Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 16

Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 Er lúsin velkomin á þínu heimili? Nei, hélt ekki og hún er heldur ekki velkomin í skólann. En hún er klók og getur gert sig heimakomna í hvaða kolli sem er svo það er gott að vera á varðbergi. Á www.heilsuvera- .is eru góðar leið- beiningar fyrir þá sem vilja vera lausir við lúsina. Eitthvað á þessa leið hljómar dreifipóstur sem foreldrar grunn- skólabarna fá frá heilsuvernd skólabarna á haustinn. Höf- uðlús er lítið skor- dýr sem lifir sníkjulífi í hárinu á höfð- inu. Hún er skaðlaus manninum, en flestir eru þó sammála um að lúsin sé óvelkomin í hárið. Hvað er til ráða? Höfuðlúsin veldur litlum einkenn- um en getur, ásamt eggjum sínum (nitum), sést í hári. Aðeins einn af hverjum þremur fær kláða. Lúsin smitast með því að skríða frá hári til hárs. Hún getur hvorki stokkið, flog- ið né synt. Höfuðlús sem dettur úr hári verður veikburða og getur ekki af sjálfsdáðum skriðið á annað höfuð og sest þar að. Smit með fatnaði og innanstokksmunum er talið mjög ólíklegt en þó er ekki hægt að útiloka að greiður, burstar, húfur og þess háttar, sem notað er af fleiri en ein- um á stuttum tíma, geti borið lúsa- smit á milli. En lúsin elskar knús og hópsjálfur. Þá skapast oft tækifæri til búferlaflutninga. Allir geta smit- ast, óháð aldri, stétt og stöðu.Fylgist vel með hárinu. Nauðsynlegt er að kemba til að greina lúsasmit. Ráð- lagt er að kemba börnum á aldrinum 3-13 ára vikulega til að koma í veg fyrir að lúsin nái fótfestu. Finnist lús við kembingu þarf að meðhöndla smitið. Góður lúsakambur er nauðsyn. Bilið á milli teinanna má ekki vera meira en 0,2 millimetrar og teinarnir þurfa að vera stífir. Ýmsar gerðir af lúsakömbum má finna t.d. í lyfja- verslunum. Hárgreiða, þó fínleg sé, gerir ekkert gagn í lúsakembingu. Lýs í þurru hári eru fráar á fæti og eiga auðvelt með að komast und- an kambinum. Kembið því hárið blautt, baðað í hárnæringu. Á www.heilsuvera.is má finna leiðbein- ingar um kembingu. Nota má kembingu sem meðferð við lús. Ef kembt er daglega í 14 daga hverfur lúsin úr hárinu. Efni til að drepa höfuðlús fást í lyfjaversl- unum. Farið eftir leiðbeiningum framleiðanda. Notið lúsadrepandi efni aðeins ef lús hefur fundist í hárinu. Lúsin sé ekki leyndarmál Eina forvörnin sem sannanlega virkar er regluleg kembing. Ágætt er að hafa sítt hár bundið og sumir hafa brugðið á það ráð að nota buff sem gerir lúsinni erfiðara fyrir að komast frá einum kolli yfir á annan. En hvor- ugt kemur í stað þess að fylgjast vel með hári barnsins og kemba. Finnist lús í höfði barns er rétt að láta vita í skóla eða leikskóla barnsins svo hægt sé að tilkynna foreldrum ann- arra barna um lúsina og hefta út- breiðslu. Einnig er gott að láta nána ættingja eins og ömmu og afa vita, því lúsin elskar ömmu- og afaknús því hún finnur gjarnan ný heimkynni við slíkar aðstæður. Látum lúsina ekki vera best geymda leyndarmálið, þannig nær hún fótfestu. Með sam- takamætti kembandi foreldra höld- um við lúsinni í skefjum. Gæludýrið sem enginn vill Heilsuráð Ása Sjöfn Lórensdóttir, hjúkrunarfr. og fagstjóri heilsuverndar skólabarna, Þróunarmiðstöð ísl. heilsugæslu Morgunblaðið/Árni Sæberg Flóki Góður kambur er nauðsyn því forvörnin sem sannanlega virkar gegn lús í hári er regluleg kembing á hverju einasta hári. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins. Ása Sjöfn Lórensdóttir Guðlaugur Arason, rithöfundur og myndlistarmaður, er þessa dagana með sýningu á Café Mílanó við Faxa- fen í Reykjavík. Einstakur list- viðburður segir í kynningu staðarins, sem til sanns vegar má færa því lista- verk eins og þarna eru eiga sér tæpast hliðstæður. Álfabækur kallar Guð- laugur verk sín sem eru smækkaðar myndir af bókum úr hans eigin safni sem síðan er raðað í haganlegar hillur. Á síðasta ári sýndi Guðlaugur í Amtsbókasafninu á Akureyri listaverk- ið 2,34; hornsúlu eða skáp með eft- irlíkingum eða smækkaðri mynd af bókum. Alls eru bækurnar í því nokkuð á þriðja þúsund, útsíður þeirra eru í upprunalegu útliti en þær svo smækk- aðar niður í hlutfallið 1:12 og kápan límd á spýtukubb. Titill verksins vísar til Svarfdælingsins Jóhanns Kristins Péturssonar (1913-1984), sem er stærsti Íslendingur sem sögur fara af, var 2,34 metrar á hæð. Verndarálfur fylgir Þótt verkin á Café Mílanó séu ólík eiga þau öll sameiginleg þrjú atriði; lít- inn verndarálf, sem stundum getur verið erfitt að koma auga á, eina bók eftir listamanninn sjálfan og áritaðan bókarkjöl. – Sýningin í kaffihúsinu í er opin á virkum dögum frá kl. 9-18. Café Mílanó Álfabækur á listasýningu á Mílanó Guðlaugur Arason við eitt verka sinna á kaffihúsinu í Faxafeni. Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land. Axelsbúð Akranesi Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.