Morgunblaðið - 06.08.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.08.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019 Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land.Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vænta má þess að raforkuframleiðsla í nýrri Brúarvirkjun í Tungufljóti í Biskupstungum hefjist í janúar næst- komandi. Það er um tveimur mánuð- um fyrr en búist var við, en upphaf- legar áætlanir gerðu ráð fyrir að orka frá virkjuninni færi ekki inn á dreifi- kerfið í uppsveitum Árnessýslu fyrr en í marsmánuði. „Ístak er aðalverk- taki við framkvæmdina og hefur skil- að sínu mjög vel hér. Er á undan áætlun með verkið, en það hefur hjálpað mikið að eftir góðan vetur kom frábært sumar með blíðuveðri upp á hvern dag,“ segir Margeir Ing- ólfsson, bóndi á Brú. 49 metra fallhæð Margeir er eigandi landsins þar sem virkjunin og helstu mannvirki henni tengd standa. Verkefnið er- samstarf hans og HS Orku sem er framkvæmdaraðili. Um 60 manns hafa verið á verkstað að undanförnu og myndað með sér alþjóðlegt sam- félag, enda er mannskapurinn af ýmsu þjóðerni. Valinn maður er í hverju rúmi, enda er verkefnið vandasamt. Búið er að steypa upp stöðvarhús virkjunarinnar og koma tveimur túrbínum þar fyrir. Þá er þessa dag- ana verið að byggja upp 590 metra langa stíflu með inntaksmannvirki en frá því liggur 1.700 metra löng að- rennslispípa að stöðvarhúsi. Fallhæð pípunnar er 49 metrar en meðal- rennsli um hana verður 25 rúmmetr- ar á sekúndu. „Þetta fall og vatns- magn gefur okkur 9,9 MW af rafmagni,“ segir Margeir. Umhverfisáhrif verði sem minnst „Það hefur verið mikið ævintýri að sjá þessa framkvæmd verða að veru- leika. Meira en áratugur er síðan ég fór að skoða fyrir alvöru hvort virkja mætti Tungufljótið hér við Brú, en rannsóknir sýndu mjög fljótt að það væri áhugaverður kostur. Allt ferlið við svona framkvæmdir er langt og strangt og var mikill skóli að fara í gegnum það,“ segir Margeir og held- ur áfram: „Framkvæmdin var öll mjög vel undirbúin og gaman að sjá hvað við hér á landi eigum mikið af hæfu fólki sem lætur svona hug- myndir verða að veruleika. Þá hefur samstarfið við HS Orku verið ein- staklega gott og allir verið samtaka um að fella mannvirkin sem best inn í landið þannig að umhverfisáhrifin verði sem minnst, en að framkvæmd- um loknum verður raskað svæði aftur landbúnaðarland með grænum tún- um og hrossum á beit.“ Brúarvirkjun kemst í gagnið í janúar  9,9 MW virkjun í Tungufljóti í Biskupstungum er senn tilbúin  Framkvæmdir eru tveimur mán- uðum á undan áætlun  Samstarf bónda með HS Orku  Stöðvarhús og stífla er felld inn í landslagið Mannvirki Búið er að steypa upp stöðvarhúsið og koma túrbínum þar fyrir. Aðrennslisrörin inn í húsið eru komin Morgunblaðið/Hari Orkubóndi Virkjun er gömul hugmynd Margeirs Ingólfssonar á Brú. Stíflan 50 metra löng og 12 metra há. Framkvæmdir standa nú yfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.