Morgunblaðið - 24.08.2019, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 24.08.2019, Qupperneq 31
Ábyrgð og áhrif fréttamanna Víðast hvar er það svo í lýðfrjálsum lönd- um að stóru málin hafa forgang á frétta- stofum, þau eru reifuð og rædd, skoðuð frá ýmsum sjónarhornum tímunum saman, enda bera fjölmiðlar mikla ábyrgð þegar kemur að upplýsingagjöf og skoðanamyndun. Í mikilvægum málum sem tekist er á um er talað við áhrifamenn og talsmenn beggja eða allra sjónarmiða, dregin fram aðal- atriði og leitast við að útskýra þau. Því miður sýnist mér þessu ekki þannig varið í fjölmiðlum okkar undanfarin misseri, jafnvel ekki í útvarpi allra landsmanna. Meðan allt logar í átökum um þriðja orku- pakkann innan stjórnmálaflokka og í þjóðfélaginu öllu láta fréttamenn sér það í léttu rúmi liggja, eru ófeimnir við að draga aðeins fram sjónarmið annars aðilans og sleppa því oftast að birta fréttir af því sem er að gerast á hinum vængnum. Fréttamenn hafa í raun nær alger- lega brugðist þeirri ábyrgð að ræða hlutlaust við mótmælendur og fylgjendur eða lýsa því um hvað þriðji orkupakkinn raunverulega snýst. Hvernig væri nú svona á lokametrunum að fjölmiðlar sæju sóma sinn í að kafa rækilega ofan í málið? Hvað er það sem Íslend- ingar fengju með þriðja orkupakk- anum? Hvers vegna liggur svona mikið á að samþykkja hann? Hvað gerist verði hann ekki sam- þykktur? Hvaða fiskar liggja hér undir steini, ef einhverjir? Margir telja að innleiðing þriðja orkupakkans geti haft óafturkræfar afleiðingar fyrir full- veldi landsins. Hvers vegna neita þjóð- kjörnir leiðtogar að gaumgæfa slíkar kenningar, jafnvel móðgast ef gagnrök eru borin fram? Hvers vegna spyrja fréttamenn ekki út í ástæðurnar fyrir slíkum leikara- skap? Fylgjendur orkupakkans hafa greinilega mun greiðari að- gang að fréttastofum. Hvernig ná þeir slíku tangarhaldi á fjölmiðlum að þeir fái ekki að fjalla ærlega um málið og gefa þjóðinni tíma og tækifæri til að kynna sér allar hlið- ar þess? Hvað á þessi leik- araskapur að þýða? Hvar er lýð- ræðið statt ef fréttamenn láta bjóða sér slíkt vinnuumhverfi? Eftir Hildi Hermóðsdóttur » Fjölmiðlar bera mikla ábyrgð þegar kemur að upplýsingagjöf og skoðanamyndun. Hildur Hermóðsdóttir Höfundur er bókmenntafræðingur. UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019 Er upphafsstaða á skákborð-inu þvingað jafntefli eðaunnin á hvítt? Einhver of-urtölva 21. aldar mun fyrr eða síðar svara þeirri spurningu en kapparnir tólf sem tefla á Sinque- field-mótinu í Saint Louis virtust ætla að svara þeirri spurningu með einu orði – jafntefli! Í fyrstu fjórum um- ferðunum, 24 skákum, varð alltaf jafntefli – nema í einni skák. Menn hresstust verulega í 5. umferð, en langar kappskákir virðast á undan- haldi. Svo rækilega eru byrjana- afbrigði sundurgreind að sigurvonin liggur oftast í jafnteflislegum enda- töflum, t.d. eftirfarandi stöðu sem kom upp í 5. umferð Sinquefield- mótsins: Nepomniachtchi – Nakamura Nakamura lék nú 57. ... b4 og tap- aði eftir 67 leiki. Það virtist engin knýjandi þörf á peðsleiknum. B5- peðið valdar c4-reitinn og „tónar“ vel við biskupinn. Sennilega hefur Na- kamura óttast að eftir 57. ... Ba3 komi 58. exf5+ Kxf5 59. Kd4. Hann gat líka 57. ... fxe4+ 58. Kxe4 Bd2. Um þessa stöðu fóru fram athyglis- verðar umræður á