Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ólykt verður ekki sterkari þótt
kjúklingabú Matfugls á Hurðar-
baki í Hvalfjarðarsveit verði
stækkað að sögn Sveins Jónssonar,
framkvæmdastjóra Matfugls.
Hann segir fyrirtækið munu geta
komið í veg fyrir það með því að
halda undirburði þurrum. Hann
segir að lykt fylgi þó ávallt land-
búnaði.
Skipulagsstofnun mæltist til
þess að búið yrði stækkað í áföng-
um þannig að meta mætti hver
lyktarmengunin yrði áður en fleiri
hús yrðu byggð. Sveinn segir þetta
í samræmi við hugmyndir fyrir-
tækisins. „Svona framkvæmdir eru
yfirleitt gerðar í hlutum og fyrstu
hugmyndir eru um að byggja
þarna tvö hús í einu. Við erum með
bú á Melavöllum í þeirri stærð og
þar hafa aldrei neinar kvartanir
borist vegna lyktar,“ segir hann og
nefnir að deiliskipulag sé í gildi í
Hvalfjarðarsveit þar sem gert sé
ráð fyrir fjórum 2.500 fermetra
húsum.
„Við erum aðeins að aðlaga það
og koma til móts við ýmis sjón-
armið með því að minnka það
byggingarmagn sem deiliskipulag-
ið leyfir um rúmlega 25% og
byggja hús sem eru þá um 1.800
fermetrar,“ segir Sveinn, en gangi
áformin um byggingu fjögurra
húsa eftir yrði kjúklingabúið
stærsta bú Matfugls að öðru
óbreyttu. „Við erum með bú á Kjal-
arnesi sem er u.þ.b. 130 þúsund
kjúklingastæði. Eins og staðan er í
dag er kjúklingabúið á Hurðarbaki
rétt rúmlega 60% af því sem það
er,“ segir Sveinn, en þetta eru nú
tvö stærstu kjúklingabú Matfugls.
Besta fáanlega tækni
Í áliti Skipulagsstofnunar kemur
fram að neikvæðustu áhrifin af
stækkuninni séu vegna ólyktar.
Sveinn segir að gríðarlega mikla
loftræstingu þurfi í öll kjúklinga-
hús. „Þá þarf að koma loft inn í þau
og út úr þeim líka. Til að halda lykt
í lágmarki er það númer eitt, tvö
og þrjú, að það sé ekki bleyta undir
fuglinum. Í húsunum sem við
byggjum er gólfhiti sem tryggir
það betur. Við reynum að halda
þessu eins þurru og hægt er og
veljum bestu fáanlegu tækni til
þess. Þannig höldum við lyktinni í
lágmarki,“ segir hann og bendir á
að öllum greinum landbúnaðar
fylgi lykt.
„Þess vegna er hann staðsettur
úti í sveitum. Við erum með kjúk-
lingabú í dag þar sem eru um 130
þúsund kjúklingastæði. Þar hefur
aldrei verið kvartað yfir lykt og
heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
aldrei borist kvartanir. Ég held að
við höfum gert mjög vel í því að
halda þessu í lágmarki,“ segir
hann. „Það verður ekki sterkari
lykt þó að við bætum við þessum
húsum, hún er alltaf til staðar og
er minni en menn gera sér grein
fyrir í kjúklingarækt. Með því að
halda undirburðinum þurrum kem-
ur maður í veg fyrir lyktina,“ segir
hann.
Lyktin ekki sterk-
ari við stækkun
Mikla loftræstingu þarf í kjúklingabú
er sjálfboðaliði sem veitir þeim ým-
iss konar stuðning, svo sem í hús-
næðisleit, við atvinnuumsóknir, end-
urskoðun fjármála og að sækja fundi
hjá félagsráðgjafa. Sigríður Ella
segir að félagsvinur hitti fanga
nokkrum sinnum meðan á afplánun
stendur og þeir gera með sér plan
sem svo er unnið að þegar viðkom-
andi lýkur afplánun. „Sjálfboðalið-
arnir skuldbinda sig í árs samband
og það getur verið lengra ef vin-
skapur myndast þeirra á milli.
Fangar hafa tekið þessu ótrúlega vel
og eru duglegir að sækja um. Þeir
eru duglegir að spyrja um þetta
verkefni, það vinnur með okkur.“
hdm@mbl.is
efni sem eru að byrja og þróast. Til
að það þróist í rétta átt þurfum við
fleiri samstarfsaðila með það sam-
eiginlega markmið að bæta úrræði
og stuðning sem er í boði þegar
fangelsisvist lýkur,“ segir Sigríður
Ella.
Umræddur stuðningur er á hönd-
um sjálfboðaliða og er hann tvíþætt-
ur. Annars vegar er opið hús hjá
Rauða krossinum í Kópavogi á mið-
vikudagskvöldum. Þar geta fyrrver-
andi fangar fengið ýmsar upplýs-
ingar um réttindi sín, hlýtt á
fræðsluerindi og ekki síst fengið fé-
lagsskap fólks með svipaða reynslu.
Hins vegar geta þeir sem eru að
ljúka afplánun sótt um félagsvin sem
„Það vantar úrræði fyrir fanga sem
eru að ljúka afplánun. Það hefur
sýnt sig að mikilvægt er fyrir þá að
fá stuðning til að koma út í sam-
félagið aftur,“ segir Sigríður Ella
Jónsdóttir, verkefnastjóri yfir verk-
efninu Félagsvinir eftir afplánun
sem nýlega var sett á fót hjá Rauða
krossinum í Kópavogi.
Hugmyndin með verkefninu er að
veita föngum sem hafa lokið af-
plánun stuðning og hjálp við að fóta
sig á ný í samfélaginu. Verkefnið er
unnið eftir norskri fyrirmynd og í
samstarfi við Afstöðu og Fangels-
ismálastofnun hér á landi.
„Verkefnið fer vel af stað en það
gengur hægt eins og með flest verk-
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Samvera Félagsvinir Rauða krossins hafa það hlutverk að veita föngum stuðning eftir að þeir ljúka afplánun.
Veita föngum stuðning
eftir að afplánun lýkur
Verið velkomin í glæsilega sýningaríbúð
Breiðakri 4 íbúð merkt 104
Guðbjörg Guðmundsdóttir
löggiltur fasteignasali
gudbjorg@manalind.is
sími: 899 5533
Thelma Víglundsdóttir,
löggiltur fasteignasali
thelma@manalind.is
sími: 860 4700 www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020
Sölusýning
Breiðakur 2-4 Garðabæ
Laugardaginn 24. ágúst frá 13:00-14:00
Sunnudaginn 25. ágúst frá 13:00-14:00
Nýtt átta íbúða fjölbýli með lyftu.
Þriggja og fjögurra herbergja íbúðir, 122-138 fm.
Verð frá 65,9 millj.
Öllum íbúðum fylgja stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar,
fullbúnar án gólfefna.