Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 72

Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 72
Bragi Árnason flytur dægurlög eftir sjálfan sig í bland við bítlalög á Cafe Flóru annað kvöld kl. 20. Lögin samdi hann undir leiðsögn Péturs Ben og Sóleyjar Stefánsdóttur í námi sínu í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi við Tónlistardeild LHÍ þaðan sem hann útskrifaðist í vor. Bragi lýsir tónleikunum sem sögustund með sönglögum. Trúbadortónleikar á Cafe Flóru á morgun FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 192. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Stjarnan og Breiðablik spila bæði heimaleiki sína í fyrstu umferð Evr- ópudeildar karla í fótbolta í kvöld en Stjarnan tekur á móti Levadia frá Eistlandi og Breiðablik á móti Vaduz frá Liechtenstein. KR-ingar eru hinsvegar komnir til Molde í Noregi og leika þar við heima- menn. Ljóst er að KR á fyrir hönd- um erfiðasta verkefnið. »61 Evrópuleikir í Kópa- vogi og Garðabæ ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Eyþór Franzson Wechner, org- anisti í Blöndu- óskirkju, leikur verk eftir Niels Gade, Sigfrid Karg-Elert og J.S. Bach í Hall- grímskirkju í dag kl. 12. Ey- þór lauk fram- haldsnámi frá Hochschule für Musik und Theater Leipzig 2014 undir leiðsögn Stefans Engels. Meðfram náminu sótti Eyþór meistaranámskeið hjá ýmsum nafn- kunnum organistum. Eyþór hefur komið fram á einleikstónleikum á Ís- landi, í Þýskalandi og Ástralíu. Miða- sala fer fram á midi.is og í kirkjunni klukkutíma fyrir tónleika. Orgeltónleikar í Hall- grímskirkju í hádeginu Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Hvolpurinn Baltó er á góðri leið með að verða eitt helsta aðdráttaraflið í ferðaþjónustunni á Suðausturlandi og keppir þar við heimsfræg nátt- úruundur á borð við Jökulsárlón um hylli ferðamanna. Atli Freyr Schev- ing, eigandi Baltós, segir hundinn taka þessari athygli með jafnaðar- geði, enda viti hann fátt betra en að- dáun. Til marks um vinsældir Baltós prýða myndir af honum veggi sund- laugarinnar á Höfn og er falast eftir myndum af honum víða að. Baltó er rúmlega níu mánaða ís- lenskum fjárhundur. Hann er fyrsti hundur Atla, sem hafði eingöngu átt ketti þar til Baltó komst í hendur hans. „En mig langaði alltaf í hund og mér hefur alltaf fundist íslenski fjárhundurinn fallegastur,“ segir Atli. „Í Baltó fékk ég alveg frábært eintak.“ Atli rekur Jökulsárlón ferðaþjón- ustu, sem býður meðal annars upp á siglingar á lóninu. Baltó fer oft með honum í vinnuna og fær sér þá gjarnan spássitúr við lónið og nýtur mikillar athygli. „Ég hef samt ekki farið með hann í siglingarnar, en það yrðu örugglega einhverjir mjög ánægðir með það,“ segir Atli. Vinsælt myndefni Að sögn Atla er Baltó afar mann- blendinn og félagslyndur og gefur sig fúslega að þeim fjölmörgu ferða- mönnum sem sækja svæðið heim. „Hann elskar allt og alla og þegar fólk fær svo að vita að hann er ís- lenskur fjárhundur, þjóðarhundur Íslands, vill það fá að taka myndir af sér með honum. Fólki finnst stór- merkilegt að við Íslendingar eigum okkar eigin hund, það eru í rauninni ekki margir útlendir ferðamenn sem vita af því. Þannig að Baltó er oft fyrsti, jafnvel eini, hundurinn af þessari tegund sem þeir hitta.“ Ljósmynd/Atli Freyr Scheving Í sólarlaginu Að sögn Atla kemur það mörgum erlendum ferðamönnum á óvart að Íslendingar eigi sér þjóðarhund. Ferðaþjónustuhvolpur- inn Baltó nýtur hylli  Eitt aðalaðdráttaraflið fyrir ferðamenn á Suðausturlandi Baltó Hvolpurinn er sagður mann- blendinn og elska allt og alla. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 útsala 70% sparaðu allt að af völdum vörum BRISTOL borðlampi. H10 cm. 9.995 kr. Nú 3.995 kr. Pera seld sér. STOOL kollur, bambus. Ø34 x H45 cm. 9.900 kr. Nú 5.900 kr. POGLI garðstóll. Ýmsir litir. 11.900 kr. Nú 7.900 kr. PILOS blómapottur. Lítill. Ø18 cm. 3.995 kr. Nú 2.397 kr. Mið. Ø27 cm. 4.495 kr. Nú 2.697 kr. Stór. Ø36 cm. 4.995 kr. Nú 2.997 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.