Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
VIÐTAL
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Sjö ára athafnakona í Kópavogi
poppar, bakar muffins og ræktar
blóm til þess að safna fyrir siglingu á
skemmtiferðaskipi.
,,Ég veit ekki alveg hvernig mér
datt þetta í hug en mig langar mikið
til þess að fara í ferðalag á Disney-
skemmtiferðaskipi. Ég er búin að
safna 90.000 á einum mánuði en þarf
að safna 200.000 til þess að komast á
næsta ári,“ segir Friðrikka Eik
Ragnars, sem byrjar í þriðja bekk í
Kársnesskóla og verður átta ára í
október. Friðrikka segir að foreldr-
arnir Lísa Zachrison Valdimars-
dóttir og Ragnar Friðrik Ragnars
verði sjálf að safna fyrir sig.
Friðrikka seldi muffins sem hún
bakaði og skreytti alveg sjálf, djús og
popp fyrir utan sundlaugina í Kópa-
vogi og ætlar að selja sömu vörur aft-
ur en nú á Rútstúni ef hún fær leyfi
til þess. Friðrikka segir að fleiri komi
þangað þegar gott er veður og hún
geti selt meira þar en við sundlaug-
ina. Með hjálp móður sinnar hefur
Friðrikka ræktað blóm, m.a. friðar-
liljur og sjómannatryggð, peninga-
blóm, indjánafjöður og einhverja
þykkblöðunga.
Fólk sækir blómin
,,Ég set blómin í mold og svo vökva
ég líka, það er mikil vinna. Ég veit
ekki hvað oft ég vökva en mamma
segir tvisvar í viku, hún lætur mig
vita hvenær ég á að vökva. Svo kem-
ur fólkið sem kaupir blómin og sækir
þau til mín,“ segir Friðrikka sem
ætlar að bæta við fjáröflunina með
því að mála listaverk og selja. Þegar
Friðrikka er spurð hvort hún viti
hvað hægt sé að gera á skemmti-
ferðaskipinu kemur hik á hana, en
svarar svo að 10 veitingastaðir séu í
skipinu, vatnsrennibraut og sund-
laug og þar verði skemmtilegt að
vera.
,,Friðrikka hefur alltaf verið mjög
hugmyndarík og framkvæmdasöm.
Ég er endalaust að laga til eftir
hana,“ segir Lísa, móðir Friðrikku,
og bætir við að stelpan sé úti um allt
og vel virk í jákvæðum skilningi. Hún
sé oft kölluð fiðrildið Friðrikka.
„Eina stundina er að hún að mála á
eldhúsborðinu, þá næstu að sulla
með sápu og skyndilega er hún kom-
in út í garð að smíða bát,“ segir Lísa
sem segir dóttur sína listræna og
hún reikni með að hún feti listabraut-
ina í framtíðinni. Lísa hefur nú þegar
keypt tvær myndir af dóttur sinni.
Lísa segist ekki vita hvar Frið-
rikka fékk hugmyndina að siglingu á
skemmtiferðaskipi. Hún hafi fundið
það út að þegar ferðast væri með
skemmtiferðaskipum væri hægt að
skoða margar borgir og það sé eitt af
áhugamálum Friðrikku.
Lísa hélt að Friðrikka myndi
hætta við hugmyndina um siglinguna
eftir nokkra daga en stúlkan sé
ákveðin og viti hvað hún vilji. Frið-
rikka á erfitt með að átta sig á því
hvað 200.000 kr. séu miklir peningar.
Foreldrar hennar settu því blað á ís-
skápinn með tölum frá einum og upp
í 200. Í hvert skipti sem 1.000 kr.
safnast er krossað yfir eina tölu. Lísa
segir þetta hjálpa Friðrikku að átta
sig á því hvernig gangi að ná mark-
miðinu um siglingu á skemmtiferða-
skipi á næsta ári.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hugmyndarík Friðrikka Eik Ragnars, sjö ára úr Kópavogi, lætur drauminn rætast og selur m.a. blóm í fjáröflunar-
skyni fyrir ferð með skemmtiferðaskipi á næsta ári. Hún ætlar að búa til listaverk og selja til að ná markmiðinu.
