Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 119.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Aðventan er tími ljóss og friðar. Ilmurinn af jólaglöggi og
brenndum möndlum liggur í loftinu.Við höldum til Wiesbaden,
þar sem upplýstar stjörnur svífa yfir litríkum jólahúsum á
jólamarkaðnum.Við förum í dagsferð til Rüdesheim þar sem
hinn skemmtilegi jólamarkaður þjóðanna er og getum fylgst
með hvernig handverk frá hinum ýmsu þjóðum er unnið.
Jólaferð tilWiesbaden
5. - 8. desember
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
AUKA BROTTFÖR
Umræða um innleiðingu þriðja orku-
pakkans hófst á Alþingi klukkan
10:30 í gærmorgun og stóð yfir í
rúma níu klukkutíma. Fyrir daginn í
gær var umræðan um orkupakkann
sú lengsta í sögu Alþingis en málið
hefur nú verið rætt í yfir 150 klukku-
stundir. Þingmenn Miðflokksins og
Flokks fólksins hafa farið mikinn í
gagnrýni sinni á þriðja orkupakkan-
um og var gærdagurinn engin und-
antekning.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra sagði ekkert nýtt hafa komið
fram í máli andstæðinga innleiðingar
þriðja orkupakkans á Alþingi í gær.
Hún sagðist hafa orðið undrandi
þegar hún heyrði Sigmund Davíð
Gunnlaugsson, formann Miðflokks-
ins, spyrja utanríkisráðherra um
morguninn hvernig stæði á því að
hann væri ekki kominn með ný gögn
og nýjar upplýsingar
„Ég taldi alveg fullljóst að það
hefði legið fyrir hér frá upphafi að
við teldum málið fullrætt og fullreif-
að en hins vegar vildum við gefa and-
stæðingum málsins færi á að koma
fram með ný gögn,“ sagði Katrín á
Alþingi. Hún nefndi að hvorki í með-
förum utanríkismálanefndar né í
umræðunni á Alþingi í gær hefði ver-
ið sýnt fram á nein ný gögn eða nýjar
upplýsingar komið fram. Bætti hún
við að fræðimenn hefðu verið sam-
mála sjálfum sér frá því í vor.
Sagði þingmenn Miðflokksins
snúa út úr orðum fræðimanna
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
formaður utanríkismálanefndar Al-
þingis, sagði þingmenn Miðflokksins
hafa snúið út úr niðurstöðu fræði-
manna um þriðja orkupakkann.
„Að leggja þessum fræðimönnum
það í munn að þeir telji þetta hafa
ekkert gildi og ekkert vægi er al-
gjörlega fáránlegt,“ sagði Áslaug
Arna í andsvari sínu við ræðu Ólafs
Ísleifssonar, þingmanns Miðflokks-
ins, um þriðja orkupakkann á Al-
þingi. Þar sagði hann að ef ekki væri
vilji fyrir því að fella málið á Alþingi
ætti að fresta því eða skoða það nán-
ar og hlusta á rödd þjóðarinnar.
Áslaug Arna sagðist velta fyrir sér
hvernig það væri að velja ákveðnar
setningar úr áliti þeirra Stefáns Más
Stefánssonar og Friðriks Árna Frið-
rikssonar Hirst um orkupakkann og
komast að annarri niðurstöðu en er
að finna í álitinu. „Það þarf ekki ann-
að en að lesa niðurstöður álitsins til
að sjá að farið var eftir áliti Stefáns
Más og Friðriks Árna Hirst,“ sagði
Áslaug og nefndi einnig að snúið
hefði verið út úr orðum Davíðs Þórs
Björgvinssonar, prófessors í lög-
fræði.
Ólafur svaraði henni þannig að
hún hefði ekki nefnt eitt dæmi um að
hann hefði snúið út úr eða lagt mönn-
um orð í munn. Sagðist hann hafa
vakið athygli á því sem fræðimenn-
irnir sögðu ekki í bréfi sínu til utan-
ríkismálanefndar.
Áslaug Arna sagðist hafa tekið tvö
dæmi um útúrsnúning í ræðu sinni
og sagði það vera ákveðinn útúr-
snúning að vísa í álitsgerð sérfræð-
inga en vera ósammála niðurstöðu
þeirra.
Þráhyggja fyrir Sigmundi
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Miðflokks-
ins, tókust á um meinta þráhyggju
þess fyrrnefnda gagnvart Sigmundi
Davíð í tengslum við umræðuna um
þriðja orkupakkann.
Guðlaugur Þór vitnaði í ræðu sinni
á Alþingi í þingsályktunartillögu um
málið sem var lögð fram fyrir fimm
mánuðum og sagði í framhaldinu að
samþykkt málsins væri í fullu sam-
ræmi við stjórnarskrána.
Sigmundur Davíð sagði Guðlaug
Þór hafa hraðlesið gamlan embættis-
mannatexta og hefði ekkert nýtt haft
fram að færa. Spurði hann Guðlaug
hvaða kosti hann sæi við það að inn-
leiða þriðja orkupakkann.
Guðlaugur Þór steig í framhaldinu
í pontu og sagðist vona að Sigmund-
ur Davíð væri maður að meiri og
gengist við því að hann hefði á sínum
tíma lýst yfir áhuga á að leggja sæ-
streng á milli Íslands og Bretlands.
Það hefði hann gert á fundi sínum
með David Cameron, þáverandi for-
sætsráðherra Bretlands, hér á landi.
