Morgunblaðið - 06.08.2019, Side 4

Morgunblaðið - 06.08.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Hotel Globales Playa Estepona Costa del Sol 13. ágúst í 7 nætur Verð frá kr. 99.995 Verð frá kr. 136.995 aaaa ALLT INNIFALIÐ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Verslunarmannahelgin fór að mestu fram stóráfallalaust þó að einhverjir dökkir blettir hafi verið á hátíð- arhöldunum. Landsmenn voru margir hverjir á faraldsfæti og má með sanni segja að höfuðborgin hafi nánast tæmst enda fáa að sjá á ferli í miðbroginni um helgina nema erlenda ferðamenn. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var stærsta hátíðin að vanda en Jónas Guðbjörn Jónsson, talsmaður þjóðhá- tíðarnefndar, var afar sáttur með helgina. „Þetta var draumi líkast, eiginlega eins og maður hafi skrifað handritið. Allt gekk alveg frábærlega vel og fór virkilega vel fram. Veðrið lék nátt- úrlega við okkur alveg eins og það hefði verið pantað.“ Það var engin þreyta í Jónasi og öðrum Eyjamönnum daginn eftir Þjóðhátíð enda voru þeir strax farnir að má út vegsummerki hátíðargesta þegar blaðamaður hringdi rétt fyrir klukkan þrjú í gær. Meira siglt á næsta ári Tólf til þrettán þúsund manns skemmtu sér í Herjólfsdal á sunnu- dagskvöldið þegar hátíðin náði há- marki. „Ég held að það hafi jafnvel verið fleiri í brekkunni en venjulega því það var svo gott veður svo fólk var frekar úti en í tjöldunum sínum,“ segir Jón- as. Miðað við Þjóðhátíð síðustu ár voru hátíðargestir þó færri en vant er en í fyrra voru þeir um fimmtán þúsund. Bæði gamli og nýi Herjólfur sigldu á milli lands og Eyja þessa helgina. Aðspurður segir Jónas vel koma til greina að hafa einnig líkt fyrir- komulag að ári. „Ég hugsa að það verði jafnvel meira siglt á næsta ári. Þeir voru að taka nýja bátinn í gagnið þarna rétt fyrir hátíð og það tekur sinn tíma að læra á hann og svona. Við áttum virkilega gott samstarf við Herjólf og þau hjá Herjólfi eiga þakkir skilið fyrir að hafa staðið sig virkilega vel.“ Tveir menn voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur á sunnu- dagsnótt vegna líkamsárásar á Þjóðhátíð. Annar mannanna hlaut höfuðkúpubrot og hinn tannbrot. „Of- beldisbrotin eru auðvitað svartur blettur á hátíðinni, sérstaklega þessi alvarlega líkamsárás. Annar þeirra sem ráðist var á liggur enn þá inni,“ segir Tryggvi Ólafsson, lögreglu- fulltrúi hjá lögreglunni í Vest- mannaeyjum. Tryggvi getur ekki gef- ið neitt upp um ástand mannsins nema það að hann sé undir eftirliti. Merkilega lítið var um að vera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum á sunnudagskvöldinu en talsverður er- ill var önnur kvöld. Þrír gistu í fangaklefa vegna minni háttar líkamsárása á föstudags- kvöldið, fjórar líkamsárásir voru framdar á laugardagskvöldið, þar af tvær minniháttar og tvær alvarlegri. Þrír menn eru í haldi vegna málanna. Um tólf fíkniefnamál komu inn á borð lögreglunnar í Vestmanna- eyjum, öll svokölluð neyslumál nema eitt þar sem einn var grunaður um sölu og gisti í fangaklefa fyrir vikið. Tryggvi gat ekki gefið upp hvort ein- hver kynferðisbrot hefðu komið inn á borð lögreglu. „Ógeðslega mörg“ bros Hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra var öllu rólegra en á Akureyri var hátíðin Ein með öllu og íslensku sumarleikarnir haldin um helgina. Einn gisti í fangaklefa vegna ölvunar og annar var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á Akureyri segjast skipuleggj- endur ekki telja fólk heldur bros og segir Davíð Rúnar Gunnarsson, einn aðalskipuleggjandi Einnar