Morgunblaðið - 18.07.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 18.07.2019, Qupperneq 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 VERÐ FRÁ: 4.030.000kr. NÝR CITROËN C5 AIRCROSS SUV Komdu og prófaðu nýja Citroën C5 Aircross SUV með kraftmikilli vél, 8 gíra sjálfskiptingu og Grip Control spólvörn sem ásamt einstakri 23 cm veghæð gerir hann frábæran í ferðalagið. HAFÐU ÞETTA EINFALT OG ÞÆGILEGT Keyrðu inn í sumarið á glænýjum Citroën og við sjáum um allt umstangið. Fyrsti jeppinn frá Citroën! Komdu og sjáðu þennan tímamótabíl í 100 ára sögu Citroën. Aðalsmerki Citroën, einstök fjöðrun og framúrskarandi þægindi leika lykilhlutverk í hönnun og smíði C5 Aircross. Sannkallaður lúxusjeppi á einstöku verði. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 8 Sími 515 7040 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Forsendur framlengdrar verksmiðjuábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit samkvæmt staðli framleiðenda frá nýskráningardegi bifreiðar. Kaupandi ber kostnað af þjónustunni. Nánari upplýsingar citroen.is/abyrgd. KOMDU & KYNNTU ÞÉR ÖRUGG GÆÐI CITROËN! HÆRRA UPPÍTÖ KUVERÐ! Vegna góðrar söl u í notuðum Citro ën bílum bjóðum við hærra uppítökuv erð en gengur og ger ist í bílinn þinn við kaup á nýjum Citroën. Nú um hásumar er margtsem hefur áhrif á þaðhvernig við njótum dag- anna. Bit hrjá marga og lúsmý hefur verið mikið í umræðunni. Það er þó margt annað en lúsmý sem bítur. Það er því ýmislegt sem gott er að hafa í huga þegar kláði, útbrot eða sár koma á húð. Hér eru nokkur dæmi: Þörungar geta valdið veikindum Í vatnsböðum geta verið þör- ungar á sveimi. Þessi eitrun er ekki algeng á Íslandi en þó nokkuð í löndunum í kringum okkur. Þetta er mest á þeim tíma sem við erum með blómgandi tímabil. Þörungar geta valdið kláða, höfuðverk, ógleði, uppköstum og niðurgangi. Einkenni vara oft í 1-2 daga en í mörgum tilvikum er rétt að leita aðstoðar á heilsugæslu eða bráða- móttöku, þar sem einkenni geta orðið alvarleg. Einkenni koma ein- hverjum klukkustundum eftir að setið er í vatninu. Þeir sem stunda böð þar sem þörungar eru skulu þvo sér vand- lega eftir baðið og skola sápuna vel af. Er kláði kemur í augu ber að skola þau vandlega. Heilbrigð- isstarfsfólk meðhöndlar síðan fólk mest eftir einkennum ef þau eru alvarleg. Roði, bólga og verkur eftir geitungastungur Geitungar stinga fólk oft eins og vel þekkist á Íslandi. Þessi bit eru sár og geta gefið verki í kringum bitið í einhvern tíma. Roði, bólga og verkur eru svo á svæðinu á eft- ir. Það fyrsta sem maður gerir er að tryggja að ekkert hafi orðið eft- ir í húðinni þegar geitungurinn losnar eða er sleginn af húðinni. Gott er að skrapa af húðinni og ná út þeim hluta sem eftir verður. Kæling er góð verkjastilling og það getur verið gagnlegt að kæla fyrst eftir að maður hefur verið bitinn. Stundum er notað deyfingarkrem á bitið eða bólgu- eyðandi steraáburður ef einkenni eru mikil. Þarf ég að leita aðstoðar? 1. Ef stungan er í munninum er rétt að leita aðstoðar sem fyrst. 2. Ef þú ert með ofnæmi fyrir geitungum er rétt að leita aðstoðar eða nota lyf sem þú hefur þegar fengið hjá lækni þínum. 