Morgunblaðið - 06.08.2019, Side 2

Morgunblaðið - 06.08.2019, Side 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg Blokkin Byggingin sem um ræðir stendur í Seljahverfi í Breiðholti. „Vandræðalegt“ og „hörmulegt“  Um tíu einstaklingar hafa samþykkt að greiða FEB hækkað verð  Stjórnin fundar áfram í dag Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Um tíu einstaklingar höfðu í gær samþykkt að greiða hækkað verð fyrir íbúð á vegum Félags eldri borg- ara í Reykjavík og nágrenni (FEB) í íbúðablokk í Árskógum í Breiðholti. Stjórn félagsins mun í dag funda vegna stöðunnar sem upp er komin. Þetta segir Ellert B. Schram, for- maður FEB, en eins og greint var frá í Morgunblaðinu um og fyrir helgi olli ófyrirséður kostnaðarauki því að hækka þarf verð á íbúðunum. Hefur kaupendum, sem upphaflega áttu að fá íbúðir afhentar í lok júlí, verið boðið að greiða hækkað verð, eins og áður segir, ellegar að falla frá kaupunum. Þá hafa einhverjir lýst því yfir að þeir muni mögulega stefna FEB vegna málsins. Gera sitt besta „Það eru um tíu manns sem hafa tekið það á sig [að greiða meira],“ segir Ellert og segir að fundir hafi verið haldnir með kaupendum fyrir helgi, og fleiri slíkir fundir séu á dag- skrá í dag og í vikunni. „Þetta er mjög erfitt, við erum að vinna í þessu og erum að gera okkar augu við þann vanda sem uppi er og segir að ef málið „gengur illa upp“, þ.e. ef málið dregst og til málaferla kemur, verði það „vandræðalegt, leiðinlegt og hörmulegt“. Gögnin til skoðunar Fyrir helgi sagði Georg Andri Guðlaugsson, tengdasonur hjóna sem keyptu íbúð í umræddri blokk og lögfræðingur og fasteignasali, að möguleg hópmálsókn á hendur FEB væri til skoðunar. Sagði hann í gær að lögmanni hefðu verið send gögn til skoðunar, en ekkert nýtt hefði gerst í þessum efnum yfir helgina. besta,“ segir Ellert um málið og seg- ir: „Þetta eru mistök sem áttu sér stað hjá okkur.“ Spurður um mögulegar málsóknir kaupenda gegn FEB segir Ellert: „Það er ekkert hægt að segja annað en að fólk hafi rétt til þess ef það vill fara þá leiðina. Það var tilkynnt hjá okkur á sínum tíma hvert verðið væri og síðan hefur því verið breytt. Maður skilur að fólk sé óánægt með þá niðurstöðu. En við höfum verið að benda á að þó að við séum að hækka verðið þá sé það enn þá undir al- mennu markaðsverði.“ Segir hann að FEB horfist nú í 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019 OPNUM Í DAG K L.10 NÝ VER SLUN Í MÖRKI NNI 3 OG UND IRHLÍÐ 2 AKUR EYRI ÓTRÚLE G OPNU NAR- TILBOÐ Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Umhverfisstofnun hefur veitt leyfi til innflutnings á maurum frá Bras- ilíu og ránmítlum en hefur hafnað umsókn um leyfi til innflutnings á ostrum frá Spáni. Þetta kemur fram í þremur úr- skurðum Umhverfisstofnunar frá því í vor og sumar en eins og að ofan greinir varða þær allar umsóknir um innflutning á dýrum sem eru ís- lensku dýraríki framandi. Eru um- sóknirnar frá þremur mismunandi aðilum. Í umsókn um leyfi til innflutnings á maurum segir að sótt hafi verið um leyfi til innflutnings á þremur lauf- skurðarmaurabúum og átta búum Dinoponer-maura frá Brasilíu, til að hafa til sýningar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þá segir í umsókn um innflutn- ingsleyfi á ránmítlum að um sé að ræða allt að 20 milljón ránmítla á ári til tíu ára af tegundinni Transeiius montdorensis. Eru mítlarnir ætlaðir til sölu sem lífrænar varnir í gróð- urhúsum og garðplöntustöðvum gegn kögurvængjum og mjöllús. Voru báðar þessar umsóknir sam- þykktar, eins og áður segir. Hins vegar synjaði Umhverfis- stofnun um leyfi til innflutnings á milljón smáostrum frá norðurströnd Spánar, sem ætlaðar voru til áfram- ræktunar í Skjálfandaflóa. Var um- sókninni hafnað m.a. vegna þess að sérfræðinganefnd um framandi líf- verur taldi að leita ætti allra leiða til þess að koma í veg fyrir „að þessi ágenga ostrutegund eigi möguleika á að ná fótfestu í íslensku vistkerfi“. Taldi nefndin ekki útilokað að teg- undin gæti þrifist í sjónum við Ísland og sagði að þar sem tegundin næði fótfestu væri talin hætta á því að hún gæti tekið yfir búsvæði annars skel- fisks. Flytja inn brasilíska maura  Engar ostrur frá Spáni  Leyfilegt að flytja inn ránmítla Morgunblaðið/RAX Margfætlur Þessi dýr voru eitt sinn til sýnis í fjölskyldugarðinum. Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út á fjórða tímanum í gær vegna manns sem var slasaður á fæti á Fimm- vörðuhálsi. Hann er talinn lærbrot- inn. Hópur björg- unarsveitarfólks keyrði langleiðina upp Fimmvörðu- háls ásamt lækni en gekk síðasta spölinn, um tveggja kílómetra leið, að slasaða manninum vegna mikillar þoku. Sá hópur náði til mannsins um klukkan sex í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti síðan hóp björgunarfólks í Fljótshlíð og lenti á Morinsheiði. Sá hópur fór þaðan fótgangandi á vettvang ásamt þyrlulækni. „Rétt upp úr klukkan sjö var lagt af stað með manninn niður að Skóg- um. Þegar búið var að koma honum kirfilega fyrir á börum og verkja- stilla hann var honum ekið fyrsta spölinn á sexhjóli og svo í björg- unarsveitarbíl niður Fimmvörðuháls til móts við þyrlu sem bíður þar og mun væntanlega flytja hann til Reykjavíkur,“ sagði Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Maðurinn líklega lærbrotinn Slys Björg- unarfólk mætt.  Maður slasaðist á Fimmvörðuhálsi Reykvíkingar héldu kannski í byrjun sumars að veðrið væri of gott til að vera satt og sólardag- arnir hlytu brátt að klárast. Það virðist þó ekki vera raunin því sólin heldur áfram að leika við höfuðborgarbúa. Hún skein einkar glatt á versl- unarmenn og -konur í gær. Paradísarveðrið virðist engan enda taka Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Sólskinsdagarnir halda áfram í höfuðstaðnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.