Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019 NJÓTA München, verð frá 12.900 kr. aðra leið* SKOÐA, BÓKA, Tilboð til allra heilsársáfangastaða. Ferðatímabil: 1. okt. 2019 til 28. mars 2020. *Takmarkað sætaframboð. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Viðbrögðin hafa verið það góðhjá þeim sem hafa nýtt sérþjónustu okkar að við höf-um á tilfinningunni að þeir séu þrjátíu prósent hamingjusamari eftir klippingu heldur en þeir voru þegar við komum til þeirra,“ segja þeir Sigurður Stefán Fygenring og Gabríel Gíslason sem fóru af stað með óvenjulegu þjónustu í sumar undir nafninu Cut Mobile. „Þetta er hreyfanleg rakara- stofa. Við getum komið hvert sem er á Reykjavíkursvæðinu, heim til fólks, á vinnustaði, út í skip, á Klambratún eða hvar annars staðar sem fólk vill láta klippa sig, úti eða inni. Fólk get- ur af ýmsum ástæðum átt erfitt með að komast í klippingu, eða haft lítinn tíma, og þá er hægt að kalla í okkur og við mætum á svæðið. Hugmyndin kviknaði fyrir þremur árum þegar ég vaknaði að morgni við það að Gabríel var mættur heim til mín og var að klippa Þór bróður minn sem sat í stól og horfði á Esjuna á meðan hann fékk þessa þjónustu. Ég skellti mér í stól- inn og fékk líka klippingu og fann hvað þetta var þægilegt fyrirkomu- lag. Þá fékk ég viðskiptahugmyndina, að bjóða upp á þá þjónustu að fá rak- ara heim eða hvert sem fólki hentar. Nafnið Cut Mobile kom strax þarna og við stofnuðum lénið, en við komum hugmyndinni ekki í framkvæmd fyrr en núna, því ég ákvað að flytjast til Berlínar og hugmyndin var söltuð,“ segir Sigurður. „Við bjóðum aðeins upp á her- raklippingar enda lítum við að hluta til á þetta sem herraklúbb, því okkur finnst ákveðinn skortur vera á þjón- ustu fyrir karlmenn, það er svo margt í boði fyrir konur og stelpur. Herrak- lippingar eru líka einfaldari og þá þarf ekki eins mikið af græjum,“ seg- ir Gabríel og tekur fram að þeir bjóði ekki upp á hárlitun. Gabríel klippir og rakar ekki aðeins kolla karlmanna, heldur tekur hann líka að sér að klippa og snyrta hökuskegg. Frí klipping á Menningarnótt Þeir félagarnir hafa haft nóg að gera frá því þeir fóru af stað og þeim finnst skemmtileg upplifun að fara inn á ólíkustu staði, því klippistaðir hafa verið fjölbreyttir, meira að segja um borð í skipi. „Við klipptum heila áhöfn á flutningaskipi hjá Samskipum, þeir unnu í gjafaleik hjá okkur og óskuðu eftir að við kæmum um borð þegar þeir komu í land. Skipstjórinn fékk klippingu í skipstjórnarklefanum en aðrir fengu klippingu í vélasal skips- ins. Þeir komu allir nýklipptir heim til sín eftir mánaðar túr. Þetta var rosa- lega gaman, bæði fyrir okkur og áhöfnina,“ segja þeir vinirnir og bæta við að þeir séu einvörðungu með opið utan hefðbundins tíma. „Okkar þjónusta er í boði á kvöldin kl. 18-23 og um helgar frá 12- 23. Við bjóðum fyrirtækjum að koma til þeirra á daginn og klippa starfs- menn. Við hvetjum fyrirtæki til að borga hluta af hverri klippingu, því það sparar tíma þegar menn þurfa ekki að fara úr vinnu til að láta klippa sig. Þetta er líka tilvalið fyrir hreyfi- hamlaða sem eiga ekki auðvelt með að fara að heiman og sama er að segja um karla á heimilum fyrir eldri borg- ara. Við komum með undirlag og dúk og erum með þráðlausar ryksugur og sóp og skiljum við svæðið eins og við komum að því. Við veitum þessa þjón- ustu innan höfuðborgarsvæðisins en stefnum á að bjóða hana líka úti á landi í framtíðinni. Menn geta pantað tíma inni á heimasíðunni okkar www.CutMobile.com eða hringt í síma 4545400.“ Þeir félagar ætla að bjóða fólki í dag að koma í fría klipp- ingu til þeirra á Bryggjunni brugg- húsi úti á Granda, í tilefni af Menn- ingarnótt, en frjáls framlög verða vel þegin og þau látin renna til góðgerð- armál. Hægt verður að fylgjast með á Instagram. Cut Mobile er með heimasíðu, Facebook síðu, er á Instagram og á Twitter. Hreyfanleg rakarastofa fyrir herra „Við klipptum heila áhöfn á flutningaskipi, skipstjór- inn fékk klippingu í skipstjórnarklefanum en aðrir í vélasal skipsins. Þeir komu allir nýklipptir heim til sín eftir mánaðar túr,“ segja þeir félagar Sigurður og Gabríel sem bjóða körlum upp á að koma hvert sem er til að klippa þá eða raka. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vinir Gabríel klippir Sigurð úti í guðsgrænni náttúrunni, en þeir koma hvert sem er til að snyrta hár og skegg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.