Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 62
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
KRÍA/KJALAR Hybrid jakki
kr. 18.990.-
icewear.is
Pepsi Max-deild kvenna
Þór/KA – HK/Víkingur............................ 6:0
Staðan:
Valur 9 8 1 0 33:7 25
Breiðablik 9 8 1 0 27:7 25
Þór/KA 9 5 2 2 19:13 17
Selfoss 9 4 1 4 9:13 13
Stjarnan 9 3 1 5 5:14 10
ÍBV 8 3 0 5 13:12 9
KR 9 2 1 6 8:18 7
Fylkir 8 2 1 5 7:21 7
Keflavík 8 2 0 6 14:17 6
HK/Víkingur 8 2 0 6 5:18 6
Inkasso-deild kvenna
Augnablik – FH........................................ 0:1
Staðan:
FH 8 6 1 1 21:9 19
Þróttur R. 7 5 0 2 23:6 15
Tindastóll 7 4 0 3 19:17 12
ÍA 6 3 2 1 8:5 11
Grindavík 7 3 2 2 11:9 11
Afturelding 7 3 1 3 9:9 10
Augnablik 7 3 0 4 6:7 9
Fjölnir 7 2 2 3 10:13 8
Haukar 7 2 0 5 8:9 6
ÍR 7 0 0 7 2:33 0
3. deild karla
Sindri – Vængir Júpíters ......................... 4:5
KF – Einherji ........................................... 1:1
Þremur leikjum var ekki lokið þegar
blaðið fór í prentun.
Meistaradeild karla
1. umferð, fyrri leikir:
BATE Borisov – Piast Gliwice............... 1:1
Willum Þór Willumsson sat á vara-
mannabekk BATE allan tímann.
Partizani Tirana – Qarabag..................... 0:0
Sheriff Tiraspol – Saburtalo Tbilisi ........ 0:3
Ferencváros – Ludogorets Razgrad ...... 2:1
Slovan Bratislava – Sutjeska Niksic ...... 1:1
Dundalk – Riga......................................... 0:0
Linfield – Rosenborg ............................... 0:2
Valur – Maribor........................................ 0:3
Evrópudeild karla
1. umferð, fyrri leikur:
Jeunesse Esch – Tobol Kostanay ........... 0:0
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Evrópudeild UEFA, fyrri leikir:
Samsung-völlur: Stjarnan – Levadia....... 20
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Vaduz ....... 20
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Extra-völlur: Fjölnir – Keflavík.......... 19.15
Grenivíkurvöllur: Magni – Þór............ 19.15
Ásvellir: Haukar – Grótta.................... 19.15
Rafholtsv.: Njarðvík – Víkingur Ó...... 19.15
Framvöllur: Fram – Leiknir R ........... 19.15
Varmá: Afturelding – Þróttur R ......... 19.15
2. deild karla:
Jáverkvöllur: Selfoss – Kári ................ 19.15
Fjarð.höll: Leiknir F. – Fjarðabyggð. 19.15
3. deild karla:
Valsvöllur: KH – Höttur/Huginn............. 20
Í KVÖLD!
Hársbreidd frá jöfnunarmarki
Valsmenn færðu sig framar á
völlinn í síðari hálfleik og freistuðu
þess að jafna metin. Ólafur Karl
Finsen komst ansi nálægt því að
skora þegar hann skallaði í átt að
marki eftir skemmtilega útfærða
hornspyrnu á 52. mínútu en aðeins
vantaði nokkra sentímetra upp á að
boltinn færi allur yfir línuna. Piric
markvörður náði að halda boltanum
eins naumlega utan hennar og það
gat orðið.
Aftur refsuðu Slóvenarnir
grimmilega og nokkrum mínútum
síðar skoruðu Slóvenarnir annað
mark leiksins, Dino Hotic eftir frá-
bært samspil, 2:0, og eftir það var
allur vindur úr Valsliðinu. Leik-
menn Vals virtust algjörlega vera
búnir að leggja árar í bát og leik-
menn Maribor gengu á lagið og
gerðu út um einvígið á 85. mínútu
með marki úr vítaspyrnu. Rok Kro-
naveter skoraði úr henni, 3:0. Þegar
allt kemur til alls voru Slóvenarnir
einfaldlega sterkari á öllum sviðum
leiksins og áttu sigurinn fyllilega
skilið. Þeir virðast eiga nokkuð
þægilegt verkefni fyrir höndum
næsta miðvikudag þegar Valsmenn
heimsækja þá til Maribor.
Valsmenn á leiðinni til
Búdapest eða Búlgaríu
Eiga nær enga möguleika eftir skell gegn góðu liði Maribor á Hlíðarenda í gær
Morgunblaðið/Hari
Hlíðarendi Spiro Pericic, sem skoraði fyrsta markið, og Patrick Pedersen, framherji Vals, í baráttu um boltann.
