Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Prag Ein fegursta borg Evrópu! 26. september í 4 nætur Verð frá kr. 69.995 Mannbjörg við Gíbraltarsund  Íslendingar komu karlmanni til bjargar suður af Spáni  Var einn á floti í björgunarvesti á miðju hafi Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Þrír Íslendingar komu til bjargar manni sem var einn á floti rúmar fjórar sjómílur vestur af Tarifa sem er syðsti oddi Spánar. Mennirnir þrír, Valgarður Unnar Arnarson, Markús Pétursson skipstjóri og Þórður Axel Ragnarsson, ráku fyrst augun í rekald sem að sögn Þórðar leit út við fyrstu sýn eins og strand- leikfang. „Einni eða tveimur mínútum síðar sjáum við á hitt borðið, appelsínugul- an hlut. Þetta hefur verið í um þrjú hundruð metra fjarlægð þannig að við gátum skoðað þetta í kíki. Þetta var ekki mjög greinilegt en Markúsi fannst ástæða til þess að kíkja betur á þetta. Það voru felld segl og sett í gang vél og svo kom í ljós að þarna var maður í björgunarvesti,“ segir Þórður í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að um leið og þá bar að hafi færst líf í manninn sem reyndi að basla í áttina að bátnum. Hlúðu að manninum í bátnum Þeim tókst að koma manninum um borð og segir Þórður að hann hafi verið mjög þrekaður, aðframkominn og skolfið gríðarlega. „Við skárum svo af honum björg- unarvestið og fórum með hann niður í setustofu þar sem við hlúðum að honum, færðum hann úr blautum fötum og gáfum honum vatn og ein- hverja næringu. Lögðum hann á bekkinn í setustofunni og breiddum yfir hann svefnpoka. Hann gat ekki með neinu móti gert sig skiljanlegan fyrir skjálfta,“ segir Þórður. Þeir höfðu samband við Tarifa og til- kynntu björgun mannsins. Í kjölfar- ið sigldu þeir til móts við sjóbjörg- unarbát sem tók við manninum. „Hann var skelkaður og kaldur og ekkert nema óvissa fram undan,“ segir Þórður. „Þarna vorum við þrír karlar á fyrsta farrými tilverunnar að njóta ferðalagsins og láta draumana ræt- ast, en hann á síðustu mínútum eða klukkustundum tilveru sinnar. Hafði lagt í nánast vonlaust ferðalag í von um betra líf í heimi gríðarlegrar mis- skiptingar. Hálfsúrrealískt að hafa átt líf sitt undir því að einhverjir draumóramenn sem voru að leika sér ættu leið hjá þeim stað þar sem hann var við það að láta lífið,“ segir Þórður að lokum. Ljósmynd/ Þórður Axel Ragnarsson Mannbjörg Sjóbjörgunarbáturinn sem sótti manninn í bát Íslendinganna. Ferðamenn streymdu enn um aust- asta hluta Reynisfjöru í gær, á svæði sem hefur undanfarið verið lokað af vegna skriðuhættu. Vakin var at- hygli á þessu í facebookhópnum Bakland ferðaþjónustunnar, en sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er búið að girða hættu- svæðið í fjörunni af á nýjan leik. Austasti hluti fjörunnar hefur verið lokaður síðan 20. ágúst, en þá féll stór skriða úr Reynisfjalli. Lögregla hefur þurft að setja upp nýjan lokunarborða daglega, þar sem sjórinn hrifsar borðann ítrekað með sér. Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að reynt sé að halda í horfinu eins og hægt er. Hann segir einnig að unnið sé að því að finna einhverja varanlegri lausn til lokunar á fjörunni, sem dugi alla- vega daginn. Áætlað rúmmál skriðunnar sem féll í Reynisfjöru er 25.000 rúmmetr- ar, en skriðan er sú þriðja sem fellur í fjöruna á 10 árum. Mælingar á vett- vangi benda til þess að meginþorri efnisins hafi komið úr móbergi í 60 til 100 metra hæð, en breidd skriðunn- ar var um 100 metrar og hljóp hún 50 metra frá rótum fjallsins út í sjó. Ekki er vitað hvað kom skriðunni af stað en þekkt er að skriður falli úr Reynisfjalli, sérstaklega í austur- hluta fjallsins. Minna er um um- merki um skriður og grjóthrun í suð- urhlíð fjallsins við Reynisfjöru, en þar er úthafsaldan mjög öflug og hreinsar hratt ummerki um hrun. Árið 2005 féll allstór skriða í Reynisfjöru, vestan við þá sem féll 20. ágúst. Þá varð hrun úr þaki Hálsanefshellis árið 2012. en engum varð meint af. Einnig falla stakir steinar, sem valdið geta slysum, úr hlíðinni með reglulegu millibili. Ferðamenn stöðugt í Reyn- isfjöru þrátt fyrir hættuna  Sjórinn hrifsar til sín lokunarborða lögreglunnar Morgunblaðið/Hallur Már Reynisfjara Skriðan sem féll úr Reynisfjalli er mjög stór sem sjá má. Rekstrarhalli Landspítalans sam- kvæmt hálfsársuppgjöri spítalans nam 2,4 milljörðum króna og er áætlað að hann verði 4,5 milljarðar á árinu að óbreyttu. Þetta staðfesti Ólafur Darri Andrason, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Land- spítala, í samtali við mbl.is í gær- kvöldi. Áður greindi mbl.is frá því að heimildir hermdu að halli spítalans væri um fimm milljarðar á árinu að óbreyttu eða sem nemur 7,8%. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, var spurður í kvöldfréttum RÚV 15. ágúst hvort stefndi í fimm millj- arða halla, en því neitaði forstjór- inn. Þá hefur forstjórinn sagt frá því á vef spítalans að fjárhagsstaðan sé alvarleg og þörf sé á að „þrengja verulega að rekstrinum“ vegna þessa. Ólafur Darri segir áætlun spítalans upp á 4,5 milljarða króna rekstrarhalla aðeins taka til þekktra stærða og að ekki sé tekið tillit til mögulegra fjárheimilda sem eru enn til skoðunar. Þá er beðið svars yfirvalda vegna ýmissa fjármögnunarþátta. Hallinn verður 4,5 milljarðar  Þrengja þarf að rekstri Landspítalans Langdræg bandarísk sprengjuflugvél, af gerð- inni Northrop B-2 Spirit, lenti á Keflavíkur- flugvelli um klukkan 13 í gær. Var vélinni flogið hingað til lands frá Bretlandi og millilenti hún í Keflavík til að taka eldsneyti, en samkvæmt upp- lýsingum frá Landhelgisgæslu Íslands var þotan við æfingar á Norður-Atlantshafi. Sprengjuvélin hélt af landi brott um klukkan 15. Ekki er vitað til þess að flugvél af þessari gerð hafi sótt Ísland heim áður. B-2 er ein fullkomnasta sprengjuvél Bandaríkjamanna, torséð á ratsjám og fyrst hönnuð til að bera kjarnavopn. Bandarísk B-2 lenti á Keflavíkurflugvelli Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands Sprengjuvélin var upphaflega hönnuð til að bera kjarnavopn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.