Morgunblaðið - 18.07.2019, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 8. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 167. tölublað 107. árgangur
HANN ER AÐ-
LAÐANDI OG
VINALEGUR
ATVINNU-
BLAÐ MORG-
UNBLAÐSINS
NÚTÍMALEG,
SPENNANDI
OG FYNDIN
ALLT UM ATVINNU BERGRÚN ÍRIS 66ÍSLENSKI FJÁRHUNDURINN 12
Matarsóun á hjúkrunarheimilinu
Eir á átta dögum nam 59,7 kg á dag
að meðaltali. Sóun á heimilinu yfir
átta daga tímabil var könnuð og
fóru 358,3 kg af mat til spillis. Töl-
urnar gefa til kynna að á öllum
þremur heimilum Eirar, þar sem
búa um 185 manns, fari um 18 tonn
af mat til spillis á einu ári. Á þrem-
ur deildum var að meðaltali 22,8%
matar hent. Könnunin er sú fyrsta
sem framkvæmd er á hjúkrunar-
heimili hér á landi, að sögn Írisar
Daggar Guðjónsdóttur, hjúkrunar-
deildarstjóra á Eir. Hún hvetur
önnur hjúkrunarheimili til að gera
slíkar kannanir. »10
Morgunblaðið/Golli
Matur Vitundarvakning hefur orðið hjá
hjúkrunarheimilinu Eir vegna matarsóunar.
Um 60 kílóum af
mat hent daglega
Yrði þriðji orku-
pakkinn inn-
leiddur í íslensk-
an rétt mundi
það fela í sér
takmörkun á
fullveldi þjóðar-
innar í raforku-
málum. Íslend-
ingar væru að
játa sig undir
það að raforka,
eins og hver önnur vara, flæddi
frjáls á milli landa.
Þetta er mat Arnars Þórs Jóns-
sonar héraðsdómara. Í aðsendri
grein sinni í Morgunblaðinu í dag
segir Arnar að þeir „fyrirvarar
sem ráðmenn hafa veifað yrðu ekki
pappírsins virði í samningsbrota-
máli fyrir EFTA-dómstólnum.“ Í
framhaldinu hefði íslenska ríkið
tvo valkosti; að heimila lagningu
sæstrengs eða greiða himinháar
skaðabætur. Eftir að tengingu yrði
komið á myndi ESB-stofnunin
ACER taka við stjórnartaumum í
þessum efnum og láta ESA um
framkvæmdina. »37
Orkupakkinn
þýðir takmörk-
un á fullveldi
Arnar Þór
Jónsson
Guðni Einarsson
Þórunn Kristjánsdóttir
„Það þarf að endurskoða kerfið al-
veg frá grunni,“ sagði Charlotta
Oddsdóttir, formaður Dýralækna-
félags Íslands, um þjónustusamn-
inga Matvælastofnunar (MAST) við
dýralækna í dreifðum byggðum.
Hún sagði að Sigurborg Daðadóttir
yfirdýralæknir hefði haft forgöngu
um að MAST og Dýralæknafélagið
leituðu lausna á vandanum. Hug-
myndir sem urðu til í þeirri vinnu
voru lagðar fyrir Kristján Þór
Júlíusson sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra þegar dýralæknar
gengu á hans fund. Hann ákvað að
skipa starfshóp um þjónustu dýra-
lækna í dreifðum byggðum og vakt-
þjónustu dýralækna. Hópurinn á að
skila tillögum í október.
„Þjónustusamningurinn er ómann-
eskjulegur og engum bjóðandi. Ef ég
vil komast í frí þarf ég að redda ein-
hverjum fyrir mig og líka ef ég veik-
ist eða slasast,“ sagði Sigríður Inga
Sigurjónsdóttir, dýralæknir á Ísa-
firði. Hún sagði upp í mars. Eftir að
þjónustusamningarnir fóru til MAST
árið 2011 tók hún sér aldrei frí.
Eru alltaf á vaktinni
Ráðherra skipar starfshóp um þjónustu og vaktir dýra-
lækna í dreifbýli Samningur sagður „ómanneskjulegur“
MEndurskoða þarf kerfið … »28
Leynd hvílir yfir kaupvirði
þriggja dótturfélaga Íslandspósts.
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
endurskoðandi sagði Ríkisendur-
skoðun ekki hafa haft það hlutverk
í skýrslu um Póstinn að varpa ljósi
á kaupin á dótturfyrirtækjum.
„Við höfum velt því fyrir okkur
hvort við þurfum að gera ítarlegri
úttekt á Íslandspósti með hliðsjón
af þeim upplýsingum sem fram
hafa komið. Það er til athugunar
og við munum ráðfæra okkur við
Alþingi um það,“ sagði hann.
Fjallað er um umrædd dótturfélög
Póstsins í Morgunblaðinu í dag.
»20-22
Íhuga ítarlegri
úttekt á Póstinum
Íslenskir jöklar hafa í gegnum tíðina heillað
margan ferðamanninn, og ekkert lát virðist ætla
að verða á vinsældum þeirra þrátt fyrir að rann-
sóknir sýni að þeir fari ört minnkandi með hverju
árinu. Um það bar þessi flokkur ferðafólks vitni.
Fólkið, sem var víða að úr heiminum, var við Sól-
heimajökul, í sunnanverðum Mýrdalsjökli, þegar
ljósmyndara Morgunblaðsins bar þar að í gær og
smellti myndum af dökkum jöklinum í gríð og erg.
Tóku sumir myndasmiðanna sjálfu af sér með
jökulinn í baksýn en aðrir beindu linsum sínum að
tindunum áður en þeir smelltu af.
Morgunblaðið/RAX
Marglitur myndasmiðahópur við Sólheimajökul