Morgunblaðið - 18.07.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.07.2019, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Eirvík flytur heimilistæki inn eftir þínum séróskum Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is fyrir nýjum húsum, þar á meðal eru lágbyggingar Orkuhússins. Höfundar vinningstillögu Alark arkitekta eru Kristján Ásgeirsson, Hans Orri Kristjánsson og Jakob E. Líndal. Vinningstillaga Alark gerir ráð fyrir fjórum byggingaráföngum þar sem gert er ráð fyrir 450 íbúðum auk atvinnuhúsnæðis að hluta. Til- lagan gerir ráð fyrir 4-9 hæða bygg- ingum sem mynda randbyggð með sólríkum og skjólgóðum inngörðum sem eru að hluta til opnir og tengdir saman með göngu- og hjólastígum, þar sem Orkuhúsið fær ákveðinn virðingarsess. Í umsögn dómnefndar segir að tillagan uppfylli meginmarkmið samkeppninnar vel og skipulags- hugmyndin sé bæði skýr og vel fram sett. Jafnframt segir að til- lagan bjóði upp á gott heildar- yfirbragð fyrir íbúðir og atvinnu- starfsemi í aðlaðandi og eftir- sóknarverðu umhverfi. Sem fyrr segir var Rafmagns- veita Reykjavíkur með bæki- stöðvar á þessum stað, skrifstofur og birgðastöð. Hitaveita Reykja- víkur var með bækistöðvar á lóð hinum megin við Grensásveg. Þessi tvö fyrirtæki sameinuðust árið 1999 undir heitinu Orkuveita Reykjavíkur. Vatnsveita Reykja- víkur varð hluti af Orkuveitunni ár- ið 2000. Orkuveitan reisti höfuðstöðvar við Bæjarháls í Árbæjarhverfi. Þær voru teknar í notkun árið 2003 og eignirnar við Suðurlandsbraut og Grensásveg voru þá seldar. Orkuhússreitur með 450 íbúðir  Deiliskipulagsvinna er hafin á vegum Reita  Stefnt að því að hefja framkvæmdir eftir 2,5-3 ár Tölvumynd/Alark arkitektar Vinningstillagan Svona sjá arkitektar Alark fyrir sér að hin nýja byggð muni líta út í framtíðinni. Fremst er horn Suðurlandsbrautar og Grensásvegar. Ljósmynd/mats.is Reiturinn Öll húsin munu víkja nema sjálft Orkuhúsið við Suðurlandsbraut. Myndin er komin til ára sinna og í dag er trjágróður mun hærri en hér sést. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á vegum Reita fasteignafélags er hafin vinna við deiliskipulag fyrir svonefndan Orkuhússreit við Suður- landsbraut. Er skipulagið unnið á grundvelli verðlaunatillögu Alark arkitekta, sem urðu hlutskarpastir í hugmyndasamkeppni um framtíð- aruppbyggingu á reitnum. Vinn- ingstillagan gerir ráð fyrir 450 íbúð- um auk atvinnuhúsnæðis að hluta. Hún var kynnt í maí síðastliðnum. Á þessum reit munu búa þúsundir manna í fyllingu tímans. „Við reiknum með að skipulags- ferlið taki 12 mánuði og að hægt verði að byrja framkvæmdir eftir tvö og hálft til þrjú ár ef allt gengur samkvæmt áætlun,“ segir Friðjón Sigurðarson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Reita. „Endanleg tímalína liggur ekki fyrir ennþá. Við reiknum þó með að reiturinn byggist upp á um 3-5 ár- um frá því að framkvæmdir hefj- ast,“ bætir Friðjón við. Orkuhússreiturinn afmarkast af Suðurlandsbraut í norðri, Ármúla í suðri og Grensásvegi í austri. Um er að ræða sameinuðu lóðina Suður- landsbraut 34 og Ármúla 31. Reiturinn er 2,6 hektarar að flat- armáli. Heildarflatarmál fasteigna á svæðinu í dag er tæpir 11 þúsund fermetrar. Orkuhúsið miðpunkturinn Suðurlandsbraut 34 er helsta bygging svæðisins. Um er að ræða 4.100 fermetra skrifstofuhús, sjálft Orkuhúsið, sex hæðir ásamt lág- byggingum. Það hýsti upphaflega skrifstofur Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Arkitektar hússins voru Guð- mundur Kr. Kristinsson og Ferdin- and Alfreðsson. Ármúli 31 er 6.800 fermetra iðn- aðarhúsnæði. Þetta er stálgrindar- bygging sem nú hýsir skrifstofur, verslun og léttan iðnað. Orkuhúsið er eina byggingin á reitnum sem mun halda sér. Önnur mannvirki verða rifin til að rýma „Byggðamynstrið formar táknið E2 sem stendur fyrir orku rafeinda,“ segir m.a. í lýsingu höfunda vinn- ingstillögunnar. Tillagan myndist af tveimur meginbyggingarhlutum, sem skipta megi í fjóra áfanga, sitt hvorum megin við „Orkuásinn“. Fimmti reit- urinn, Orkuhúsið, sé táknrænn fyrir hugtakið orka. Það sé miðdepill til- lögunnar og allar leiðir liggi að því. Dómnefnd fer jákvæðum orðum um tillöguna að flestu leyti. Hún tekur fram að vel fari á rúmgóðum inngörðum, sem séu að hluta til út- hverfir og því bæði fyrir íbúana og almenning. Þeir henti bæði sem svæði fyrir mannlíf svo og fyrir um- ferð gangandi og hjólandi. Vel sé hugsað fyrir birtu og skjóli á lykil- stöðum og vel hugað að blágrænum lausnum. Sólríkur og skjólsæll orkugarður og torg á horni Grensásvegar og Ármúla gefi góð fyrirheit. Í Orkuhúsinu er nú rekin um- fangsmikil lækningastarfsemi á sviði stoðkerfisvandamála. Sú starf- semi mun flytja í Urðarhvarf og önnur starfsemi kemur í Orkuhúsið. Tölvumynd/Alark Inngarðar Inni á milli húsanna er gert ráð fyrir grænum görðum og göngu- og hjólastígum. Verslunarrými verður við Suðurlandsbraut og Ármúla. Sólríkur og skjól- sæll orkugarður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.