einni spjallsíðu og komu þar við sögu meðal annarra Svidler, Khalifman, Marin og „Table- base“, sem ég vil leyfa mér að gefa nafnið „Taflan“ – gagnagrunnur sem geymir lista yfir allar stöður sem geta komið upp (500 billjónir) með sjö tafl- mönnum, ásamt tæmandi úttekt á hverri þeirra, og úrskurðaði að hvítur væri með unna stöðu hverju svo sem svartur léki. Í augnablikinu teljum við níu menn á borði en einhvern tím- ann mun skiptast upp á e- og f- peði og þá verða eftir sjö. Það er of langt mál að rekja at- burðarás þessarar skákar en mikil speki rann upp úr mönnum og í um- ræðunni miðri var skyndilega í brennidepli skák sem þeir tefldu Tai- manov og Fischer í Buenos Aires árið 1960. Þekking þess síðarnefnda í erf- iðri vörn þótti undraverð. Greinar- höfundur gat ekki betur skilið en að „Taflan“ hefði fundið eitthvert frávik sem gerbreytti möguleikum svarts til varnar. Líf í tuskunum hjá Braga í Helsinki Það var heldur meira líf í tusk- unum þar sem Bragi Halldórsson sat að tafli á 75 ára afmælismóti Heikki Westerinen sem fram fór í Helsinki og lauk um síðustu helgi. Gengi Braga var misjafnt, hann hlaut 3 vinninga af 9 mögulegum og hafnaði í 8. sæti af 10 keppendum sem tefldu allir við alla. Ein skák sem Bragi tefldi vakti mikla athygli: Bengt Hammar – Bragi Hall- dórsson Caro-Kann 1.e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. Bc4 Rf6 7. R1e2 e6 8.O-O Bd6 9. f4 Bf5 10. Rxf5 exf5 11. Rg3 g6 12. He1+ Kf8 13.Bb3 h5 14. a3 Rbd7 15. Df3 h4 16. Re2 Re4 17. c4 Rdf6 18. Bc2 Kg7 19. b3 He8 20. Bb2 Kg8 21. Rc3 Bragi lék á afar „mannlegan hátt“, eins og það var orðað á bloggsíðu Lars Grahn. Hann missti af 21. ... Bxa3! og eftir 22. Hxa3 Dxd4+ 23. De3 kemur 23. ... Rxc3! Nú er 24. Dxd4 þvingað en eftir 24. ... Hxe1+ 25. Kf2 Hae8! og vinnur t.d 26. Bxc3 Rg4+ 27. Kf3 Hf1+ og mát í næsta leik. Framhaldið tefldi Bragi engu að síður af miklum þrótti: 22. g3? Betra var 22. Rxe4. 22. ... hxg3 23. hxg3 Rxg3! 24. Dxg3 Bxf4 25. Dh3 Kg7! 26. Df3 Meira hald var í 26. d5 en eftir 26. ... Hh8 27. Df3 á 27. ... Be5 að vinna. 26. ... Rg4 27. d5 Be3+! 28. Kg2 Eða 28. Kf1 f6 o.s.frv. 28. ... Dh2+ 29. Kf1 Bd4! 30. Re2 Bxb2 31. Ra2 Re3+ - og hvítur gafst upp. „Taflan“ átti síðasta orðið Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/Heimasíðan afm? Bragi Halldórsson við taflið í Helsinki. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Ingimar Ingimarsson fædd- ist á Þórshöfn 24. ágúst 1929. Foreldrar hans voru Ingimar Baldvinsson og Oddný Friðrika Árnadóttir. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1949 og embættisprófi í guðfræði frá HÍ 1953. Hann var sóknarprestur í Raufar- hafnarprestakalli 1952-1955, í Sauðanesprestakalli 1955-1965, í Víkurprestakalli í Mýrdal 1965-1981 og í Sauðanes- prestakalli 1981-1999. Ingimar var jafnframt prófastur í Þing- eyjarprófastsdæmi 1997-1999. Hann var stundakennari við Barna- og unglingaskólann á Raufarhöfn og á Þórshöfn, kennari við farskóla Sauðanes- skólahverfis, stundakennari við Grunnskólann í Vík í Mýrdal og stundakennari við Grunnskóla Þórshafnar meðfram prest- skap. Ingimar sat í hreppsnefnd Sauðaneshrepps 1958-65, í fræðsluráði N-Þing. 1957-65, var oddviti Hvammshrepps, V- Skaft. 