Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 63

Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 63
ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn í sumar EM U18 kvenna B-keppni í Norður-Makedóníu: Búlgaría – Ísland .................................. 75:68  Ísland vann einn leik af fjórum í riðlinum, endaði í fjórða sæti af fimm liðum og fer í keppni um sæti níu til sextán.   Belgíski knattspyrnumaðurinn Di- vock Origi skrifaði í gær undir nýjan langtímasamning við Evrópumeistara Liverpool. Origi er 24 ára og hefur ver- ið í röðum Liverpool í fimm ár en virt- ist eiga litla framtíð þar þangað til hann gerði mikilvæg mörk á loka- spretti síðasta tímabils, þar á meðal tvö gegn Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar og eitt í úrslita- leiknum gegn Tottenham.  Kvennalið ÍBV og Fylkis bættu við sig erlendum knattspyrnukonum í gær. ÍBV fékk til sín bandarískan varn- armann, Mckenzie Grossman, sem kemur frá Västerås í sænsku C- deildinni og Fylkir fékk skoskan varn- armann, Amy Strath, sem hefur leikið með bandarísku háskólaliði und- anfarin ár.  Keflvíkingar, sem leika í 1. deild karla í knattspyrnu, fengu í gær lán- aðan framherjann Þorra Má Þórisson frá KA. Þorri sló í gegn með Dalvík/ Reyni í 3. deildinni í fyrra og hefur komið við sögu í tveimur leikjum með KA í úrvalsdeildinni í sumar.  Ítalski knattspyrnumaðurinn Dani- ele de Rossi hefur lagt skóna á hill- una, samkvæmt ítölskum fjölmiðlum. Hann er 35 ára og lék 615 leiki með Roma, sínu eina félagi, og spilaði 117 landsleiki fyrir Ítalíu. Eitt ogannað asta liði landsins á erfiðum útivelli en liðið hefur einungis skorað 5 mörk í sumar og þarf sárlega á mörkum að halda. Sólveig Jóhann- esdóttir Larsen er komin til liðsins frá Breiðabliki á láni og HK/ Víkingar geta svo sannarlega nýtt krafta hennar. Hún byrjaði leikinn á kantinum en spilaði sem fremsti maður undir lokin. Það er gríðarlega sterkt fyrir Þór/ KA sem skoraði ekki í seinasta leik gegn Stjörnunni að bæta við mörk- um á töfluna. En 5 leikmenn skiptu á milli sín mörkunum 6 sem er jákvætt fyrir liðið. Stephany Mayor skoraði tvö, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Lára Kristín Pedersen, Heiða Ragney Viðarsdóttir og Andrea Mist Páls- dóttir eitt hver. Bæði lið eiga mikilvæga leiki fram undan. Þór/KA tekur á móti Vals- konum á heimavelli á mánudag í leik þar sem liðið getur reynt að stytta bilið í toppliðin. HK/Víkingur mætir KR-ingum á þriðjudag í sannkölluðum sex stiga leik. Liðið hefur því tækifæri til að bæta upp fyrir slæmt tap í gær. Markaveisla á Þórsvellinum  Sex mörk Þórs/KA gegn HK/Víkingi Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Drjúg Andrea Mist Pálsdóttir skoraði eitt mark og lagði annað upp. Á AKUREYRI Baldvin Kári Magnússon sport@mbl.is Þór/KA valtaði yfir lið HK/Víkings í leik í 9. umferð Pepsi Max-deildar kvenna sem fram fór á Þórsvelli í gær, 6:0. Leikurinn var einstefna á mark gestanna frá upphafi til enda. Sóknarleikur Þórs/KA gekk frá- bærlega en varnarleikur HK/ Víkings var ekki boðlegur liði sem ætlar sér að vera í efstu deild kvenna á næsta ári. Leikmenn Þórs/ KA komust mjög oft inn fyrir vörn gestanna með einföldum sendingum og hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk. Stephany Mayor kom liðinu yfir snemma leiks og þá var eins og allur vindur væri úr liði gestanna. Fleiri mörk fylgdu frá heimakonum í kjölfarið. Það er ekki einungis varn- arleikurinn sem Þórhallur Víkings- son, þjálfari