Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Þegar Ágúst H. Bjarnason grasa- fræðingur var að fara í gegnum tvo pappakassa fulla af handritum úr fór- um afa síns og alnafna, sem var pró- fessor í heimspeki við Háskóla Ís- lands á fyrri hluta síðustu aldar, rakst hann á gamalt ljóðahandrit sem vakti forvitni hans. Í ljós kom að þetta var frumrit ljóðsins Saknaðar með hendi höfundarins, Jóhanns skálds Jónssonar (1896-1932). Hafði Jóhann sent það til birtingar í ný- stofnuðu menningartímariti, Vöku, árið 1928. Hann var þá búsettur í Þýskalandi. Ágúst eldri var einn af ritstjórum tímaritsins, sem hóf göngu sína í nóv- ember 1926, en meðal annarra sem stýrðu því voru þjóðkunnir menn eins og Árni Pálsson, síðar prófessor, Ás- geir Ásgeirsson, síðar forseti, Guð- mundur Finnbogason lands- bókavörður, Kristján Albertsson rithöfundur og Sigurður Nordal pró- fessor. Birtust þar fjölmargar grein- ar um menningu, stjórnmál og fræði. Tímaritið varð hins vegar skammlíft, útgáfunni var hætt 1929. Kassarnir með handritunum höfðu verið í geymslu ósnertir í hálfa öld. Mest voru þetta handrit ýmissa greina og bóka eftir Ágúst prófessor, en eftir hann liggja fjölmörg ritverk. En þarna var líka efni sem tilheyrði tímaritinu Vöku. Hefur Ágúst yngri fyrir satt að afi hans hafi haft for- göngu um útgáfu Vöku og umsjón með henni. Brautryðjandaverk Söknuður Jóhanns er jafnan talinn brautryðjandaverk í íslenskri ljóða- gerð á öldinni sem leið. Er gjarnan sagt að Söknuður og ljóðið Sorg eftir Jóhann Sigurjónsson marki upphaf nútíma ljóðagerðar á Íslandi. Bókmenntafræðingar segja að nýtt og ferskt form Saknaðar hafi valdið straumhvörfum. Hefur margt verið um ljóðið skrifað á síðustu ára- tugum. Náinn vinur Jóhanns, Hall- dór Laxness, komst svo að orði í for- mála ljóðasafns hans: „Í þessu kvæði eru rakin öll fyrri kvæði hans og svo ævi; og þannig er kvæði þetta að sín- um hætti andlátskvæði einsog mörg fegurstu kvæði túngunnar, ort í það mund er höfundur kveður líf sitt, helgað þeirri stundu þegar ekkert er frammundan nema skuggsjá liðinnar ævi manns spegluð í andartaki hans hinstu.“ Jóhann lést úr berklum í Leipzig árið 1932, langt fyrir aldur fram. Það sem mestum tíðindum sætir við fund frumrits Saknaðar er að í ljós kemur og verður ekki vefengt lengur, að titill þess í Vöku og ávallt síðan er kominn frá ritstjórum tíma- ritsins. Ekki öllum á óvart Ekki kemur þetta öllum á óvart. Eysteinn Þorvaldsson prófessor hafði á sínum tíma fengið vitneskju um þetta og sagði í ritgerð um skáld- skap Jóhanns í Skírni 1991 að ljóðið hefði ekki hlotið titilinn Söknuður frá skáldinu sjálfu. „Ritstjórar Vöku hafa trúlega gefið því þetta nafn vegna viðskiptahagsmuna, eins og það heitir nú á dögum. Jóhann gaf því sérkennilegan og athyglisverðan titil: Kvæðið um engilbarnið litla bróður.