Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Þegar Ágúst H. Bjarnason grasa-
fræðingur var að fara í gegnum tvo
pappakassa fulla af handritum úr fór-
um afa síns og alnafna, sem var pró-
fessor í heimspeki við Háskóla Ís-
lands á fyrri hluta síðustu aldar,
rakst hann á gamalt ljóðahandrit sem
vakti forvitni hans. Í ljós kom að
þetta var frumrit ljóðsins Saknaðar
með hendi höfundarins, Jóhanns
skálds Jónssonar (1896-1932). Hafði
Jóhann sent það til birtingar í ný-
stofnuðu menningartímariti, Vöku,
árið 1928. Hann var þá búsettur í
Þýskalandi.
Ágúst eldri var einn af ritstjórum
tímaritsins, sem hóf göngu sína í nóv-
ember 1926, en meðal annarra sem
stýrðu því voru þjóðkunnir menn eins
og Árni Pálsson, síðar prófessor, Ás-
geir Ásgeirsson, síðar forseti, Guð-
mundur Finnbogason lands-
bókavörður, Kristján Albertsson
rithöfundur og Sigurður Nordal pró-
fessor. Birtust þar fjölmargar grein-
ar um menningu, stjórnmál og fræði.
Tímaritið varð hins vegar skammlíft,
útgáfunni var hætt 1929.
Kassarnir með handritunum höfðu
verið í geymslu ósnertir í hálfa öld.
Mest voru þetta handrit ýmissa
greina og bóka eftir Ágúst prófessor,
en eftir hann liggja fjölmörg ritverk.
En þarna var líka efni sem tilheyrði
tímaritinu Vöku. Hefur Ágúst yngri
fyrir satt að afi hans hafi haft for-
göngu um útgáfu Vöku og umsjón
með henni.
Brautryðjandaverk
Söknuður Jóhanns er jafnan talinn
brautryðjandaverk í íslenskri ljóða-
gerð á öldinni sem leið. Er gjarnan
sagt að Söknuður og ljóðið Sorg eftir
Jóhann Sigurjónsson marki upphaf
nútíma ljóðagerðar á Íslandi.
Bókmenntafræðingar segja að
nýtt og ferskt form Saknaðar hafi
valdið straumhvörfum. Hefur margt
verið um ljóðið skrifað á síðustu ára-
tugum. Náinn vinur Jóhanns, Hall-
dór Laxness, komst svo að orði í for-
mála ljóðasafns hans: „Í þessu kvæði
eru rakin öll fyrri kvæði hans og svo
ævi; og þannig er kvæði þetta að sín-
um hætti andlátskvæði einsog mörg
fegurstu kvæði túngunnar, ort í það
mund er höfundur kveður líf sitt,
helgað þeirri stundu þegar ekkert er
frammundan nema skuggsjá liðinnar
ævi manns spegluð í andartaki hans
hinstu.“
Jóhann lést úr berklum í Leipzig
árið 1932, langt fyrir aldur fram.
Það sem mestum tíðindum sætir
við fund frumrits Saknaðar er að í
ljós kemur og verður ekki vefengt
lengur, að titill þess í Vöku og ávallt
síðan er kominn frá ritstjórum tíma-
ritsins.
Ekki öllum á óvart
Ekki kemur þetta öllum á óvart.
Eysteinn Þorvaldsson prófessor
hafði á sínum tíma fengið vitneskju
um þetta og sagði í ritgerð um skáld-
skap Jóhanns í Skírni 1991 að ljóðið
hefði ekki hlotið titilinn Söknuður frá
skáldinu sjálfu. „Ritstjórar Vöku
hafa trúlega gefið því þetta nafn
vegna viðskiptahagsmuna, eins og
það heitir nú á dögum. Jóhann gaf því
sérkennilegan og athyglisverðan titil:
Kvæðið um engilbarnið litla bróður.“
Taldi Eysteinn að með þeim titli væri
átt við meðbróðurinn sem talað væri
til „í bróðurþeli mannúðar og sam-
hygðar“.
Gallinn við þessar upplýsingar Ey-
steins var sá að hann vísaði ekki til
neinnar heimildar né sýndi frumritið
og töldu flestir það glatað. Því voru
ekki allir sannfærðir um að þessar
staðhæfingar væru á rökum reistar. Í
grein í Skírni árið 2002 hvatti Þor-
steinn Þorsteinsson til þess að Ey-
steinn greindi frá heimild sinni, en
ekki er að sjá að nein viðbrögð hafi
orðið við því. En nú er komið á dag-
inn að Eysteinn hafði á réttu að
standa.