Sigmundur Davíð veitti aftur and-
svar og talaði um þráhyggju utanrík-
isráðherra í sinn garð og krafðist aft-
ur svara frá honum um hvers vegna
hann vildi innleiða orkupakkann.
„Þar kom að því. Ég er kominn í
hóp meirihluta þjóðarinnar sem er
með þráhyggju fyrir Sigmundi Dav-
íð Gunnlaugssyni, að hans mati,“
svaraði Guðlaugur Þór. „Að sjálf-
sögðu,“ hrópaði Sigmundur þá úr
salnum. Guðlaugur Þór hélt áfram
og sagði allt ganga út á Sigmund
Davíð. „Við getum ekki hugsað um
annað en þig!“
Enn tekist á um orkupakkann
Umræða um þriðja orkupakkann á Alþingi hefur nú staðið yfir í meira en 150
klukkustundir „Ekkert nýtt“ í máli andstæðinga, segir forsætisráðherra
Morgunblaðið/Eggert
Þriðji orkupakkinn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, í pontu Alþingis í gær.
’
Mig langar að spyrja að því hvort
geti verið að hálfsannleikur felist
m.a. í því að velja sér álitsgjafa til að
vitna í.
Þorsteinn Sæmundsson
’
Ekki koma með enn
eitt bullið hingað
upp í ræðustól. Þetta er
ekkert annað en bull
sem er sett fram til þess
að reyna að draga úr því
hvað staðreyndirnar einfaldlega bera
með sér.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
’
Það er fordæmalaust að sjá heilan
þingflokk halda úti jafn öfgafullri,
vitlausri og rangri umræðu sem er bein-
línis ætlað að blekkja þjóðina í þessu
máli.
Þorsteinn Víglundsson
’
Þessi málflutningur [Þorsteins] er
ofsafenginn og öfgakenndur. Það er
varla að það taki því að eyða tíma Al-
þingis í slíkt.
Ólafur Ísleifsson
’
Ekkert nýtt hefur komið fram
í málinu í sumar.
Sigurður Ingi Jóhannsson
’
Utanríkisráðherra
hefur hraðlesið
gamlan embættis-
mannatexta og hefur
ekkert nýtt fram að
færa
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
’
Þar kom að því. Ég
er kominn í hóp
meirihluta þjóðarinnar
sem er með þráhyggju
fyrir Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, að hans
mati.
Guðlaugur Þór Þórðarson
’
Ef ég hefði nú tekið veðmáli um
pulsu og kók hvernig ræða utanrík-
isráðherra yrði þá hefði ég örugglega
unnið, að minnsta kosti einn ef ekki tvo
skammta.
Gunnar Bragi Sveinsson
’
Hér voru fullyrðingar eins og blekk-
ingar, umdeilanlegt, popúlistar. Átti
hann þar væntanlega við þingmenn
Miðflokksins.
Birgir Þórarinsson
Orðrétt um
orkupakkann
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Útgerðarfyrirtækið Samherji vinnur
nú að þróun á skipi til að veiða botn-
fisk með nýrri aðferð og tækni. Þor-
steinn Már Baldvinsson forstjóri
staðfesti þetta í samtali við Morgun-
blaðið.
Aðferðin gengur út á að geta flutt
fiskinn lifandi, eða blóðgaðan, í land í
tönkum og dælt honum síðan beint
inn í fiskvinnsluhús til frekari vinnslu,
eða þá geymdur lifandi í kvíum þar til
vinnslan yrði tilbúin að taka við hon-
um. Að auki yrði skipið útbúið til að
vinna fiskinn með hefðbundnum
hætti, þ.e. slægður og ísaður í kældri
lest.
Að sögn Þorsteins Más hefur skip í
þetta verkefni þegar verið keypt, af
írskri útgerð, og fengið nafnið Odd-
eyrin. Er skipið sem stendur í Dan-
mörku en gera þarf töluverðar breyt-
ingar á því vegna þessa. Skipið er
byggt árið 2006 og var áður á upp-
sjávarveiðum fyrir írsku útgerðina.
Tæknideild Samherja vinnur að
þróun á veiðiaðferðinni en til þess að
þetta sé gerlegt hér á landi þarf að
gera breytingar á reglugerðum en
samkvæmt þeim má t.d. ekki koma
með lifandi fisk að landi.
„Við höfum trú á því að þetta sé
hægt en öll meðferð á fisknum þarf að
vera samkvæmt settum reglum um
vigtun og aðra þætti. Við munum
kynna þetta og vinna með stjórnvöld-
um,“ segir Þorsteinn Már en fyrir-
myndina sækir Samherji til Noregs.
Þar eru tilraunir skammt á veg
komnar með þessa veiðiaðferð en
hafa gefist vel. Er markmiðið með
þessu einkum það að framleiða fersk-
ari fisk og bæta meðferð á hráefninu.
Þorsteinn Már segir verkefni á
borð við þetta mjög kostnaðarsamt
en gefur ekki neinar tölur upp á þessu
stigi.
„Við höfum lengi verið með þetta á
hugmyndastigi en nú er kominn tími
til að láta þetta verða að veruleika,“
segir Þorsteinn Már að endingu.
Til skoðunar að flytja
fiskinn lifandi í land
Samherji keypti skip frá Írlandi með nýja veiðiaðferð í huga
Ljósmynd/Samherji
Oddeyrin Skipið sem Samherji keypti frá Írlandi og hyggst breyta.