjálfari og tók við til bráða-
birgða þegar Kjetil Rekdal var sagt
upp störfum í apríl.
Nýliðar Þórs á Akureyri í úrvals-
deild karla í körfuknattleik hafa fengið
til sín þriðja erlenda leikmanninn í
sumar. Það er Mantas Virbalas frá
Litháen, sem leikur ýmist sem fram-
herji eða miðherji. Hann hefur spilað í
frönsku D-deildinni undanfarin tvö ár
en áður m.a. með Jena í þýsku B-
deildinni. Hann er 31 árs og 2,02 m á
hæð.
Þórsarar á Akureyri hafa líka styrkt
sig í fótboltanum því hollenski
sóknarmaðurinn Rick ten Vo-
orde, sem hefur leikið með
Víkingi í Reykjavík í hálft
annað ár, er farinn það-
an og genginn til
liðs við 1. deild-
arlið Þórs
á Ak-
ureyri.
Ten Vo-
orde er
28 ára
gamall og skoraði 5
mörk í 26 leikjum með
Víkingi í úrvalsdeildinni.
Eitt
ogannað
FRJÁLSAR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Það telst til tíðinda að Ásdís
Hjálmsdóttir, fremsti kastari
landsins undanfarin ár, mun ekki
vera meðal þátttakenda á Meist-
aramóti Íslands í frjálsum íþróttum
á Laugardalsvelli um helgina. Ás-
dís hefur búið erlendis í mörg ár en
ávallt komið heim til þess að keppa
á meistaramótinu. Hún sleppti
mótinu síðast árið 2010 og hefur
raunar aðeins misst af tveimur
mótum frá árinu 2004.
„Ég flutti til Svíþjóðar í fyrra og
mun keppa fyrir félag hér á sænska
meistaramótinu. Svíarnir eru með
reglur um að það má ekki keppa á
meistaramóti annars lands sama
ár. Annars hefði ég örugglega kom-
ið heim, það hefur verið fastur lið-
ur,“ segir Ásdís í samtali við
Morgunblaðið, en sænska meist-
aramótið er ekki fyrr en um mán-
aðamótin ágúst og september.
Eftir að hafa átt kröftugt undir-
búningstímabil hefur lítið farið fyr-
ir Ásdísi í sumar, en hún varð fyrir
því óláni að meiðast í síðasta upp-
hitunarkastinu á fyrsta móti ársins
í maí og varð að draga sig úr
keppni. Hún var frá í mánuð í kjöl-
farið, en er nú að komast aftur á
fulla ferð og stefnir á heimsmeist-
aramótið í Doha sem fer fram í lok
september.
Bjartsýn að ná lágmarki á HM
„Það er búið að vera pínu erfitt.
Líkamlega er ég í mjög góðu formi,
en ég missti út mánuð þar sem ég
gat ekki tekið kastæfingar svo
tæknin er svolítið að trufla. Ég er
komin til baka núna og búin að
keppa aðeins, kastaði 58,50 metra
um daginn til dæmis. Nú þarf bara
að laga tæknina svo ég geti komið
kraftinum sem ég hef í spjótið og
kastað miklu lengra,“ segir Ásdís.
Íslandsmet Ásdísar er 63,43
metrar. Á morgun eru tvö ár upp á
dag síðan hún setti það á móti í
Finnlandi og sló um leið fyrra met
sitt sem staðið hafði í næstum fimm
ár. Hún þarf að kasta 61,50 metra
fyrir 6. september til þess að ná
lágmarkinu fyrir HM, sem er
óvenju seint í ár, og er bjartsýn á
að ná því.
„Ég hefði verið í vandræðum ef
HM hefði verið á venjulegum tíma,
því þá væri fresturinn til þess að ná
lágmarkinu að renna út á næstu
vikum. Þetta er því eiginlega mjög
mikið lán í óláni, ég hélt það yrði
mjög leiðinlegt að hafa HM svona
seint en það endaði á því að vera
mjög fínt. Nú er bara spurningin að
fínslípa tæknina og ef ég næ að
laga það á þetta ekki að vera neitt
mál,“ segir Ásdís Hjálmsdóttir.
Ásdís ekki
með í fyrsta
sinn í níu ár
Sænskar reglur koma í veg fyrir að
Íslandsmethafinn keppi á heimavelli
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Methafi Ásdís Hjálmsdóttir kastar spjótinu á Meistaramóti Íslands 2018.
Ragnheiður Runólfsdóttir hefur verið ráðin yfirþjálf-
ari S02 í Gautaborg, sem er eitt af stærstu sund-
félögum Svíþjóðar. Blaðamaðurinn Skapti Hall-
grímsson greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
Ragnheiður er ein sigursælasta sundkona Íslands
frá upphafi og Samtök íþróttafréttamanna kusu hana
íþróttamann ársins 1991. Ragnheiður hefur undanfarin
átta ár verið yfirþjálfari sundfélagsins Óðins á Ak-
ureyri. Að sögn Skapta er Ragnheiður í Svíþjóð þessa
dagana þar sem hún er með lið S02 á sænska ung-
lingameistaramótinu en hún tekur síðan formlega
við sem yfirþjálfari félagsins 1. ágúst. vs@mbl.is
Ragnheiður til Gautaborgar
Ragnheiður
Runólfsdóttir
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Silvía og Sunna Björgvinsdætur,
landsliðskonur í íshokkí og marg-
faldir Íslandsmeistarar með
Skautafélagi Akureyrar, hafa tekið
skrefið út í atvinnumennsku og
gengið í raðir Södertälje í Svíþjóð.
Sérstaklega er tekið fram á
heimasíðu félagsins að þrátt fyrir
að þær beri sama föðurnafn séu
þær ekki systur, til þess að rugla
stuðningsmennina síður í ríminu.
Þær hafa lengi spilað saman hjá SA
og urðu bæði Íslands- og deild-
armeistarar síðasta vetur þar sem
liðið vann alla sína leiki.
Silvía, sem er tvítug, var marka-
hæsti leikmaður deildarinnar á síð-
ustu leiktíð með 17 mörk í 11 leikj-
um, auk þess sem hún gaf 19
stoðsendingar. Hún var valin ís-
hokkíkona ársins 2018 af Íshokkí-
sambandinu.
„Ég er mjög spennt fyrir kom-
andi tímabili með Södertälje. Ég
veit að liðið vann sína deild í fyrra
og keppti um sæti í úrvalsdeild-
inni,“ sagði Silvía á heimasíðu fé-
lagsins, en þar kom meðal annars
fram að hún hefði þegar farið á
fimm heimsmeistaramót með ís-
lenska landsliðinu þrátt fyrir að
vera aðeins tvítug.
Sunna er 18 ára gömul og var
með fjórða besta framlagið í deild-
inni á síðustu leiktíð með níu mörk
og fjórar stoðsendingar. Hún segist
vera sterkur leikstjórnandi og nái
vel saman við Silvíu á ísnum. „Ég
hlakka til að spila í sterkari deild
sem mun gera mig að betri leik-
manni og hjálpa mér að þroskast
sem einstaklingur,“ sagði Sunna á
heimasíðu félagsins.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sigursælar Silvía Björgvinsdóttir og Sunna Björgvinsdóttir hafa unnið
marga meistaratitla með Skautafélagi Akureyrar.
Silvía og Sunna
til Södertälje