Morgunblaðið - 06.08.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–
HANDBOLTI
EM U17 kvenna
B-deild á Ítalíu:
Tékkland – Kósóvó............................... 39:18
Ísland – Ísrael....................................... 24:19
Kósóvó – Tyrkland ............................... 17:41
Ísrael – Tékkland ................................. 19:25
Tyrkland – Ísland................................. 22:32
Kósóvó – Ísrael ..................................... 18:25
Ísland mætir Tékklandi á morgun og Kó-
sóvó á fimmtudag.
EM U18 karla
B-deild í Rúmeníu:
Keppni um sæti 9-12:
Belgía – Ísland...................................... 91:80
Leikur um 11. sæti:
Bosnía – Ísland ..................................... 72:80
Forkeppni EM karla
Sviss – Portúgal.................................... 77:72
Ísland er þriðja lið í riðlinum og mætir
Portúgal á útivelli á morgun.
EM U20 kvenna
B-deild í Kósóvó:
A-riðill:
Króatía – Ísland.................................... 76:55
Króatía – Ísrael .................................... 58:49
Ísrael – Ísland....................................... 78:63
Ísland endaði í þriðja sæti riðilsins og
mætir Grikklandi í keppni um 9.-12. sæti á
morgun.
KÖRFUBOLTI
Knattspyrnu-
maðurinn Harry
Maguire er orð-
inn dýrasti varn-
armaður heims
eftir að Man-
chester United
keypti hann af
Leicester fyrir
80 milljónir
punda en fé-
lagaskiptin voru
staðfest í gær. Maguire skrifaði
undir sex ára samning við félagið
með möguleika á framlengingu um
eitt ár til viðbótar en hann er 26 ára
gamall. Hann hóf ferilinn með Shef-
field United og hjálpaði svo Hull
City upp í úrvalsdeildina. Þaðan fór
hann svo til Leicester árið 2017. Þá
á hann 20 landsleiki með Englandi
en hann sló í gegn á heimsmeist-
aramótinu í Rússlandi í fyrra.
Maguire fór
til United
Harry
Maguire
Manchester City hafði betur í vítaspyrnukeppni
gegn Liverpool þegar liðin mættust í árlega
leiknum um Samfélagsskjöldinn á Wembley-
leikvanginum í London. Staðan var 1:1 eftir
venjulegan leiktíma en deildar- og bikarmeist-
arar City skoruðu úr öllum vítaspyrnum sínum
á meðan Liverpool, sem hafnaði í öðru sæti á
síðustu leiktíð, brenndi af einni.
City og Liverpool háðu stórskemmtilega og
hádramatíska baráttu um enska meistaratitilinn
síðasta vetur áður en City hreppti toppsætið
með naumum eins stigs mun. Þó að það sé of
snemmt að draga ályktanir eftir aðeins einn
leik er erfitt að ímynda sér annað en að bæði
þessi lið verði aftur í skemmtilegri baráttu í
haust.
Sterling kvað niður Liverpool-grýluna
Það eru ekki bara félögin sem hafa háð bar-
áttu sín á milli heldur hafa Raheem Sterling,
sóknarmaður City, og stuðningsmenn Liverpool
flogist á undanfarin ár. Sterling var eitt sinn
gulldrengurinn í Bítlaborginni; ungur, efnilegur
og talinn líklegur til afreka. Svo fór hann til
City fyrir gull og græna skóga, eða öllu heldur
Englandsmeistaratitla, og hefur hann unnið tvo
slíka. Reiði Liverpool-manna í garð Sterling er
fylgifiskur leikja þessara liða en að þessu sinni
sló hann kyrrð á þá eftir aðeins 12 mínútur með
sínu fyrsta marki gegn gamla félaginu. Sterling
var létt eins og manni sem var að reka á brott
illan anda og félagar hans föðmuðu hann eftir
því. Sigurinn var svo að lokum enn ein rósin í
hnappagat kappans en leikurinn um helgina var
aðeins fyrsta orrustan. Um næstu helgi hefst
stríðið. kristoferk@mbl.is
AFP
Skoraði Varafyrirliðinn Raheem Sterling með Samfélagsskjöldinn á lofti en hann tók við fyrirliðabandinu þegar David Silva fór af velli.
City vann fyrstu orrustuna
Raheem Sterling skoraði loks gegn Liverpool Bæði lið aftur líkleg til afreka
Dregið var í umspil um sæti í riðlakeppni Meistara- og Evrópudeild-
unum í knattspyrnu í gær. Hollenska liðið Ajax, sem fór í undanúrslit
Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð, var í pottinum og mætir Sverrir
Inga Ingassyni og félögum í gríska liðinu PAOK. Rússneska liðið Kras-
nodar, sem Jón Guðni Fjóluson leikur með, mætir Porto frá Portúgal
Tvö Íslendingalið geta mæst í umspili Evrópudeildarinnar, takist
Rúnari Má Sigurjónssyni og félögum í Astana frá Kasakstan að vinna
Valletta frá Möltu, mæta þeir Sarajevo frá Bosníu eða Bate Borisov frá
Hvíta-Rússlandi en Willum Þór Willumsson leikur með Bate. Þá spila
Kolbeinn Sigþórsson og félagar í AIK frá Svíþjóð við Sheriff frá Mol-
dóvu en Mikael Anderson og félagar í Midtjylland frá Danmörku mæta
annaðhvort Legia Varsjá frá Póllandi eða Atromitos frá Grikklandi.
Guðmundur Þórarinsson og Norrköping, Svíþjóð, mæta Hapoel Beer
Sheva frá Ísrael og Arnór Ingvi Traustason og samherjar í Malmö mæta
Zrinjski frá Bosníu.
Nánar má lesa um drættina á íþróttasíðum mbl.is. sport@mbl.is
Willum og Rúnar geta mæst
Berglind Gígja Jónsdóttir og El-
ísabet Einarsdóttir eru komnar á
beinu brautina í strandblakinu.
Sigruðu þær á lokamóti dönsku
mótaraðarinnar í strandblaki um
helgina. Blakfréttir.is greindu frá
þessu og þar kemur jafnframt
fram að þær Berglind og Elísabet
séu á leið til Liechtenstein þar
sem þær keppa á Beach Volleyb-
all World Tour 7.-11. ágúst. Berg-
lind og Elísabet fóru aftur á fulla
ferð í íþróttinni í sumar en höfðu
ekki keppt saman síðan sumarið
2015.
Sigruðu á
lokamótinu
Morgunblaðið/Eva Björk
Í sandinum Elísabet Einarsdóttir
og Berglind Gígja Jónsdóttir.