Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 59
ÍÞRÓTTIR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell keramik hitarar Kalt? Hitaðu uppmeðHoneywell Það hefur verið gaman að fylgjast með gengi nýliða Gróttu í Inkasso-deildinni í fótbolta í sumar en guttarnir hans Óskars Hrafns Þorvaldssonar hafa held- ur betur slegið í gegn. Þegar tíu umferðum er ólokið í ástríðudeildinni, eins og margir kalla Inkasso-deildina, er Grótta í bullandi baráttu um að vinna sér sæti í deild þeirra bestu. Gróttustrákarnir eru í öðru sæti í þessari jöfnu og spennandi deild og þeir eru til alls líklegir. Leikmenn Seltjarnarliðsins eru flestir um eða yfir tvítugt en yngsti leikmaður liðsins er Orri Steinn Óskarsson, sem er aðeins 15 ára gamall og er son- ur þjálfarans. Mikið efni þar á ferð eins og fleiri í Gróttuliðinu. Ég settist niður með Ósk- ari Hrafni rétt áður en flautað var til leiks í Inkasso-deildinni. Þá sagði hann við mig: „Við er- um fullir tilhlökkunar og hlökk- um til að sjá hvort verkefnið sem byrjuðum á í fyrra hafi ekki þroskast og dafnað vel í vetur og við séum tilbúnir að taka stökkið. Við mætum auðmjúkir inn í deildina.“ Óskar bætti við: „Við ætl- um að reyna að festa Gróttu í sessi í deildinni, nokkuð sem hefur ekki tekist. Fyrsta mark- miðið er að halda sætinu í deildinni. Ég vona að menn taki skref áfram bæði sem ein- staklingar og sem lið.“ Óskar hefur gert frábæra hluti á Nesinu. Dagskipun hans er að liðið spili góðan fótbolta, haldi boltanum sem mest innan liðsins og hefji sóknir sínar frá aftasta manni. Ég held að það verði erfitt fyrir Gróttu að halda Óskari eftir þetta tímabil. Stærri klúbbar hljóta að horfa til hans. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is GOLF Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Sögufrægasta golfmót mannkyns- sögunnar, The Open, fer fram um helgina í 148. sinn en mótið er haldið á Royal Portrush-vellinum á Norð- ur-Írlandi í ár. The Open var haldið í fyrsta sinn árið 1860 en til saman- burðar er vert að nefna að fyrsta heimsmeistaramótið í knattspyrnu var haldið árið 1930, sjötíu árum síð- ar. Þetta er í annað sinn sem mótið er haldið á Royal Portrush-vellinum en það gerðist fyrst árið 1951. Það var einnig í fyrsta sinn sem The Open var haldið utan Skotlands eða Eng- lands. Í fyrsta sinn í sögu The Open er löngu uppselt en alls eru þrír Norður-Írar með á mótinu, þeir Darren Clarke, Graeme McDowell og Rory McIlroy. Pressa á McIlroy McIlroy, sem er þrítugur, þykir líklegastur heimamannanna til af- reka á mótinu í ár en hann var ein- ungis 16 ára gamall þegar hann setti vallarmetið á gamla Royal Port- rush-vellinum sem er 61 högg. Völl- urinn hefur breyst talsvert frá árinu 2005 þegar McIlroy setti metið en metið á nýja vellinum er 65 högg eða sjö högg undir pari. McIlroy hefur einu sinni fagnað sigri á The Open en það var árið 2014 þegar mótið var haldið í Liverpool á Englandi en það er mikil pressa á honum fyrir mótið. Hinn 50 ára gamli Darren Clarke vann mótið árið 2011 í Kent á Eng- landi og þá vann hinn 39 ára gamli Graeme McDowell sér inn keppn- isrétt á The Open með góðri spila- mennsku í sumar en hann er fæddur og uppalinn í Portrush og verður því væntanlega einnig vel stutt við bak- ið á honum um helgina. Koepka þykir líklegastur Bandaríkjamaðurinn Brooks Ko- epka þykir líklegastur til afreka á mótinu en hann er 29 ára gamall og er í efsta sæti heimslistans þar sem hann hefur nokkuð þægilegt forskot á Bandaríkjamanninn Dustin John- son en títtnefndur McIlroy er í þriðja sætinu. Enginn kylfingur hef- ur oftar fagnað sigri á risamótunum fjórum á undanförnum tveimur ár- um en Koepka. Hann fagnaði