Morgunblaðið - 29.08.2019, Side 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
HAUST
2019
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
John Bercow, forseti neðri deildar
breska þingsins, og þingmenn sem
leggjast gegn því að Bretland gangi
úr Evrópusambandinu án samnings
31. október hafa gagnrýnt harðlega
beiðni Boris Johnsons forsætisráð-
herra um að Bretadrottning sendi
þingið heim nokkrum dögum eftir að
það kemur saman eftir sumarhlé í
næstu viku og þar til stefnuræða
stjórnarinnar verður flutt á þinginu
14. október. Bercow og andstæðing-
ar brexit án samnings sögðu að
beiðni forsætisráðherrans væri brot
á stjórnarskrá landsins og atlaga að
þingræðinu þar sem markmið hans
væri að koma í veg fyrir að þingið
gæti samþykkt lög sem hindruðu út-
göngu án samnings. Johnson og
stuðningsmenn brexit án samnings í
Íhaldsflokknum neituðu þessu og
sögðu að þingið fengi nægan tíma til
að ræða útgönguna.
Samkvæmt gildandi lögum geng-
ur Bretland úr ESB 31. október og
Johnson hefur sagt að útgöngunni
verði ekki frestað ef leiðtogar sam-
bandsins hafna kröfu hans um breyt-
ingar á brexitsamningi sem þingið
hefur fellt þrisvar. Meirihluti neðri
deildar þingsins hefur hins vegar
verið andvígur útgöngu án samn-
ings. Bretadrottning samþykkti
beiðni forsætisráðherrans um að
senda þingið heim ekki síðar en 12.
september og það kæmi saman aftur
14. október, sautján dögum fyrir út-
gönguna og þremur dögum fyrir
fund Johnsons með leiðtogum Evr-
ópusambandsins.
Í samræmi við venju
Venja er að breska þingið sé sent
heim í skamman tíma, yfirleitt í apríl
eða maí. Þingmenn halda þá sætum
sínum og stjórnin situr áfram en
engin umræða og engar atkvæða-
greiðslur fara fram á þinginu. Þingið
er þó ekki rofið eins og gert er þegar
boðað er til kosninga.
Þetta er yfirleitt gert einu sinni á
ári en þingið hefur nú starfað í rúm
tvö ár, lengur en nokkru sinni fyrr í
nær 400 ár, án þess að hafa verið
sent heim með þessum hætti, eða frá
því að nýtt þing var sett eftir kosn-
ingar í júní 2017. Þinginu hefur verið
lokað í mislangan tíma, t.a.m. í fjóra
vinnudaga árið 2016 og þrettán
vinnudaga tveimur árum áður, að því
er fram kemur á fréttavef BBC.
Johnson vill nú að þingið verði lokað
í u.þ.b. 23 vinnudaga áður en Breta-
drottning flytur stefnuræðu
stjórnarinnar.
Gert er ráð fyrir því að þingið
komi saman eftir sumarhlé 3. sept-
ember. Sú venja hefur komist á að
hlé sé gert á störfum þingsins, án
þess að senda það heim, þegar þrír
helstu stjórnmálaflokkar Bretlands
halda árlega landsfundi sína en búist
var við að meirihluti þingsins myndi
hafna því að hlé yrði gert á störfum
þingsins vegna landsfundanna í ár.
Þingmenn geta hins vegar ekki
greitt atkvæði um beiðni um að þing-
ið verði sent heim.
Fyrsti landsfundurinn, fundur
Frjálslyndra demókrata, hefst 14.
september og þeim þriðja, fundi
Íhaldsflokksins, lýkur 2. október,
tólf dögum áður en þingið á að koma
saman. Á síðasta ári lauk lands-
fundahléinu 9. október, sex dögum
eftir að síðasta fundinum lauk.
Fréttaskýrandi BBC segir að for-
dæmi séu fyrir því að þinginu sé lok-
að áður en Bretadrottning flytur
stefnuræðu stjórnarinnar og þess
vegna hafi hún ekki getað hafnað
beiðni forsætisráðherrans núna.
Sögð atlaga að þingræðinu
Beiðnin um að þingið verði sent
heim er þó mjög umdeild vegna þess
að andstæðingar brexit án samnings
segja að markmiðið með henni sé að
sniðganga vilja þingsins á mjög af-
drifaríkum tíma. Rúmlega 70 þing-
menn í neðri deildinni og aðalsmenn
í lávarðadeildinni hafa óskað eftir því
að dómstóll í Skotlandi úrskurði að
það sé ólöglegt og brot á stjórnar-
skránni að senda þingið heim til að
knýja fram brexit án samnings.