Lýsing á frumritinu
„Söknuður er á tveimur blöðum,
handskrifaður með 0,3 mm breiðum
sjálfblekungi á drapplitan, fremur
þunnan pappír, sem er lítið eitt minni
en A4 eða 291×196 cm,“ segir Ágúst
H. Bjarnason þegar hann lýsir frum-
riti ljóðsins. Í umfjöllun um málið á
bloggi sínu (ahb.is) segir hann að svo
sé að sjá að frá hendi Jóhanns hafi
upprunalegt heiti kvæðisins staðið
efst á handritinu, fimm sentímetrum
frá efstu brún: „Kvæðið um engil-
barnið, litla bróður.“ Tveimur og
hálfum sentímetra þar fyrir neðan
standi innan sviga: „(Brot)“. Síðan
hafi þessu verið breytt. Skrifað hafi
verið daufum stöfum með blýanti fyr-
ir ofan titilinn: „Söknuður.“ Upp-
runalega nafnið á kvæðinu sé sett
innan sviga og strikað yfir það, síðan
sé ritað þar fyrir neðan „Eftir Jó-
hann Jónsson“ og strikað yfir orðið
brot. Þá hafi verið farið ofan í þessa
stafi með grænum, 0,5 millimetra
breiðum penna.
Loks bendir Ágúst á að efst í
vinstra horni handritsins séu fyr-
irmæli ritstjóranna til setjara Gut-
enberg, þar sem tímaritið var prent-
að, um að notast skuli við
„Vökustafsetningu“ og nokkur orð í
texta skáldsins séu leiðrétt.
Meðbróðir eða litli bróðir?
Ágúst veltir fyrir sér hver litli
bróðirinn sé í upprunalegum titli
Saknaðar. Eysteinn Þorvaldsson
taldi, sem fyrr segir, að þar væri vís-
að almennt til meðbróðurins. Ágúst
bendir hins vegar á að Jóhann hafi
átt yngri bróður, Sigurð, sem fæddist
18. júlí 1901 og dó 29. maí 1903. Jó-
hann hafi því verið á áttunda aldurs-
ári þegar bróðir hans lést. „Ugglaust
hefur bróðurmissirinn verið Jóhanni
þung raun. Það er því ekki óvarlegt
að álykta, að rekja megi upphaflegt
nafn á kvæðinu Söknuði til þessa at-
burðar,“ segir Ágúst.
Áhrif á viðtökur?
Velta má því fyrir sér hvort
ákvörðun ritstjóra Vöku um að
breyta titlinum á þessu sögufræga
ljóði Jóhanns Jónssonar hafi haft ein-
hver áhrif á viðtökur þess. Á Eysteini
Þorvaldssyni er að skilja að nýja heit-
ið hafi þótt „söluvænlegra“ (sbr.
„vegna viðskiptahagsmuna“) en hið
upprunalega. Vel má vera að þetta
hafi verið rétt mat. Orðið „Söknuður“
fangar mjög vel boðskap og hugsun
Jóhanns Jónssonar í kvæðinu enda er
ekki kunnugt um að hann hafi nokkru
sinni gert athugasemd við ákvörðun
ritstjóranna þótt hún hafi ekki verið
borin undir hann.
Frumritið fannst í gömlum kassa
Söknuður, eitt þekktasta ljóð íslenskra nútímabókmennta, bar annan titil þegar Jóhann Jónsson
sendi það til birtingar í Vöku 1928 Ritstjórarnir ákváðu upp á sitt eindæmi að breyta heitinu
Frumritið Svona lítur Söknuður út í frumriti Jóhanns Jónssonar. Við birt-
ingu fékk það annað heiti en hann hafði valið því eins og sjá má.
Skáld Jóhann Jónsson (standandi t.h.) og náinn vinur hans, Halldór Lax-
ness. Hér eru þeir ungir menn, en myndin mun tekin í Leipzig.
Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?
Og ljóðin, er þutu’ um þitt blóð frá draumi til draums,
hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó barn, er þig hugðir,
borið með undursamleikans
eigin þrotlausan brunn þér í brjósti!
Hvar …?
Upphafslínur Saknaðar
ÞEKKTASTA LJÓÐ JÓHANNS JÓNSSONAR
Varahlutir í allar
Cummins vélar
Fljót og áreiðanleg þjónusta
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík