Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 49
Ásgeir þyrfti að komast að minnsta
kosti í átta manna úrslit á einhverju
þessara móta og vona að keppnin sé
við menn sem hafa tryggt sér farseð-
ilinn á ÓL.
Auk verðlauna í handbolta og
frjálsíþróttum hefur Ísland átt verð-
launahafa á ÓL í júdó, Bjarna Frið-
riksson, sem vann brons í Los Angel-
es 1984. Júdókapparnir Sveinbjörn
Iura og Egill Blöndal vinna báðir að
því að komast á ÓL en Sveinbjörn
hefur lengi dreymt um að keppa á
leikunum í Tókýó enda með sterkar
rætur til Japans, þar sem hann bjó
fyrstu ár ævi sinnar og hefur síðar
stundað nám og dvalið í æfingabúð-
um. Þeir þurfa hins vegar að hækka
sig um að minnsta kosti 30-40 sæti á
heimslista, Sveinbjörn í -81 kg flokki
og Egill í -90 kg flokki. Þar skiptir
sköpum að ná góðum árangri á HM
sem hefst í Tókýó á morgun.
Aðeins 18 efstu á heimslista í hverj-
um þyngdarflokki júdósins komast
beint á ÓL, en hver þjóð fær að há-
marki eitt sæti. Hins vegar er hægt
að ná inn í gegnum „álfukvóta“ en sú
staða er flókin og ræðst líklega ekki
fyrr en á lokasprettinum á næsta ári.
Fyrst Íslendinga í þríþraut?
Guðlaug Edda Hannesdóttir rær
að því öllum árum að verða fyrst Ís-
lendinga til að keppa í þríþraut á Ól-
ympíuleikum og á raunhæfa mögu-
leika á því. Alls fá 55 konur og 55
karlar keppnisrétt í þríþraut í Tókýó,
heimslistinn sem birtist 11. maí 2020
ræður, og gilda takmarkanir um
fjölda frá hverju landi (hámark tveir
frá hverju landi, en þó þrír ef þeir/
þær eru öll í hópi 30 efstu á heims-
lista). Romana Gajdosová frá Slóvak-
íu er síðust inn á leikana miðað við
núverandi stöðu, þrátt fyrir að vera í
77. sæti heimslista. Guðlaug Edda er í
102. sæti.
Valgarð og Irina horfa til ÓL
Valgarð Reinhardsson og Irina
Sazonova freista þess að þræða erfiða
leið alþjóðafimleikasambandsins inn
á leikana en sambandið hefur fengið
mikla gagnrýni fyrir flóknar þátt-
tökureglur. Í stuttu máli fá alls 100
konur og 100 karlar þátttökurétt til
að keppa á ÓL. Tólf efstu liðin á HM í
Stuttgart í október vinna sér inn sæti
fyrir alls 48 konur og 48 karla. Hægt
er að komast inn á leikana með sigri á
einstökum áhöldum og í fjölþraut á
heimsbikarmótaröð, eða með því að
vinna álfukeppnir, en eftir standa
rúmlega 40 sæti hjá hvoru kyni sem
fara til þeirra sem bestum árangri ná
í fjölþraut í Stuttgart en tilheyra ekki
liði sem fær farseðil á ÓL. Þar liggur
helsti möguleiki Valgarðs og Irinu.
Valgarð hefur náð flottum árangri
síðustu misseri, meðal annars inn í
úrslit í stökki á EM í fyrra og í úrslit í
gólfæfingum á heimsbikarmóti í sum-
ar, auk þess að vinna sér inn sæti á
Evrópuleikunum í sumar, og ríkir
ákveðin bjartsýni um að hann komist
til Tókýó. Óvissan er líklega talsverð
hjá Irinu sem er að komast af stað
eftir barneignir en stefnir á HM og
sterkt heimsbikarmót í september.
Ísland á svo líka mikið í Eyþóru El-
ísabetu Þórsdóttur sem keppti fyrir
Holland á ÓL í Ríó 2016. Eyþóra, sem
á íslenska foreldra, hefur glímt við
meiðsli og því ekki keppt eins mikið
og hún vildi en stefnir á að keppa fyr-
ir Holland á HM í Stuttgart þar sem
þær hollensku verða væntanlega í
harðri baráttu um liðasæti á ÓL.
Af Crossfitleikum í ÓL-baráttu
Þuríður Erla Helgadóttir stefnir á
að verða fyrst íslenskra kvenna til að
keppa í lyftingum með því að ná einu
af 14 sætum í -59 kg flokki. Lyft-
ingakonur þurfa að keppa á samtals
sex mótum yfir þrjú mismunandi
tímabil, og gilda fjögur bestu mótin á
lista sem birtur verður 30. apríl. Átta
efstu á þeim lista í hverjum flokki
komast á Ólympíuleikana, að há-
marki ein frá hverri þjóð, og við bæt-
ist svo ein frá hverri af fimm heims-
álfum auk eins gestgjafa eða „bónus-
keppanda“ (wild card). Þuríður er
núna í 38. sæti í sínum flokki en stað-
an blekkir því keppendur eru búnir
með mismörg mót og hefur Þuríður
aðeins klárað tvö.
HM í Taílandi í september skiptir
miklu máli í þessu sambandi. Ef Þur-
íður nær að lyfta 87-90 kg í snörun og
108-110 kg í jafnhendingu á HM auk
eins móts í viðbót ætti hún að komast
á Ólympíuleikana. Það er raunhæft
markmið (Þuríður snaraði 87 kg á
EM í apríl og hefur best jafnhent
2108 kg á HM 2017) setji Þuríður
lyftingarnar í forgang núna þegar
Crossfit-leikarnir eru að baki.
Badmintonspilarinn Kári Gunnars-
son hefur horft til Tókýó og þyrfti þá
að verða einn af 38 keppendum í ein-
liðaleik karla. Að hámarki einn kepp-
andi frá hverri þjóð kemst inn nema
þjóð eigi tvo keppendur í hópi 16
efstu á heimslista en þá fá þeir báðir
sæti á leikunum. Sem stendur má
segja að Artem Pochtarov frá Úkra-
ínu sé síðasti maður inn en hann er í
99. sæti á heimslista. Kári er í 162.
sæti en hefur hæst náð 138. sæti.
Fleiri mætti nefna hér enda verður
svona yfirlit sjálfsagt seint tæmandi.
eldurinn lýsa?
Ljósmynd/Simone Castrovillari
Fyrstur Anton Sveinn McKee
synti inn á Ólympíuleikana
með frammistöðu sinni á HM í
Gwangju í sumar.
Áætlaður keppendafjöldi
Fjöldi Íslendinga í hverri
grein frá upphafi
Íþróttagreinar Karlar Konur Samtals Karlar Konur Samtals
Frjálsar íþróttir 988 912 1.900 52 11 63
Sundíþróttir 664 746 1.410 35 24 59
Hjólreiðar 300 228 528
Róður 263 263 526
Fótbolti 288 216 504
Júdó 193 193 386 9 0 9
Hokkí 192 192 384
Blak 192 192 384
Skotfi mi 180 180 360 3 0 3
Körfubolti 176 176 352
Siglingar 175 175 350 3 0 3
Handbolti 168 168 336 74 0 74
Kanó- og kajakróður 164 164 328
Fimleikar 114 210 324 1 1 2
Ruðningur 144 144 288
Glíma 192 96 288 2 0 2
Hnefaleikar 206 80 286
Skylmingar 106 106 212
Hestaíþróttir 100 100 200
Lyftingar 98 98 196 5 0 5
Badminton 86 86 172 2 2 4
Borðtennis 86 86 172
Tennis 86 86 172
Bogfi mi 64 64 128
Taekwondo 64 64 128
Golf 60 60 120
Þríþraut 55 55 110
Nútíma fi mmtarþraut 36 36 72
Nýjar greinar
Hafnabolti/mjúkbolti 144 90 234
Karate 40 40 80
Hjólabretti 40 40 80
Klifur 20 20 40
Brimbretti 20 20 40
Samtals 5.704 5.386 11.090 186 38 224
Ólympíuleikarnir í Tókýó 2020
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
Adam Árni Róbertsson og Rúnar Þór
Sigurgeirsson hafa framlengt samn-
inga sína við knattspyrnudeild Kefla-
víkur. Gera leikmennirnir þriggja ára
samning en þeir hafa leikið stórt hlut-
verk með liðinu í 1. deildinni, Inkasso-
deildinni, í sumar.
Adam Árni hefur skorað fimm mörk
í sjö leikjum í sumar. Þá hefur Rúnar
Þór komið við sögu í ellefu deild-
arleikjum með liðinu í sumar þar sem
hann hefur skorað þrjú mörk.
Naby Keita, leikmaður enska knatt-
spyrnufélagsins Liverpool, er nú að
glíma við meiðsli í mjöðm. Keita hefur
ekkert spilað með Liverpool í upphafi
leiktíðar en hann hefur verið óheppinn
með meiðsli undanfarna mánuði. Keita
mætti meiddur til leiks til Liverpool
eftir Afríkukeppnina en náði sér góð-
um. Hann meiddist svo á nýjan leik
þegar hann var að koma sér af stað
með Liverpool á undirbúnings-
tímabilinu og nú er óvíst hversu lengi
hann verður frá.
Eitt
ogannað
ÚTILJÓSADAGAR
afsláttur af völdum
útiljósum
50%
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18
Laugard. kl. 10–16
Sunnud. kl. 12–16
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla:
Norðurálsvöllur: ÍA – ÍBV .....................L16
Greifavöllurinn: KA – KR .......................S16
Kaplakrikavöllur: FH – Breiðablik...S18:15
Víkingsvöllur: Víkingur – Grindavík.S19:15
Úrvalsdeild kvenna:
Þórsvöllur: Þór/KA – Selfoss..................S14
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Stjarnan .S14
Nettóvöllurinn: Keflavík – KR ...............S14
Würth-völlurinn: Fylkir – Valur.............S14
Hásteinsvöllur: ÍBV – HK/Víkingur......S14
1.deild karla:
Þórsvöllur: Þór A. – Leiknir R. ..............L16
Rafholtsvöllur: Njarðvík – Magni..........L16
1.deild kvenna:
Extra-völlurinn: Fjölnir – ÍR .................L14
Mustad völlurinn: Grindavík – Tindastóll
...................................................................L16
UM HELGINA!