Á HLÍÐARENDA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valsmenn geta farið að horfa til 2.
umferðar Evrópudeildarinnar í fót-
bolta því eftir skell á heimavelli
gegn slóvensku meisturunum Mari-
bor, 0:3, á Hlíðarenda í gærkvöld
eru möguleikar þeirra á að fara
lengra í Meistaradeildinni nánast
að engu orðnir.
Í Evrópudeildinni myndu þeir þá
mæta tapliðinu úr einvígi Ferencv-
áros frá Ungverjalandi eða Lu-
dogorets Razgrad frá Búlgaríu en
Ferencváros vann fyrri leikinn í
gær á sínum heimavelli, 2:1.
Valsmenn spiluðu fyrri hálfleik-
inn af mikilli skynsemi og voru í
raun óheppnir að vera undir í hálf-
leik. Valsarar lágu vel til baka og
leyfðu Slóvenunum að vera með
boltann. Leikmönnum Maribor
gekk afar illa að finna opnanir á
þéttri vörn Valsara og í þau fáu
skipti sem Slóvenarnir komust upp
að endamörkum Valsliðiðsins klikk-
aði fyrirgjöfin og Valsmenn voru
fljótir að koma boltanum frá marki.
Sofnuðu í lok fyrri hálfleiks
Sóknarleikur Vals var ekki í há-
vegum hafður enda varðist liðið aft-
arlega og Patrick Pedersen var af-
ar einmana í fremstu víglínu. Samt
sem áður fengu Valsmenn tvö fín
tækifæri til að skora en í heild var
of langt á milli sóknar og varnar og
liðinu gekk erfiðlega að spila bolt-
anum upp völlinn. Liðið sofnaði
hins vegar illa á verðinum í nokkr-
ar sekúndur undir lok fyrri hálf-
leiks og Slóvenarnir refsuðu
grimmilega. Rok Kronaveter átti
frábæra aukaspyrnu frá vinstri
kantinum og í teignum var króat-
íski miðvörðurinn Spiro Pericic
grimmastur og skallaði boltann nið-
ur í vinstra hornið.
0:1 Spiro Pericic 42.
0:2 Dino Hotic 59.
0:3 Rok Kronaveter 86.(v)
I Gul spjöldHaukur Páll (Val), Cretu
(Maribor).
Valur: (4-3-3) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Sebastian Hedl-
und, Eiður Aron Sigurbjörnsson,
Bjarni Ólafur Eiríksson. Miðja:
Andri Adolphsson (Birnir Snær
Ingason 82.), Lasse Petry (Einar
Karl Ingvarsson 77.), Kristinn Freyr
VALUR – MARIBOR 0:3
Sigurðsson, Haukur Páll Sigurðs-
son, Sigurður Egill Lárusson (Kaj
Leo i Bartalsstovu 75.) Sókn: Pat-
rick Pedersen, Ólafur Karl Finsen.
Maribor: (4-3-3) Mark: Kenan Pi-
ric. Vörn: Martin Milec, Sasa Ivko-
vic, Spiro Pericic, Mitja Viler. Miðja:
Alexandru Cretu, Rok Kronaveter
(Jasmin Mesanovic 88.), Blaz Vrho-
vec. Sókn: Dino Hotic (Martin
Kramaric 82.), Marcos Tavares
(Rudi Pozeg 75.), Andrej Kotnik.
Dómari: Krzysztof Jakubik, Pól-
landi.
Áhorfendur: 1.201.
Peter Bronson, 47 ára gamall Bandaríkjamaður,
hefur verið ráðinn þjálfari sameiginlegs kvenna-
liðs Skautafélags Reykjavíkur og Fjölnis-
Bjarnarins í íshokkíi fyrir næsta keppnistímabil.
Bronson er fjölhæfur þjálfari því hann hefur
starfað sem golfþjálfari hjá Golfklúbbi Mosfells-
bæjar undanfarin tvö ár. Samhliða golfinu á hann
að baki feril sem keppnismaður í íshokkíi í Pól-
landi, Þýskalandi og Bandaríkjunum, ásamt því
að þjálfa en Bronson er vottaður þjálfari frá
bandaríska íshokkísambandinu.
Hann var kynntur til sögunnar í gær og um leið
var afhjúpað nýtt einkennismerki, litur og bún-
ingar Reykjavíkurliðsins en það er hluti af átaki sem nú er í gangi til að
stórefla kvennaíshokkí á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum, eins og segir
í tilkynningu frá liðinu. vs@mbl.is
Bronson þjálfar sameinað lið
Reykjavíkurfélaganna
Fjölhæfur Peter Bronson
þjálfar íshokkí og golf.