Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 16
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Undirritaður var um síðustu helgi í
Flatey á Breiðafirði samningur þar
sem Reykhólahreppur gaf bókhlöð-
una í eynni til ríkisins og verður
hún framvegis í umsjón Þjóðminja-
safnsins. Bókhlaðan, sem var
byggð árið 1864, var endurgerð um
1990 á vegum Minjaverndar sem
hefur annast umsjón hússins til
þessa. Nú tekur Þjóðminjasafnið
og þess fólk við keflinu og verður
bókhlaðan hluti af húsasafni þess.
Í húsasafninu eru 62 gamlar
byggingar á 41 stað víða um land
og allar hafa þær, hver á sinn hátt,
sérstöðu í menningarsögu þjóð-
arinnar. Á hverjum stað sinnir
heimafólk daglegri umsjón með
byggingunum, en safnið sinnir við-
haldi og viðgerðum á þeim.
Bókasöfn eru mikilvæg
Bókhlaðan í Flatey á Breiðafirði
er byggð 1864, lítið timburhús,
rétthyrnt, 4,75 m á lengd og 3,43 m
á breidd, eða um 16 fermetrar að
flatarmáli. Húsið var byggt 1864
fyrir tilstilli Brynjólfs Benedikts-
sonar til að hýsa bókasafn Fram-
farastofnunar Flateyjar. Þar var
safnið til húsa í rúm 90 ár, en um
1955 var það flutt í áföngum í húsið
Bjarg. Eftir endurgerðina fyrir um
þrjátíu árum fékk húsið aftur sitt
fyrra hlutverk og þar er í hillum
fjöldi bóka. Upphaflega stóð bók-
hlaðan þar sem kirkjan í Flatey
stendur nú, en um 1925 var hún
flutt nokkra tugi metra til austurs
og kirkjan byggð á grunni hennar.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra veitti bók-
hlöðunni í Flatey viðtöku fyrir
hönd ríkisins. Í ávarpi sínu setti
hún sögu byggingarinnar í sam-
hengi við að Íslendingar hefðu
jafnan verið þjóð bóka og orðs. Að
stofnað hefði verið til bókasafns í
Flatey, þar sem fólk víða að nálg-
aðist lesmál, segði sitt um hve mik-
ilvægar þessar stofnanir væru. Á
líðandi stundu væri það svo sér-
stakt áherslumál sitt í ráðuneyti
menntamála að efla læsi meðal
barna og ungmenna.
Menningarþjóðum vegnar vel
„Börn þurfa að öðlast mikinn og
djúpan lesskilning, ella getur fólk
ekki verið félagslega virkt. Við
þurfum sömuleiðis að leggja rækt
við söguna og menninguna, því
reynslan sýnir að þjóðum sem slíkt
gera vegnar betur en öðrum,“ sagði
menntamálaráðherra í tölu sinni.
Í ávarpi sínu gerði Margrét Hall-
grímsdóttir þjóðminjavörður að
umtalsefni þegar Ólafur Sívertssen
prófastur og Jóhanna Friðrika
Eyjólfsdóttir kona hans stofnuðu
bókasafn árið 1833, sem hlaða var
svo reist yfir árið 1864. Það var ári
eftir að Ffornminjasafnið – forveri
Þjóðminjasafnsins var stofnað. Á
þeim tíma hafi nýir straumar hug-
mynda og bókmennta verið farnir í
nokkrum mæli að berast til Ís-
lands. Þjóðlífið hafi verið að breyt-
ast, sjálfstæðisvitund hafi verið að
aukast og meiri áhersla verið lögð á
menntun og menningu.
„Bókhlaðan er til marks um að
hugmyndastraumar upplýsingar
hafi borist frá Evrópu á 19. öldinni.
Vitnar einnig um mikilvægi mennt-
unar og menningarlífs í þágu fólks
og samfélags á tímum þjóðfélags-
breytinga. Því er bókhlaðan í Flat-
ey í margvíslegu tilliti mikilvæg
viðbót við þann safnkost sem húsa-
safn Þjóðminjasafn Íslands varð-
veitir,“ sagði Margrét.
Bókhlaðan er mikilvæg í húsasafni
Bókhlaðan í Flatey á Breiðafirði sem reist var 1864 afhent Þjóðminjasafninu 16 fermetra bygg-
ing Orð og bækur eru í öndvegi Hugmyndastraumar upplýsingar Sérstaða í menningarsögu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flateyjarhúsin Klausturhólar, kirkjan og Bókhlaðan lengst til hægri.
Afhent Frá vinstri: Tryggvi Harðarson sveitarstjóri Reykhólahrepps, Lilja
Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja-
vörður og Þorsteinn Bergsson framkvæmdastjóri Minjaverndar.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
Þorpið í Flatey er verndarsvæði í byggð. Ákvörðun þar um staðfesti Lilja
Alfreðsdóttir menntamálaráðherra þegar hún heimsótti Flatey á dög-
unum, jafnhliða því að hún veitti Bókhlöðunni viðtöku fyrir hönd ríkisins.
Markmiðið með þessari ákvörðun er að stuðla að verndun sögulegrar
byggðar, en svæðið nær til þorpsins sjálfs með sínum 40 húsum, sem
mörg eru byggð í kringum aldamótin 1900 og bera glöggt svipmót bygg-
ingarhefða þess tíma. Einnig eru á verndarsvæðinu mýrar, strönd og
svæði umhverfis Flateyjarkirkju.
Verndarsvæði í byggð á Íslandi eru nú þegar, að Flatey meðtalinni,
Garðahverfi á Álftanesi, Borðeyri og gömlu bæjarhlutarnir á Siglufirði og
Djúpavogi. Tillögur um ný verndarsvæði, sem bíða staðfestingar ráð-
herra, eru Vík í Mýrdal, Eyrarbakki, Hofsós, Sauðárkrókur, Sandgerði og
byggðin í fremsta hluta Skorradals. Fleiri tillögur eru í vinnslu.
FLATEY ER VERNDARSVÆÐI Í BYGGÐ
Verndarbyggð Frá vinstri eru húsin Vorsalir, Ásgarður og Vogur.
Svipmót gamalla hefða
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Þjónustustöðvar N1 um allt land.
Axelsbúð Akranesi
Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“