Morgunblaðið - 11.07.2019, Page 61

Morgunblaðið - 11.07.2019, Page 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL FRISLAND 1941 Hinir svokölluðu „granna- slagir“ í íþróttum draga oft að sér talsverða athygli. Handbolta- leikir Hauka og FH eru jafnan með best sóttu viðburðum á hverjum vetri og um síðustu helgi urðu um 2.500 Kópa- vogsbúar vitni að óvæntum sigri HK á Breiðabliki í næststærstu borg landsins. Í kvöld er einn slíkur á dag- skránni austur á Reyðarfirði. Þar er mitt gamla félag, Leiknir á Fá- skrúðsfirði, með sinn heimavöll, í Fjarðabyggðarhöllinni, og tekur á móti nágrönnum sínum í liði Fjarðabyggðar. Hér á árum áður spiluðum við Leiknismenn fullt af slíkum grannaleikjum, sem gátu meðal annars verið við Val á Reyðar- firði, Austra á Eskifirði eða Þrótt í Neskaupstað. Nú eru þessi þrjú félög sam- einuð í einu liði, Fjarðabyggð, og Leiknir tilheyrir strangt tiltekið líka samnefndu byggðarlagi því Fáskrúðsfjörður er hluti af Fjarðabyggð og er fámennari en hvert hinna þriggja! En mínir menn hafa haldið sjálfstæði sínu, spila stoltir undir Leiknismerkinu og mæta til leiks sem topplið 2. deildar. Fjarða- byggð er í fimmta sæti, fimm stigum neðar. Margt gekk á fyrir austan í „denn“. Ég man eftir rauðu spjaldi sem var rifið í snepla, kjaftforum áhorfendum og mörgum skemmtilegum and- stæðingum. Kannski það verði einhvern tíma skráð á bók! Íþróttadeild Morgunblaðsins mun eiga fulltrúa á leiknum. Hann ók reyndar austur til að fara á Eistnaflug en ætlar að líka að upplifa austfirskan granna- slag í fyrsta sinn. Þetta tvennt passar afskaplega vel saman. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is EVRÓPULEIKIR Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Breiðablik, KR og Stjarnan verða öll í eldlínunni í dag og í kvöld þegar lið- in spila fyrri leiki sína í 1. umferð í undankeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Breiðablik og Stjarnan byrja einvígi sín við mótherja frá Liechtenstein og Eistlandi á heima- velli og ættu að eiga ágæta mögu- leika á því að komast áfram í næstu umferð, miðað við umfjöllun Morgunblaðsins sem hér á eftir fylgir um andstæðinga. KR-ingar, sem sitja í efsta sæti deildarinnar hér heima, byrja hins vegar á afar erfiðum útivelli í Nor- egi. Þar mætast tvö topplið, því heimamenn í Molde eru í efsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 30 stig eftir 15 leiki og freista þess að vinna sinn fyrsta meistaratitil í fimm ár. Óhætt er að segja að leiðin sem Vesturbæingar þurfa að fara til þess að komast áfram í næstu umferð er nokkuð strembnari en sú sem bíður Blika og Stjörnunnar, þó hún sé að sjálfsögðu heldur ekki að fullu greið. Allir andstæðingarnir þrír eiga það sameiginlegt að hafa aldrei áður mætt íslensku liði í Evrópukeppni, þó þau hafi öll langa sögu í slíkum keppnum. Árangurinn er þó ansi misjafn. Lítt reyndur eftirmaður Solskjær hefur slegið í gegn KR-ingar mæta Molde ytra klukk- an 17 í dag að íslenskum tíma, en það sem hefur helst vakið athygli varð- andi gott gengi Molde í ár er að þjálf- arinn Erling Moe er á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari í efstu deild. Eftir að Manchester United sótti Ole Gunnar Solskjær í heimahagana var leitað til Moe til bráðabirgða, en hon- um svo gefið traust með nýjum samningi í apríl til að halda áfram eftir sterka byrjun á tímabilinu. Auk þess að vera í efsta sæti er Molde svo með markahæsta leik- mann úrvalsdeildarinnar í sínum röðum, Ohi Omoijuanfo, sem hefur skorað 10 mörk í 15 leikjum. Hann skoraði mikið fyrir yngri landslið Noregs og Lars Lagerbäck hefur notað hann í einum leik í A- landsliðinu. Þá er liðið með marga reynslumikla menn, til að mynda miðvörðinn Vegard Forren og miðju- manninn Mattias Moström, sem báð- ir hafa spilað á fjórða hundrað leikja fyrir Molde. Molde hefur, með nokkrum undantekningum, verið fastagestur í undankeppni Meistara- og Evrópu- deildar síðustu ár. Liðið hefur tví- vegis komist í riðlakeppni Evrópu- deildarinnar á undanförnum árum, síðast veturinn 2015-16. Molde komst þá upp úr riðlinum og í 32-liða úrslit, en tapaði þar fyrir Sevilla sem svo vann keppnina. Þremur árum áð- ur, veturinn 2012-13, fór liðið einnig í riðlakeppnina. Í fyrra var liðið svo aðeins einu marki frá því að komast í riðlakeppni eftir umspil við Zenit frá Pétursborg. Það er nokkur Íslendingahefð í Molde eins og víðar í Noregi, en alls hafa átta Íslendingar spilað með lið- inu. Bjarki Gunnlaugsson varð þar fyrstur árið 1997 og síðar fylgdu Bjarni Þorsteinsson, Andri Sigþórs- son, Ólafur Stígsson, Marel Bald- vinsson, Björn Bergmann Sigurð- arson og Óttar Magnús Karlsson. Þá spilaði Eiður Smári Guðjohnsen þar sína síðustu leiki á ferlinum 2016. 