með öllu að þau hafi verið „ógeðslega mörg“. Rýmið fyrir lokatónleika hátíð- arinnar, svokallaða Sparitónleika, reyndist sprungið utan af gestum há- tíðarinnar. „Við þurftum bara að loka þjóðvegi eitt til þess að koma fólki fyrir úti á götu,“ segir Rúnar glað- beittur. Bæjarbúar kepptust við að skreyta hús sín með rauðu fyrir hátíðina. „Sá sem vann keppnina í að skreyta húsið sitt með rauðu fór alla leið og málaði það rautt,“ segir Rúnar sem vill þakka Akureyringum kær- lega fyrir að taka virkan þátt í að halda Eina með öllu. Ekki er allt gamanið úti enn en um næstu helgi verður Fiskidagurinn mikli á Dalvík, helgina þar á eftir verður Gleðigangan í Reykjavík og Danskir dagar í Stykkishólmi, næst- síðustu helgina í ágúst verður svo Menningarnótt haldin hátíðleg í Reykjavík og svo mætti áfram telja. Mikil þátttaka í hátíðarhöldum  Þjóðhátíð í Heimaey „draumi líkust“  Akureyringur málaði húsið sitt rautt til að vinna keppni  Alvarlegar líkamsárásir og minni háttar fíkniefnabrot á borði lögreglunnar í Vestmannaeyjum Morgunblaðið/Óskar Friðriksson Eyjar Eins og sjá má var það helst unga fólkið sem skemmti sér í Herjólfsdalnum um helgina þó að eldri og reyndari þjóðhátíðarfara mætti finna víðast hvar. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Ein með fiðlu Gréta Salóme greip í fiðluna til að trylla lýðinn á Einni með öllu um helgina. Augljóst er að tónleikasvæðið þarf að stækka á næsta ári. Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi til móts við Rauðhóla í gær. Þrír slösuðust, þar af einn alvarlega. Einnig urðu tvö óhöpp á Kjalvegi. Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu tók 38 manns fyrir ölv- unar- og fíkniefnaakstur um helgina en að sögn lögreglunnar er það ekki meira en um hefð- bundna helgi. „Það er því miður orðið svo mikið,“ segir Hlynur Gíslason varðstjóri í samtali við mbl.is. Í hádeginu á mánudag höfðu sjö ökumenn verið teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur frá því að Herjólfur hóf siglingar frá Vestmannaeyjum aðfaranótt mánudags. Lögregluyfirvöld í öllum um- dæmum voru með aukið eftirlit með umferð um helgina. 38 í vímu í bílstjórasæti UMFERÐIN Á LANDSVÍSU Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Elías Arnar, landvörður í Mý- vatnssveit, segir að takmarkanir á umferð um ákveðin svæði í Mý- vatnssveit hafi verið löngu tíma- bærar. Ráðist var í takmarkanirnar á föstudaginn en þær ná til þriggja svæða í eigu Reykhlíðinga; Stóra- Vítis, Leirhnjúka og Hvera. Elías segir að svæðin hafi verið mjög illa farin eftir ágang ferða- manna. „Ég vona að þetta verði hluti af okkar daglega amstri vegna þess að þetta eru náttúrlega perlur sem þarf að sjá um,“ segir Elías. Spurður hvort ferðamenn hafi virt takmarkanirnar yfir helgina segir Elías svo vera. „Það kemur skemmtilega á óvart að fólk fylgir þessu svona almennt en það eru auðvitað alltaf einhverj- ir sem fara hér og þar án leyfis og það er lítið hægt að gera í því.“ Engar óánægjuraddir hafa bor- ist Elíasi til eyrna. „Ekki hingað til. Einn landeig- andi kíkti á okkur í fyrradag þegar við vorum að setja upp. Hann að- stoðaði okkur og var virkilega al- mennilegur.“ Auk takmarkananna felast að- gerðir landvarðanna meðal annars í því að afmarka gönguleiðir með skýrum hætti, skerpa á löglegum bílastæðum og minnka opin svæði. „Perlur sem þarf að sjá um“  Ferðamenn hafa virt takmarkanir  Svæðin illa farin Ljósmynd/Umhverfisstofnun Stikur Þessar stikur munu koma sér vel við afmörkun gönguleiða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.