Dómstóllinn hefur ákveðið að taka
málið fyrir 6. september en talið er
að erfitt verði fyrir þá sem höfða
málið að sanna að markmiðið með
beiðni forsætisráðherrans sé að
knýja brexit fram gegn vilja þings-
ins.
Boris Johnson neitaði því í gær að
hann hefði þetta að markmiði og
sagði að þingið fengi nægan tíma til
að ræða málið.
Forseti neðri deildarinnar sagði
hins vegar að það væri algerlega
augljóst að markmiðið með því að
loka þinginu væri að hindra að það
ræddi brexit og gegndi skyldum sín-
um. Hann lýsti beiðni forsætisráð-
herrans sem atlögu að þingræðinu
og réttindum þingmanna sem kjör-
inna fulltrúa þjóðarinnar.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, kvaðst hafa skrifað
Bretadrottningu bréf til að biðja um
fund með henni áður en hún tæki
ákvörðun um beiðnina. Leiðtogar
sex stjórnarandstöðuflokka höfðu
lofað að beita sér fyrir lagabreyting-
um til að koma í veg fyrir brexit án
samnings og hugsanlegt er að þeir
leggi fram vantrauststillögu gegn
forsætisráðherranum.
Formaður þingflokks Skoska
þjóðarflokksins á breska þinginu
sakaði Johnson um að hegða sér
„eins og einræðisherra“. Jo Swinson,
leiðtogi Frjálslyndra demókrata,
sagði beiðni forsætisráðherrans til
marks um „hugleysi“. „Hann veit að
þjóðin myndi ekki velja brexit án
samnings og kjörnir fulltrúar henn-
ar myndu ekki leyfa slíka útgöngu.“
Teflt á tvær hættur
James Cleverly, formaður Íhalds-
flokksins, varði beiðni Johnsons og
sagði hana alvanalega þegar nýr for-
sætisráðherra tæki við völdunum.
Arlene Foster, leiðtogi DUP, flokks
norðurírskra sambandssinna, fagn-
aði beiðni Johnsons en sagði að
flokkurinn myndi taka stuðning sinn
við stjórn Íhaldsflokksins til endur-
skoðunar. „Þá gefst tækifæri til að
tryggja að stefna stjórnarinnar sam-
ræmist forgangsmálum okkar.“
Fréttaskýrandi The Telegraph
segir að andstæðingar brexit án
samnings eigi á brattann að sækja í
deilunni við Johnson eins og staðan
sé núna en forsætisráðherrann hafi
tekið mikla áhættu með beiðninni
um að senda þingið heim. Hugsan-
legt sé að hann nái markmiði sínu en
beiðnin geti einnig komið honum í
koll og þjappað andstæðingum hans
saman. Þótt ákvörðunin um að senda
löggjafarþingið heim stytti tímann
sem þingmönnum gefist til að hindra
brexit án samnings sé enn mögulegt
að þeim takist það áður en þinginu er
lokað.
Sakaður um stjórnarskrárbrot
Johnson talinn hafa tekið mikla áhættu með því að biðja Bretadrottningu um að senda þingið heim til
14. október Torveldar þingmönnum að hindra brexit án samnings en gæti komið Boris Johnson í koll
AFP
„Alvanalegt“ Boris Johnson forsætisráðherra segir að beiðnin um að loka
þinginu samræmist venjum og neitar því að hún sé atlaga að þingræðinu.
AFP
„Hneyksli“ John Bercow, forseti neðri deildar breska þingsins, segir að
beiðni Johnsons um að þingið verði sent heim sé „stjórnskipulegt hneyksli“.
„Stjórnin mun falla“
» Dominic Grieve, þingmaður
Íhaldsflokksins, sagði að
beiðni Boris Johnsons um að
þingið yrði sent heim gæti leitt
til atkvæðagreiðslu um van-
trauststillögu gegn forsætis-
ráðherranum.
» „Stjórnin mun falla,“ sagði
Grieve sem hefur beitt sér fyrir
nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu
um aðild Bretlands að ESB.
» Stjórn Íhaldsflokksins er að-
eins með eins sætis meirihluta
í neðri deild þingsins.