47-faldir bikarmeistarar Tveir úr Breiðabliki þekkja and- stæðinginn sem mætir á Kópavogs- völl klukkan 20 í kvöld betur en margir. Markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson og aðstoðarþjálfarinn Guðmundur Steinarsson léku með liði Vaduz frá Liechtenstein í nokkra mánuði árið 2009. Það hjálpar þó lítið í leiknum, en Blikar ættu að eiga nokkuð góða möguleika í einvíginu. Engin deildakeppni er í Liechten- stein og liðin þar í landi leika í deilda- keppninni í Sviss. Þau spila hins veg- ar innbyrðis um bikarmeistaratitil heima fyrir og sigurliðið fær sæti í Evrópukeppni fyrir hönd þessa smá- ríkis. Óhætt er að segja að Vaduz sé þar í sérflokki, en liðið hefur unnið bikarkeppnina 47 sinnum. Næsta lið á eftir er með 11 titla. Vaduz hefur tekið þátt í Evrópu- keppni nú á hverju ári í 23 ár, ef frá er talið árið 2012. Þá hafði liðið tapað úrslitaleik bikarsins í fyrsta sinn í 14 ár, sem var saga til næsta bæjar. Það ár, 2012, mætti íslenskt lið einmitt liði frá Liechtenstein í fyrsta sinn í Evrópukeppni og vann FH við- ureignina við Eschen/Mauren sam- anlagt 3:1. Þrátt fyrir að vera þar fastagestur hefur Vaduz ekki valdið liðum í álf- unni teljandi vandræðum í Evrópu- keppnum hingað til. Liðið hefur þó komist í aðra umferð síðustu fimm ár og alla leið í þá þriðju árið 2015. Af 26 leikmönnum í aðalliði Vaduz eru 17 útlendingar, þar af sjö Svisslend- ingar, en það þykir tíðindum sæta að aðeins þrír leikmenn liðsins voru í síðasta landsliðshópi Helga Kolviðs- sonar hjá Liechtenstein. Vaduz féll úr efstu deild í Sviss fyrir tveimur árum og hafnaði í sjötta sæti í B-deildinni á síðustu leiktíð. Önnur lið frá Liechtenstein eru enn neðar í deildakeppninni í Sviss. Tímabilið í ár er ekki hafið og því er leikurinn á Kópavogsvelli í kvöld fyrsti mótsleikur liðsins á tímabilinu. Stjarnan fær aftur Eista Annað árið í röð mæta Stjörnu- menn liði frá Eistlandi í fyrstu um- ferð undankeppni Evrópudeild- arinnar. Eftir að hafa slegið Nömme Kalju úr leik í fyrra, 3:1 samanlagt, kemur Levadia Tallinn í heimsókn í Garðabæinn í fyrri leik liðanna klukkan 20 í kvöld. Ef miðað er við mótherjann í fyrra má ætla að Stjarnan sé að mæta svipuðu liði. Nömme Kalju varð eist- neskur meistari í haust eftir að Stjarnan sló á Evrópudraum liðsins og lið Levadia hafnaði í öðru sæti. Levadia hefur ekki orðið meistari síðan 2014, en er engu að síður næst- sigursælasta lið Eistlands. Á síðustu tveimur áratugum hefur liðið unnið níu meistaratitla, níu bikarmeist- aratitla, fleiri en nokkurt annað, og hafnað átta sinnum í öðru sæti. Þrátt fyrir að ganga vel heima fyr- ir hefur Levadia ekki riðið feitum hesti frá þátttöku sinni í Evrópu- keppnum. Liðið hefur tekið þátt á hverju ári frá aldamótum, en aldrei komist lengra en í 2. umferð hvort sem er í Meistara- eða Evrópudeild. Í fyrra datt liðið út í fyrstu umferð fyrir írska liðinu Dundalk, sem sló FH út í forkeppni Meistaradeild- arinnar fyrir þremur árum. Levadia er að mestu skipað heima- mönnum og tveir leikmenn voru í síðasta landsliðshópi Eista. Fjórir erlendir leikmenn frá Brasilíu, Ka- merún, Rússlandi og Úkraínu hafa hins vegar samanlagt skorað rúm- lega helming marka liðsins í deild- inni í ár. Fyrirliðinn, hinn 35 ára gamli Dmitri Kruglov, á að baki 114 leiki fyrir Eista og er reynslumesti maðurinn í hópnum. Liðið kemur hingað til lands, nýbúið að tapa toppslag á heimavelli og missti þar með lið Flora fimm stigum á undan sér í deildinni. Þetta var fyrsta tap Levadia í níu leikjum, en síðast hafði liðið tapað í byrjun maí. KR-liðið á erfiðari leið fyrir höndum en hin tvö  Breiðablik og Stjarnan eru líklegri til að komast áfram í Evrópudeildinni Morgunblaði/Arnþór Birkisson Evrópudeildin Martin Rauschenberg, Höskuldur Gunnlaugsson, Alex Þór Hauksson og Thomas Mikkelsen verða á ferðinni með Stjörnunni og Breiðabliki í kvöld en leikirnir í Garðabæ og Kópavogi hefjast báðir klukkan 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.