Sjö ára athafnakona
Ákvað að safna
sjálf fyrir ferð með
skemmtiferðaskipi
Dugleg Friðrikka Eik selur popp, djús og muffins við sundlaugina.
m.
Lítil og létt loftpressa. Kemur með
fjórum stútum sem passa á dekk,
bolta, vindsængur og fleira.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu)
M12 Inflator
Alvöru loftpressa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Hagnaður af
rekstri Samherja
á síðasta ári nam
8,7 milljörðum
króna, borið
saman við 9,8
milljarða árið
2017. Þetta kem-
ur fram á vef
Samherja.
Rekstrartekjur
Samherja á síð-
asta ári voru 43,4 milljarðar króna,
námu um 40 milljörðum árið áður.
Fyrir afskriftir og fjármagnsliði
var hagnaður Samherja 7,7 millj-
arðar í fyrra, eða 18% af veltu.
Hlutfallið var 17% árið 2017. Skuld-
ir og eigið fé í árslok 2018 námu
tæpum 90 milljörðum króna.
Aðalfundur Samherja ákvað að
7,7% af hagnaði, eða 670 milljónir
króna, yrðu greidd í arð til hluthafa
fyrirtækisins.
„Árið var að sumu leyti sérstakt
fyrir okkur. Þetta er fyrsta heila
árið sem Samherji gerir ekki út
neinn bolfiskfrystitogara frá Ís-
landi. Félagið hóf rekstur með ein-
um frystitogara og þeir hafa í
gegnum tíðina gegnt veigamiklu
hlutverki í rekstri okkar þannig að
þetta er mikil breyting á fyrir-
tækinu,“ segir Þorsteinn Már Bald-
vinsson forstjóri á vef Samherja.
8,7 milljarða hagn-
aður hjá Samherja
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Heildarhagnaður
Eikar fasteigna-
félags á fyrstu
sex mánuðum
þessa árs nam
nær 1,5 millj-
örðum króna.
Þetta kemur
fram í árshluta-
uppgjöri fyrir-
tækisins fyrir ár-
ið 2019.
Rekstrarhagnaður fyrir mats-
breytingu og afskriftir nam nær 2,7
milljörðum króna og jókst um 5,7%
milli ára.
Rekstrartekjur fyrri part ársins
námu 4,2 milljörðum króna, en þar
af voru leigutekjur um 3,6 millj-
arðar króna.
Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins í
árslok var 30,8%.
Eik skilaði tals-
verðum hagnaði
Garðar Hannes
Friðjónsson
Fulltrúar Orkunnar okkar funduðu
með Guðna Th. Jóhannessyni, for-
seta Íslands, í gær um þriðja orku-
pakkann.
Á fundinum var forsetanum af-
hent áskorun þar sem skorað er á
hann að staðfesta ekki upptöku
þriðja orkupakkans inn í EES-
samninginn nema að sameiginlega
EES-nefndin hafi veitt Íslandi und-
anþágu frá innleiðingu, eða að þjóðin
hafi í þjóðaratkvæðagreiðslu fallist á
að undirgangast skuldbindingar
orkupakkans.
Forsetinn tók við bréfi samtak-
anna með áskoruninni og umsögnum
frá liðnu vori um málið ásamt ný-
legri gögnum um málið. Um er að
ræða skýrslu samtakanna um áhrif
inngöngu Íslands í orkusamband
ESB og minnisblöð Anars Þórs
Jónssonar héraðsdómara og Tóm-
asar Jónssonar hrl.
Í bréfinu til forsetans eru helstu
þættir málsins raktir í stuttu máli og
minnt á hugsanlegar afleiðingar
verði innleiðing orkupakkans sam-
þykkt. Orkan okkar hafi ekki séð
önnur úrræði í stöðunni en að skora
á forseta Íslands að bíða með að
staðfesta þriðja orkupakkann, segir
í tilkynningu Orkunnar okkar.
Skora á forseta
að staðfesta ekki
Áskorun Fulltrúar samtakanna Orkan okkar ásamt forseta Íslands.