“ Taldi Eysteinn að með þeim titli væri átt við meðbróðurinn sem talað væri til „í bróðurþeli mannúðar og sam- hygðar“. Gallinn við þessar upplýsingar Ey- steins var sá að hann vísaði ekki til neinnar heimildar né sýndi frumritið og töldu flestir það glatað. Því voru ekki allir sannfærðir um að þessar staðhæfingar væru á rökum reistar. Í grein í Skírni árið 2002 hvatti Þor- steinn Þorsteinsson til þess að Ey- steinn greindi frá heimild sinni, en ekki er að sjá að nein viðbrögð hafi orðið við því. En nú er komið á dag- inn að Eysteinn hafði á réttu að standa. Lýsing á frumritinu „Söknuður er á tveimur blöðum, handskrifaður með 0,3 mm breiðum sjálfblekungi á drapplitan, fremur þunnan pappír, sem er lítið eitt minni en A4 eða 291×196 cm,“ segir Ágúst H. Bjarnason þegar hann lýsir frum- riti ljóðsins. Í umfjöllun um málið á bloggi sínu (ahb.is) segir hann að svo sé að sjá að frá hendi Jóhanns hafi upprunalegt heiti kvæðisins staðið efst á handritinu, fimm sentímetrum frá efstu brún: „Kvæðið um engil- barnið, litla bróður.“ Tveimur og hálfum sentímetra þar fyrir neðan standi innan sviga: „(Brot)“. Síðan hafi þessu verið breytt. Skrifað hafi verið daufum stöfum með blýanti fyr- ir ofan titilinn: „Söknuður.“ Upp- runalega nafnið á kvæðinu sé sett innan sviga og strikað yfir það, síðan sé ritað þar fyrir neðan „Eftir Jó- hann Jónsson“ og strikað yfir orðið brot. Þá hafi verið farið ofan í þessa stafi með grænum, 0,5 millimetra breiðum penna. Loks bendir Ágúst á að efst í vinstra horni handritsins séu fyr- irmæli ritstjóranna til setjara Gut- enberg, þar sem tímaritið var prent- að, um að notast skuli við „Vökustafsetningu“ og nokkur orð í texta skáldsins séu leiðrétt. Meðbróðir eða litli bróðir? Ágúst veltir fyrir sér hver litli bróðirinn sé í upprunalegum titli Saknaðar. Eysteinn Þorvaldsson taldi, sem fyrr segir, að þar væri vís- að almennt til meðbróðurins. Ágúst bendir hins vegar á að Jóhann hafi átt yngri bróður, Sigurð, sem fæddist 18. júlí 1901 og dó 29. maí 1903. Jó- hann hafi því verið á áttunda aldurs- ári þegar bróðir hans lést. „Ugglaust hefur bróðurmissirinn verið Jóhanni þung raun. Það er því ekki óvarlegt að álykta, að rekja megi upphaflegt nafn á kvæðinu Söknuði til þessa at- burðar,“ segir Ágúst. Áhrif á viðtökur? Velta má því fyrir sér hvort ákvörðun ritstjóra Vöku um að breyta titlinum á þessu sögufræga ljóði Jóhanns Jónssonar hafi haft ein- hver áhrif á viðtökur þess. Á Eysteini Þorvaldssyni er að skilja að nýja heit- ið hafi þótt „söluvænlegra“ (sbr. „vegna viðskiptahagsmuna“) en hið upprunalega. Vel má vera að þetta hafi verið rétt mat. Orðið „Söknuður“ fangar mjög vel boðskap og hugsun Jóhanns Jónssonar í kvæðinu enda er ekki kunnugt um að hann hafi nokkru sinni gert athugasemd við ákvörðun ritstjóranna þótt hún hafi ekki verið borin undir hann. Frumritið fannst í gömlum kassa  Söknuður, eitt þekktasta ljóð íslenskra nútímabókmennta, bar annan titil þegar Jóhann Jónsson sendi það til birtingar í Vöku 1928  Ritstjórarnir ákváðu upp á sitt eindæmi að breyta heitinu Frumritið Svona lítur Söknuður út í frumriti Jóhanns Jónssonar. Við birt- ingu fékk það annað heiti en hann hafði valið því eins og sjá má. Skáld Jóhann Jónsson (standandi t.h.) og náinn vinur hans, Halldór Lax- ness. Hér eru þeir ungir menn, en myndin mun tekin í Leipzig. Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað? Og ljóðin, er þutu’ um þitt blóð frá draumi til draums, hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó barn, er þig hugðir, borið með undursamleikans eigin þrotlausan brunn þér í brjósti! Hvar …? Upphafslínur Saknaðar ÞEKKTASTA LJÓÐ JÓHANNS JÓNSSONAR Varahlutir í allar Cummins vélar Fljót og áreiðanleg þjónusta Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.