3. Ef einkenni eru vaxandi þegar frá liður og áfram vaxandi eftir nokkra daga frá biti. Þá ætti þetta almennt að vera gengið yfir. 4. Fólk með undirliggjandi sjúk- dóma getur þurft að leita aðstoðar. Svo er til að skógarmítill berist til landsins eða að fólk hefur verið bitið af slíkum í útlöndum. Það er einkennandi að dýrið bítur sig fast í húðina og eftir slíkt bit er oft roði og bólga í nokkra daga. Gott er að fjarlægja dýrið sem fyrst, þar sem smit á vissum hættulegum sýklum getur borist með skóg- armítli. Þá er spurning hvenær er rétt að leita aðstoðar. Langflestir þurfa þess ekki, enda eru bitin saklaus. Borelia er ein af þeim sýkingum sem geta fylgt biti skógarmítils. Þá koma út- brot á húðina nokkrum dögum eft- ir bitið og eru útbrotin nokkuð dæmigerð. Þá er mikilvægt að leita aðstoðar og meðhöndla með sýklalyfjum. Oftast er um að ræða útbrot sem eru stærri en fimm cm, líta út eins og skotmark með roða í miðjunni og yst en ljósara í milli og stækka smám saman. Bitin eru oftast saklaus Á undanförnum árum hefur tíðni TBE eða Tick-borne encephalitis (heilabólgu) aukist. Þá fær fólk heilabólgu eftir bit af skógarmítli og jafnvel varanleg einkenni. Farið er að bólusetja við þessum veiru- sjúkdómi, enda er hann mjög al- varlegur og engin meðferð til. Get- ur því verið skynsamlegt að láta bólusetja sig ef maður er á svæð- um þar sem slíkt kemur fyrir. Munum að fara varlega og ef ein- kenni vara lengi er alltaf rétt að leita aðstoðar. Fleira bítur en lúsmý Morgunblaðið/Eggert Sár Lúsmýið getur verið hinn mesti skaðvaldur rétt eins og fleiri meindýr sem valda sárum sem geta verið erfið viðureignar og valda fólki vanlíðan. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Heilsuráð Óskar Reykdalsson heim- ilislæknir og forstjóri Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins „Mér finnst alltaf heillandi að mynda hesta,“ segir Lárus Karl Ingason ljós- myndari. Nú er að koma út ljós- myndabók hans Anmut und Zauber der Islandpferde, sem sýnir ástríðu hrossaræktenda frá Eystra-Fróðholti og Hjarðartúni í Rangárþingi eystra í hálendisferðum þeirra. Lárus Karl hefur farið með þeim til fjalla á hverju sumri frá 2011 til að safna saman í bók myndum af þeim ólíku aðstæðum sem bíða hesta og knapa á hálendi landsins. „Skemmtilegast er að mynda hest- ana frjálsa í umhverfi sínu, þegar þeir hlaupa lausir í stórum hópum, kannski 60-100 saman. Það er skemmtilegt myndefni og eins er gaman að fanga stemninguna, þetta einstaka samband milli knapa og hests sem stundum myndast í ferða- lögum á fjöllum,“ segir Lárus Karl. Bókin er gefin út nú í tilefni af heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem haldið verður í Berlín í Þýska- landi í byrjun ágústmánaðar næst- komandi. Jafnhliða því heldur Lárus Karl nærri mótsstað sýningu á mynd- um af íslenska hestinum, meðal ann- ars þeim sem eru í bókinni sem verð- ur m.a. seld á vefnum hrimnir.shop og í verslunum Eymundsson. Lárus Karl hefur verið ljósmyndari í 30 ár og unnið bæði sem auglýs- ingaljósmyndari og þjónað ýmsum stofnunum og ráðuneytum. Á und- anförnum árum hefur hann mynd- skreytt margar bækur sem tengjast náttúru Ísland beint og óbeint. Eru sumar þeirra um fluguveiði – en fleira má þó tiltaka, svo sem bækur um mat og um Hafnarfjörð, sem er heimabær Lárusar Karls. Með nýja bók og sýningu í Berlín Alltaf heillandi að mynda hesta Lárus Karl Við hestamyndirnar. Veitingastaðurinn Vor á Selfossi var opnaður fyrr í mánuðinum og er í verslunarhúsi Krónunnar á Austur- vegi 3-5. „Sumarið fylgir vorinu og við vildum velja staðnum nafn sem minnir á ferskleika,“ segir Tómas Þóroddsson veitingamaður. Þau Elva Dögg Þórðardóttir reka staðinn og bjóða þar upp á ýmsa heilsurétti, svo sem úr grænmeti og ávöxtum. Einnig eru á boðstólum safi, sam- lokur, ís og fleira gott sem fær líka fínar viðtökur. Alls tekur staðurinn 44 í sæti í rúmgóðum húsakynnum sem innangengt er í úr Krónubúð- inni. Nýr veitingastaður með heilsurétti í öndvegi Vorið er komið á Selfossi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hressing Tómas Þóroddsson og Elva Dögg, lengst til vinstri, með starfsliði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.