Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019 karakter_smaralind verslunin.karakter LAUGAVEGI 26 NÝJAR HAUSTVÖRUR FRÁ ...Stemning á Menningarnótt TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Þær Sólveig Kristjánsdóttir (Kælan mikla og sóló) og Kinnat Sóley (grafískur hönnuður) stofnsettu Myrkfælni árið 2017. Tilgangurinn með framtakinu var að kynna ís- lenska neðanjarðartónlist, heima og ekki síst erlendis, með útgáfu á tímariti, tónlist og fleiru. Í raun að koma á nokkurs konar tengingu á milli íslensku neð- anjarðarsenunnar og þeirra sem í gangi eru í öðrum löndum. Þær stöll- ur hafa staðið við þær yfirlýsingar með sóma og nú um helgina léku fimm íslenskir tón- listarmenn á sænsku hátíðinni Ka- labalik På Tyrolen í Alvesta. Á Myrkfælni-kynningarkvöldinu („showcase“) komu fram þau Coun- tess Malaise, Sólveig Matthildur, Dulvitund, madonna + child og Dis- cipline; allt virkir aðilar í íslensku neðanjarðarsenunni. Flest tengjast fagurfræðilega inn í þessa síðgota- og kuldabylgju sem Kælan mikla tilheyrir, þó að allir séu að sjálf- sögðu með sín tilbrigði við það. Á kynningarkvöldinu (sem bar hið fróma nafn „Djävla showcase“) kom þriðja útgáfa MYRKFÆLNI, MYRKFÆLNI #3, út í formi veg- legrar safnkassettu með íslenskum Skuggabaldrar skunda hjá jaðartónlistarmönnum. Með kass- ettunni fylgir einnig smátímarit, límmiðar og veggspjald (einnig er hægt að nálgast tónlistina á myrkfaelni.bandcamp.com.). Það sem áður hefur verið gert er útgáfa tímarita en tvö tölublöð MYRKFÆLNI tímaritsins hafa komið út áður og með seinna tölu- blaðinu fylgdi safnkassetta. Tónlist fylgdi báðum ritum og má nálgast hana á Bandcamp. MYRKFÆLNI hefur unnið með hátíðinni Kalaba- lik På Tyrolen síðan árið 2017 að ýmsum viðburðum en árið 2018 hélt MYRKFÆLNI utan um smá- tímarit sem var skrifað, framleitt og dreift daglega á meðan á hátíð- inni stóð. Hátíðin einblínir á síð- pönk, gotatónlist og slíkt og Myrk- fælni því á algerum heimavelli. Margir listamenn sem spilað hafa á hátíðinni hafa orðið þekktir innan þessarar tilteknu senu og sem dæmi spilaði Hatari sína fyrstu tón- leika utan Íslands á hátíðinni í fyrra. Pistilritari vonar eðlilega að þessum skuggalegu fulltrúum Fróns vegni vel en hátíðin er u.þ.b. hálfnuð er þú, lesandi góður, lest þetta yfir kolsvörtum kaffiboll- anum. Ég get hins vegar rýnt að- eins í tónlistina sem fyllir MYRK- FÆLNI #3 og kennir þar ýmissa grasa. Discipline, sem hefur verið að hasla sér völl nú að undanförnu opnar safnið með drungalegu tölvupoppi sem hefði sómt sér vel á Mute-merkinu c.a. 1984. Skaði og Holdgervlar sigla um svipuð mið, svona „týndur á göngum geð- veikrahælis um miðnætti“ stemn- ing. Countess Malaise er með mjög flott gotarapp, Sólveig Matthildur leggur til titillag hinnar frábæru sólóplötu sinnar Constantly in Love og Dulvitund hrærir í Vangelis- lega hljóðmottu. Une Misere og Great Grief sjá um rokkið og hin dásamlega, kornunga Spaðabani leggur til tónleikaútgáfu af laginu „Jarðarberjaskyr“. Stórkostlegt lag! Hið dularfulla madonna + child snarar upp kunnuglegum Resi- dents innblásnum hljóðheimi (elska þetta dæmi) og svo kemur óvænt útspil í endann. Lucy in Blue, sem er undir ríkum áhrifum frá hippa- og progrokki áttunda áratugarins leikur lagið „Respire“. Lagið er hins vegar með þeim hætti að það passar fullkomlega við restina. Melankólískt og drungalegt og slaufar þessu fína safni með glans. Hlutur þeirra hér er kannski til marks um smæðina hér á landi, það væri aldrei hægt að fylla svona „spólu“ af íslenskri síðgotatónlist eingöngu, staðreynd sem opnar hins vegar á nauðsyn þess að vera opin fyrir alls konar. Til að neð- anjarðarsenur geti þrifist verða þær að vera sýnilegar að einhverju leyti og Myrkfælni hefur sannað sig sem öflugan vita