Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 34

Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 Sögu Iðuferju, brúarinnar á Hvítá hjá Iðu og Laugaráss í Biskups- tungum eru gerð skil á söguskiltum sem nú hafa verið sett upp við norð- urenda brúarinnar. Skiltin voru af- hjúpuð um síðustu helgi við athöfn sem var fjölsótt. Elínborg Sigurðardóttir á Iðu og Páll M. Skúlason í Kvistholti í Laugarási sögðu þarna frá tilurð skiltanna, sem voru gerð í minningu hjónanna Ingólfs Jóhannssonar og Margrétar Guðmundsdóttur á Iðu og Guðnýjar Pálsdóttur og Skúla Magnússonar í Hveratúni í Laug- arási. Afkomendur þeirra áttu frumkvæði að þessari framkvæmd og þeir styrktu hana með umtals- verðu fjárframlagi. Það voru síðan börn þeirra hjóna sem afhjúpuðu skiltin. Páll vinnur vef Elínborg og Páll unnu á þau alla texta og völdu myndir. Sveitarfélag- ið Bláskógabyggð styrkti verkið einnig, svo og Vegagerðin og fleiri. Skiltin voru sett upp samhliða bæj- arskilti fyrir Laugarás. Í lok athafn- arinnar afhentu afkomendur hjónanna Sveitarfélaginu Blá- skógabyggð skiltin til umsjónar og varðveislu og sveitarstjórinn, Ásta Stefánsdóttir, veitti þeim viðtöku. Saga beggja ferjanna, brúarinnar og Laugaráss er samtvinnuð og söguskiltin gera nokkra grein fyrir henni. Páll Skúlason vinnur að vef um Laugarás og nágrenni, www.laugaras.is þar sem þessari sögu eru og verða gerð ítarlegri skil, bæði í texta og með myndefni af ýmsu tagi. Hróp af Auðsholtshamri Fyrirsögnin á skiltunum Halló, halló ferja vísar til minninga bræðr- anna Einars og Jósefs Ólafssona, en faðir þeirra, Ólafur Einarsson, var héraðslæknir í Laugarási frá 1932- 1947. Þeir voru oft sendir á Skál- holtshamar, sem er þar sem norður- endi brúarinnar er nú, til að kalla á ferjuna og flýta þannig fyrir föður sínum, sem þurfti að fara í læknis- vitjun austan ár. Þeir voru einnig ósjaldan sendir á ferjuna með lyf sem þurfti að koma yfir. Sama má segja um hróp þeirra af Auðsholtshamri, en þar var einnig lögferja langt fram eftir síðustu öld. Ferjan lagðist svo af þegar Iðubrú var byggð og tekin í notkun árið 1957. Sú framkvæmd og samgöngu- bót varð svo til þess að þéttbýli tók að myndast í Laugarási, sem er garðyrkjuþorp. Þá voru settar á fót allmargar garðyrkjustöðvar á svæð- inu, og þegar best lét voru íbúar í byggðinni vel á annað hundrað. Í dag eru þeir skv. tölum Hagstofu um 120. sbs@mb.is Ljósmynd/Aðsend Skilti Afkomendur hjónanna á Iðu og í Hveratúni áttu frumkvæði að gerð skiltanna og sáu um afhjúpun þeirra. Söguskilti á ferjustað  Iða og Laugarás  Læknisferðir og lyf  Brúarþorpið í Biskupstungum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tenging Iðubú sem tekin var í notkun árið 1957 er svipsterkt mannvirki, sem tengir Biskupstungur við Skeiðin. Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.