sigri á Opna bandaríska árin 2017 og 2018 og þá vann hann sigur á PGA- mótaröðinni 2018 og 2019. Kylfusveinn Koepka, Ricky El- liott, er heimamaður í Portrush en hann vann lengi vel á golfvellinum sem golfkennari. Það er klárt mál að Koepka mun fá mikla hjálp frá kylfusveini sínum sem þekkir hverja þúfu á Royal Portrush-vellinum en eins og alltaf er mikilvægt að vera með gott leikplan og þar kemur kylfusveinninn Elliott sterkur inn. Erfitt að afskrifa Tiger Tiger Woods er vinsælasti kylf- ingur heims og það skyldi enginn af- skrifa Bandaríkjamanninn sem er orðinn 43 ára gamall. Hann hefur þrívegis fagnað sigri á The Open, ár- in 2000, 2005 og síðast 2006. Það eru komin þrettán ár síðan hann vann síðast mótið en Tiger fagnaði sigri á Masters um miðjan apríl á þessu ári. Sigurinn á Masters var fyrsti risatitill Tiger í ellefu ár en hann hefur látið lítið fyrir sér fara eftir sigurinn. Hann hefur aðeins tekið þátt í þremur mótum síðan og í raun verið í fríi undanfarinn mánuð. Ti- ger nýtur sín alla jafna vel á The Open og hann hefur margoft sannað snilli sína í íþróttinni í gegnum tíð- ina. Því skyldi enginn afskrifa Tiger Woods sem er í fimmta sæti heims- listans. Sigurvegararnir koma víða að Alls hefur The Open verið haldið 147 sinnum frá árinu 1860. Mótið var ekki haldið árin 1915 til 1919 vegna fyrri heimsstyrjaldarinnar og frá árinu 1940 til ársins 1945 vegna síðari heimsstyrjaldarinnar. Mótið hefur því verið haldið samfleytt frá árinu 1946 en enginn hefur unnið The Open oftar en Harry Vardon sem vann mótið sex sinnum á ár- unum 1896 til 1914. Af þeim sem eru skráðir til leiks í ár hefur Tiger Woods unnið oftast eða þrisvar. Pádraig Harrington frá Írlandi hef- ur tvívegis fagnað sigri, 2007 og 2008, sem og Ernie Els frá Suður- Afríku sem vann mótið árin 2002 og 2012. Alls hafa leikmenn af 15 þjóð- ernum fagnað sigri á The Open en Svíinn Henrik Stenson er eini Norð- urlandabúinn sem hefur afrekað það. Haraldur Franklín Magnús varð fyrsti íslenski karlmaðurinn til þess að vinna sér inn þátttökurétt á mótinu í fyrra en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Carnous- tie-vellinum í Angus í Skotlandi síð- asta sumar. Koepka þykir líklegastur en erfitt að afskrifa Tiger  The Open, sögufrægasta golfmót heims, fer fram í 148. sinn og hefst í dag AFP The Open Margir munu fylgjast grannt með þeim Tiger Woods og Brooks Koepka sem þykja líklegir til afreka. Íslenska U21 árs landslið karla í handknattleik hefur unnið fyrstu tvo leiki sína á heimsmeistaramótinu sem nú fer fram á Spáni. Eftir að hafa unnið Síle í fyrsta leik í fyrra- dag, 26:19, mættu strákarnir Arg- entínu í gær, hinni Suður-Ameríku- þjóðinni í riðlinum. Þeir fóru með fjögurra marka sigur af hólmi, 26:22, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 14:10. Bjarni Ófeigur Valdimarsson var markahæstur hjá íslenska liðinu með átta mörk en næstur kom Ás- geir Snær Vignisson með fjögur. Viktor Gísli Hallgrímsson, sem fór á kostum í markinu gegn Síle og varði 19 skot, var hvíldur lengst af í leikn- um og Andri Scheving varði níu skot í markinu. Strákarnir fá frí í dag en mæta svo Norðmönnum á morgun, Dönum á laugardag og Þjóðverjum á mánu- dag. Ekki gekk jafn vel hjá U19 ára landsliði kvenna, sem er í B-deild Evrópumótsins í Búlgaríu. Liðið tapaði fyrir Serbíu í gær, 14:22, þar sem Berta Rut Harðardóttir skoraði fimm mörk. Ísland er með tvö stig eftir þrjá leiki og mætir Bretum í lokaleik riðilsins í dag. yrkill@mbl.is Ljósmynd/IHF Sigur Bjarni Ófeigur Valdimarsson var markahæstur hjá Íslandi í gær. Frídagur í dag eftir tvo sterka sigra á HM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.