að því leytinu til. » Tilgangurinn meðframtakinu var að kynna íslenska neð- anjarðartónlist, heima og ekki síst erlendis, með útgáfu á tímariti, tónlist og fleiru. Dreifingarfyrirtækið Myrkfælni hefur stutt veglega við íslenska jaðartónlist síðan 2017. Þriðja tónlistarsafn þess er nú komið út auk þess sem fimm ís- lenskir listamenn léku á þess vegum í Svíþjóð nú um helgina. Tvíeyki Sólveig Kristjánsdóttir og Kinnat Sóley standa að Myrkfælni. Óperan The Ra- ven’s Kiss, eftir Evan Fein og Þorvald Davíð Kristjánsson, var frumflutt í Herðubreið á Seyðisfirði í gær og verður önnur sýning á henni í dag. Hópurinn sem stendur að henni hefur dvalið í tvær vikur á Seyðisfirði við æfingar undir stjórn Fein en hugmyndina að óperunni áttu söngkonan Berta Dröfn Óm- arsdóttir söngkona og Þorvaldur Davíð leikari. Fimm einsöngvarar og lítil hljómsveit flytja óperuna sem á sér stað í litlu sjávarþorpi og segir af framandi og fagurri konu sem kemur í þorpið og breytist við það líf, hegðun og hugsun heima- manna. Óperan er í tveimur hlutum og samdi Fein tónlistina en Þor- valdur skrifaði sögu og texta. Þeir kynntust í námi við listaskólann Ju- illiard í New York þar sem Fein gegnir stöðu prófessors. Söngvarar í óperunni eru Bergþór Pálsson, Berta Dröfn Ómarsdóttir, Egill Árni Pálsson, Hildur Evlalía Unn- arsdóttir og Ólafur Freyr Birki- sson. Berta Dröfn Ómarsdóttir Ópera frumflutt á Seyðisfirði Jóel Pálsson saxófónleikari og Dav- íð Þór Jónsson píanóleikari leika á síðustu stofutónleikum sumarsins á Gljúfrasteini á morgun kl. 16. Á efnisskránni verða frumsamin verk eftir þá félaga og verður eitt þeirra frumflutt, verk eftir Davíð sem hann samdi sérstaklega út frá verk- um Laxness fyrir þetta tilefni. Aðgöngumiðar eru seldir í safn- búð Gljúfrasteins á tónleikadegi og kosta kr. 2.500 en frítt er inn fyrir börn á leikskólaaldri. Frumflytja verk tengt Laxness Samstarfsmenn Davíð Þór og Jóel. Danski kammerkórinn Det Unge Vokal Ensemble er á ferðalagi um Ísland og Grænland og heldur tón- leika í Háteigskirkju á morgun, 25. ágúst, kl. 19.30. Kórfélagar eru á aldrinum 19-32 ára og eru flestir í söng- eða hljóðfæranámi. Á efnis- skrá tónleikanna verða flutt nor- ræn verk og þá m.a. eftir Vagn Holmboe og Edvard Grieg. Einnig verða flutt verk eftir íslensk, sænsk og grænlensk tónskáld. Hluti efnis- skrárinnar er dönsk þjóðlög í ný- stárlegum útsetningum, að því er fram kemur í tilkynningu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Danskur kór í Háteigskirkju Suðurafríska hipphopptvíeykið Die Antwoord, skipað Ninju og Yoland Visswe, hefur verið afbókað á tvær stórar tónlistarhátíðir í Kentucky og Las Vegas í Bandaríkjunum eft- ir að á netinu var birt myndband af Ninju og Yoland þar sem þau veit- ast að plötusnúðnum Andy Butler úr Hercules & Love affair af því að hann er samkynhneigður. Atvikið sem um ræðir átti sér stað á tónlist- arhátið í Ástralíu árið 2012. Ninja hefur haldið fram sakleysi Die Antwoord og sagt að ástæða slagsmálanna hafi verið að Butler „abbaðist upp á þau“ en hafi ekkert haft með kynhneigð hans að gera. Afbókuð vegna hatursárásar Morgunblaðið/Eggert Á Íslandi Die Antwoord kom fram á Secret Solstice 2016 með skrautlegum dansara. Síðustu tónleikarn- ir í tónleikaröð til styrktar Hall- grímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði fara fram á morg- un kl. 16. Á þeim koma fram Halldóra Eyjólfs- dóttir mezzósópr- an, Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir sópran, Sigþrúður Erla Arnardóttir alt, Júlíana Rún Indriðadóttir pí- anóleikari og Sigrún Mary Mcor- mick víóluleikari. Á efnisskránni verða verk eftir Johannes Brahms, Richard Wagner og Edvard Grieg. Lokatónleikar haldnir í Saurbæ Edvard Grieg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.