Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
BUXUR FRÁ
ÞEKKTUM
FRAMLEIÐENDUM
FRÁ KR. 15.900,-
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Str. S-XXXL
kr. 8.900.-
Rúllukraga-
peysa
kr. 8.900.-
Hneppt
peysa
kr. 11.900.-
Gráar
gallabuxurSkeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonnaNetverslun á www.belladonna.is
Nýjar haustvörur streyma inn
Str.
38-58
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Um 40 athugasemdir og umsagnir
bárust Reykhólahreppi vegna til-
lögu að breytingu á aðalskipulagi.
Tillagan gengur aðallega út á að
breyta lítillega legu Vestfjarða-
vegar í gegn um Teigsskóg.
Athugasemdafrestur rann út um
helgina. Tryggvi Harðarson sveit-
arstjóri segir að stór hluti athuga-
semdanna sé samhljóða, í formi
sem virðist hafa verið dreift með
fjöldapósti. Einnig séu efnismeiri
og umfangsmiklar athugasemdir
frá aðilum sem eigi hagsmuna að
gæta á svæðinu. Þá séu umsagnir
frá stofnunum sem lögbundið er
að leita til.
Starfsmenn sveitarfélagsins og
sveitarstjórn fara nú yfir athuga-
semdirnar og svara öllum.
Tryggvi segir að í framhaldinu
verði aðalskipulagið ákvarðað,
sent Skipulagsstofnun og auglýst,
annaðhvort eins og auglýsta til-
lagan var eða með lagfæringum
með hliðsjón af framkomnum um-
sögnum. Telur hann að sveit-
arstjórn afgreiði málið í síðasta
lagi á fundi sínum í október. „Það
er keppikefli okkar að þetta getið
gengið sem best fyrir sig,“ segir
hann.
Þegar breytt aðalskipulag tekur
gildi verður hægt að gefa út fram-
kvæmdaleyfi vegna lagningar
Vestfjarðavegar um Gufudals-
sveit. Þá fyrst virkjast kæruferli
til úrskurðarnefndar umhverfis-
og auðlindamála. helgi@mbl.is
Fjörutíu athugasemdir við
uppfærslu aðalskipulags
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Grafarland Þéttur birkiskógur og kjarr er í Teigsskógi og nágrenni.
Fimm vinnings-
hafar voru með 1.
vinning í áttfalda
Lottó-pottinum sl.
laugardag og
skiptu með sér
rúmlega 131 millj-
ón króna. Fékk
hver um sig rúmar
26 milljónir króna.
Þar af voru tvær systur sem
höfðu keypt sinn miðann hvor og
valið sömu tölurnar. Í tilkynningu
frá Íslenskri getspá kemur fram að
tölurnar tengjast fjölskyldunni
órjúfanlegum böndum.
Önnur systirin keypti vinnings-
miðann í Happahúsinu, Kringlunni,
en hin á heimasíðu Getspár, lotto.is.
Svo skemmtilega vildi til að önn-
ur þeirra átti einmitt afmæli á laug-
ardaginn. Þriðji vinningshafinn var
með sínar tölur í áskrift en ennþá
eru tveir ósóttir vinningar, annar
keyptur í Hagkaupum, Furuvöllum,
og hinn í matvöruversluninni Hjá
Jóhönnu á Tálknafirði.
Systur unnu sam-
anlagt 52 milljónir
króna í lottóinu
Svonefnd Járngerðarhátíð verður á
Eiríksstöðum í Haukadal í Dala-
sýslu dagana 30. ágúst til 1. sept-
ember nk. Á hátíðinni verða gerðar
tilraunir til að framleiða járn á
fornan hátt, eins og gert var á land-
námsöld, segir í fréttatilkynningu.
Hátíðin fer fram frá kl. 11-17 alla
dagana, en auk dagskrár á Eiríks-
stöðum verða fyrirlestrar í félags-
heimilinu Árbliki frá kl. 17.30 til
19.30.
Gestum og gangandi verður boð-
ið að taka þátt í dagskránni, s.s. að
fóðra eldinn í járngerðinni, berja á
rauðglóandi járn í eldsmiðjunni,
máta föt víkinga, sauma vattar-
saum, máta sig við líf í alvöru vík-
ingahúsi, baka flatbrauð yfir eldi,
kasta víkingaspjótum, moka skít
með 10. aldar tréskóflum, spila
hnefatafl og margt fleira.
Margir þekktir þátttakendur
koma þar fram og kynna færni
sína; fornleifafræðingar, sverða-
smiðir, axasmiðir, járnbræðslu-
menn og margir fleiri.
Hægt verður að baka og smakka
víkingabrauð og munda vopn, en
þeir sem hafa kjarkinn til prófa að
fóðra járngerðarofnana í viðeig-
andi hlíðfarbúnaði.
Ýmislegt verður í gangi fyrir
börn á hátíðinni, en ókeypis verður
fyrir 12 ára og yngri. Aðgangseyrir
fyrir aðra er 1.200 krónur.
Járngerðarhátíð
á Eiríksstöðum
Járngerðarhátíð Smiður að störfum.
Atvinna