Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég er mjög stolt af þess-um þátttakendum semsýndu mikið hugrekkimeð því að koma fram á
þennan hátt, þar sem þau eru ber-
skjölduð og sýna
mjög persónu-
legan hluta af
sjálfum sér.
Félagsmenn
okkar eru alveg
ótrúlegar mann-
eskjur, alltaf til-
búnar að stíga
fram og brjóta
niður staðal-
myndir. Þetta eru
mjög fallegar og
töff tískuljósmyndir þar sem ör þess-
ara einstaklinga eru partur af heild-
arútlitinu, það er ekki verið að fela
örin með fötum eða fylgihlutum,
heldur eru þau sýnd sem partur af
því hver þessi ákveðna manneskja
er,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir
framkvæmdastjóri hjá Krafti, félagi
ungs fólks sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandenda, en síð-
ast liðinn laugardag opnaði Kraftur
ljósmyndasýninguna Skapa fötin
manninn? þar sem allar fyrirsæt-
urnar á myndunum hafa greinst með
krabbamein og bera þess merki.
Ljósmyndasýningin er sam-
starfsverkefni Krafts og ljósmynd-
arans Kára Sverrissonar, en þau
ákváðu að stilla saman strengi sína í
tilefni af 20 ára afmælis Krafts.
„Þegar Kári fór að segja mér frá
hugmynd sinni um að taka tísku-
ljósmyndir þar sem unnið væri með
tískufatnað og ör á fólki, sem margir
líta á sem lýti, þá fannst mér það al-
veg í anda þess sem félagið hefur
verið að gera, því við hjá Krafti höf-
um vakið máls á því hjá okkar félags-
mönnum að fólk komi til dyranna
eins og það er klætt. Að það þurfi
ekki að fela örin sín sem það ber eftir
veikindi, heldur séu örin eitthvað
sem við eigum að bera með stolti,
enda eru þau vitnisburður um að við
séum á lífi, að við höfum sigrað,“ seg-
ir Hulda og bætir við að ákveðið hafi
verið að hafa ljósmyndasýninguna
sem einn af afmælisviðburðum fé-
lagsins.
„Við vorum í samstarfi við
Reykjavíkurborg og okkur finnst
mikill heiður að hafa fengið að opna
sýninguna á sjálfa Men ningarnótt
utan við Hörpu tónlistarhús, en þetta
er útisýning sem kemur til með að
standa þar fram yfir miðjan sept-
ember.“
Fór aldrei út án hárkollu
Þegar Hulda er spurð að því
hvernig hafi gengið að fá fólk til að
taka þátt í verkefninu, að sitja fyrir
og opinbera örin, segir hún að flestir
sem þau höfðu samband við hafi ver-
ið ótrúlega tilbúnir til að stíga fram
og leggja málstaðnum lið á þennan
hátt.
„Þetta er vissulega vandmeð-
farið, því fólk er að opna sig rosalega
mikið með því að sýna þennan hluta
af sjálfum sér. Til dæmis hafði hún
Sara Snorradóttir, ein þeirra sem
tóku þátt í sýningunni, aldrei farið út
úr húsi án þess að vera með hárkollu.
Hún hafði alltaf verið með mikið sítt
hár og það var stór hluti af hennar
sjálfsmynd. Þegar hún missti hárið
eftir meðferð þá voru margir sem
vissu ekki að hún væri sköllótt. Hún
leit á myndatökuna sem tækifæri til
að sýna sig eins og hún er og ákvað
að láta mynda sig án hárkollu. Hún
tók þetta alla leið og var meira að
segja ber að ofan í þessari mynda-
töku. Annað dæmi er hann Bubbi,
Guðbjörn Jóhann Kjartansson, sem
þakkaði okkur fyrir að hafa boðið sér
að taka þátt, því hann sagði að þetta
hefði verið ákveðið „egóbúst“ fyrir
sig. Hann er með stórt ör á bring-
unni og í myndatökunni var skapað
ákveðið sjóræningjaútlit á honum.
Hann sá sig þarna í nýju ljósi,“ segir
Hulda og bætir við að hún viti ekki til
þess að nokkru sinni áður hafi verið
haldin ljósmyndasýning hér á landi
þar sem krabbameinsgreindir beri
örin sín í bland við tískufatnað.
Margskonar ör Hafdís Priscilla Magnúsdóttir greindist 35 ára
með brjóstakrabbamein. Andri Þór Ingvarsson greindist 20 ára
með eistnakrabbamein og 25 ára með krabbamein í tannrótinni. Díana Sif Greindist 13 ára með krabbamein í taugaendum. Linda Sæberg Hún greindist 36 ára með brjóstakrabbamein.
Þau bera örin sín með stolti
Á ljósmyndasýningunni
Skapa fötin manninn?
eru ör krabbameins-
greindra einstaklinga
sýnd sem partur af því
hverjar þessar ákveðnu
manneskjur eru.
Ljósmynd/Kári Sverrisson
Sjóræningjastíll Guðbjörn greindist 23 ára með illkynja kímfrumuæxli.
Hulda
Hjálmarsdóttir
Það sem þjálfunin færir:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu
• Hugrekki til að spyrja spurninga og taka þátt í umræðum
• Koma hugmyndum sínum betur á framfæri og auka
áhrif sín
• Kynnast nýjum krökkum, bæta samskipti og styrkja
sambönd
• Betra skipulag og skýrari markmið
• Jákvæðara viðhorf og minni kvíði
Erbarniðþitt klárt fyrir skólann?
Skráning er hafin á haustnámskeiðin
Copyright©2019DaleCarnegie &Associates, Inc. All rights reserved. Gennext_081319_iceland
Námskeið hefjast:
10 til 12 ára 23. sept. 17.00 til 20.00 8 skipti með viku millibili
13 til 15 ára 19. sept. 17.00 til 20.30 8 skipti með viku millibili
6 til 19 ára 18. sept. 18.00 til 22.00 8 skipti með viku millibili
20 til 25 ára 17. sept. 18.00 til 22.00 8 skipti með viku millibili
Skráning í kynningartíma fyrir börnog foreldra á
dale.is/ungtfolk eða í síma5557080