HK/Víkings þarf að hafa áhyggjur af en sóknarleikurinn var ekki sýnilegur í gær. Vissulega þarf að taka inn í reikninginn að gestirnir voru að mæta einu sterk- Enska knattspyrnukonan Shameeka Fishley er komin til Íslands þriðja árið í röð og er gengin til liðs við Stjörnuna. Hún kemur þar í staðinn fyrir mexíkóska framherjann Rene Cuéllar sem náði sér ekki á strik með Garðabæjarliðinu og er farin heim. Fishley er 25 ára og hefur tvo undanfarna vetur leikið í ítölsku A- deildinni með Sassuolo og Verona en spilað á Íslandi á sumrin, fyrst með Sindra á Hornafirði í 1. deild 2017 og síðan með ÍBV í úrvalsdeildinni 2018 þar sem hún gerði þrjú mörk í 14 leikjum. vs@mbl.is Fishley er komin til Stjörnunnar Ljósmynd/Sigfús Gunnar Stjarnan Shameeka Fishley kemur í Garðabæinn frá Ítalíu. Andy Murray frá Skotlandi og Ser- ena Williams frá Bandaríkjunum- eru úr leik í tvíliðaleik á Wimble- don-mótinu í tennis sem fram fer í London eftir 2:1-tap gegn Bruno Soares frá Brasilíu og Nicole Meli- char frá Bandaríkjunum í sextán liða úrslitum mótsins í gær. Murray og Serena gengu undir nafninu „Murena“ á mótinu í ár. Serena er komin áfram í undanúrslit mótsins í einliðaleik kvenna þar sem hún mætir Barboru Strycova en Serena hefur sjö sinnum fagnað sigri í ein- liðaleik á Wimbledon-mótinu. „Ofurparið“ ekki í átta liða úrslitin AFP Töpuðu Andy Murray og Serena Williams fara ekki lengra. 1:0 Stephany Mayor 14. 2:0 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 24. 3:0 Lára Kristín Pedersen 43. 4:0 Heiða Ragney Viðarsdóttir 58. 5:0 Andrea Mist Pálsdóttir 62. 6:0 Stephany Mayor 90. I Gul spjöldEngin. Dómari: Bjarni H. Héðinsson, 9. ÞÓR/KA – HK/VÍKINGUR 6:0 Áhorfendur: 267. MM Lára Kristín Pedersen (Þór/KA) Stephany Mayor (Þór/KA) M Þórdís H. Sigfúsdóttir (Þór/KA) Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) Heiða R. Viðarsdóttir (Þór/KA) Íslenska 21-árs landsliðið í hand- knattleik karla verður án tveggja bestu manna sinna í lokakeppni heimsmeistaramótsins sem hefst á Spáni á þriðjudaginn kemur. Sel- fyssingarnir Haukur Þrastarson og Teitur Örn Einarsson, sem báð- ir eru A-landsliðsmenn, gáfu ekki kost á sér í þetta mót. Haukur sagði við mbl.is í gær að hann hefði ákveðið að sleppa þessu móti vegna þreytu og álags en hann útilokaði ekki að leika með 19-ára landsliðinu í lokakeppni HM í ágúst. Ekki náðist í Teit, sem er leikmaður Kristianstad í Svíþjóð. Einar Andri Einarsson, þjálfari 21-árs liðsins, sagði við mbl.is að það væru vonbrigði að þessir tveir skyldu ekki gefa kost á sér, sem og ÍR-ingarnir Sveinn Andri Sveinsson og Arnar Freyr Guð- mundsson. Þá verða Sveinn Jó- hannsson og Birgir Már Birgisson ekki með vegna meiðsla. Ísland mætir Síle í fyrsta leik á þriðjudagsmorgun en er einnig með Argentínu, Noregi, Dan- mörku og Þýskalandi í riðli. Þeir sem skipa hópinn eru Andri Sig- marsson Scheving, Darri Aronsson og Orri Freyr Þorkelsson úr Haukum, Ásgeir Snær Vignisson og Sveinn José Rivera úr Val, Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Jakob Martin Ásgeirsson úr FH, Daníel Örn Griffin og Sigþór Gunnar Jónsson úr KA, Elliði Snær Viðarsson og Gabríel Mart- inez Róbertsson úr ÍBV, Hafþór Már Vignisson úr Þór, Hannes Grimm úr Gróttu, Kristófer Andri Daðason úr HK, Viktor Gísli Hall- grímsson úr GOG og Örn Vésteins- son Österberg úr Amo. Fara á HM án bestu leikmannanna Morgunblaðið/Hari Álag Haukur Þrastarson fer ekki með 21-árs landsliðinu á HM.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.