1970-80, í stjórn Sam- bands sunnlenskra sveitar- félaga 1971-80, í fræðsluráði Suðurlandskjördæmis 1974-80 og í stjórn Kaupfélags Skaft- fellinga 1972-80. Eiginkona Ingimars var Sig- ríður Kristjana Sigurgísladótt- ir sjúkraliði, f. 1929, d. 1997. Þau eignuðust fimm börn. Ingimar lést 28.2. 2011. Merkir Íslendingar Ingimar Ingimarsson Þessi orð góðvinar míns geymast vel í minni, enda alltof sönn og minna á sig nær hvern einn dag og þær fregnir er þeim tengjast eru æv- inlega daprari en flestar aðrar. Annar góðvinur sagði og segir örugg- lega enn í hans skemmtilega spurnarformi: Af hverju er alltaf talað um alls konar afbrot undir rós, þegar áfengið er annars vegar, hvað eru menn að fela þegar stöðugt er rætt um að „grunur“ sé um ölvun. Af hverju er ekki sagt hreint út að ölvun hafi verið ástæða þessa og hins sem um er rætt. Og anzi mikið til í þessu stundum, enda sá ekki að skafa ut- an af hlutunum. Þegar rætt er um helgarnar í höfuðborginni þá er ölvun og afleið- ingar hennar oftast með í fartesk- inu og svo og svo margir sem gist hafa fangageymslur. Ýmis hörmu- leg atvik eiga sér oft samnefnara í því að vegna ölvunar hafi ekki reynst unnt að yfirheyra þennan eða hinn sakir ölvunarástands. Oft- ar en ekki eru ýmis afbrot samofin ölvun, að ekki sé talað um umferð- ina og þann dýra toll sem hún tek- ur, þar er ölvun eða annarlegt ástand af völdum hennar eða ann- arra fíkniefna alltof fyrir- ferðarmikil. Skyldum við ekki hafa heyrt allt- of oft um slysavaldinn fram- úrakstur eða þá árekstur þar sem alvarlegir áverkar eru afleiðingar, jafnvel örkuml eða bani í hræðileg- ustu tilfellunum, með þessari stuttu athugasemd í lokin: Ökumaður er grunaður um ölvun. Og sárastar af öllu eru nauðganirnar, afbrotin skelfilegu sem skilja eftir sig svo djúp og oftast varanleg sár á sál- inni, svo sem margt annað óaft- urkallanlegt eins og slysin eða dauðsföllin. Og skelfi- legar eru fregnirnar um að þolandi hafi ver- ið ófær um að hindra atferli drullusokksins sakir ölvunar eða það sem hræðilegast er þegar hreinlega eru eiturbyrlarar á ferð sem í skjóli ölvunar viðkomandi byrla þeim drykk sem hreinu óm- inni veldur og fram- haldið viðbjóðslegt. Það er því miður sama hvert sem litið er að ölvun skapar alltof oft bölvun eða skyldum við ekki hafa heyrt anzi oft um rætur heimilis- ofbeldis. Hversu oft er það ekki samofið ölvun, þar sem ölvunin er jafnvel æði oft aðalástæðan fyrir slíkum skelfilegum ófögnuði með brotnum eða buguðum fjölskyldum í kjölfarið, upplausn og ógæfu, þar sem börnin hljóta verstu útreiðina, og til verða sár sem seint eða aldrei gróa. Öllu lakara hefur mér alltaf þótt þegar ölvun hefur verið notuð sem afsökun bæði í því sem öðru samanber það sem sagt var oft áður og er eflaust sagt enn, þegar ein- hver afbrot hafa verið framin: Æ, hann var nú fullur greyið. Þá er allt í einu orðin til eins konar réttlæting á ófögnuðinum, næstum sama hvað hefur gerzt. Nóg er sungið að sinni, en gamalt spakmæli segir: Þegar vínið gengur inn þá fer vitið út. Orð að sönnu. Ölvun er bölvun Eftir Helga Seljan Helgi Seljan » Sárastar af öllu eru nauðganirnar, af- brotin skelfilegu sem skilja eftir sig svo djúp og oftast varanleg sár á sálinni, svo sem margt annað óafturkallanlegt. Höfundur er formaður fjölmiðla- nefndar Bindindissamtakanna. Fasteignir   þú það sem    á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.