Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 42

Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 42
Félag eldri borg- ara í Reykjavík og nágrenni er eitt fjöl- mennasta félag landsins. Ríflega 12.000 greiðandi fé- lagsmenn tilheyra því. Eitt af fjölmörg- um hlutverkum Fé- lags eldri borgara (FEB) er að vinna að úrbótum í húsnæðis- málum fyrir eldri borgara. Til langs tíma hefur FEB byggt fjölbýlishús fyrir félagsmenn með góðum árangri og hefur það alltaf verið gert á kostnaðarverði og aldrei annað staðið til með þennan hluta starfseminnar. Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að FEB hefur verið að byggja 68 íbúðir í tveimur blokkum við Árskóga 1-3. Þegar komið var að afhendingu íbúðanna um mán- aðamótin júlí/ágúst, kom í ljós að tæplega 400 milljóna króna halli var á framkvæmdunum. Hvað fór úrskeiðis? Eftir mikla vinnu bæði stjórnar FEB og aðkeyptra sérfræðinga ónum króna niður í 250 milljónir króna og var verð íbúða þá aftur lækkað sem því nam, eða um tæp 40% frá fyrri hækkun. Nú er því verð íbúðanna komið 5% niður fyrir kostnaðarverð og um 17-20% niður fyrir markaðs- virði sambærilegra íbúða á frjáls- um markaði. Verkefni stjórnar Stjórn félagsins tekur þetta mál mjög alvarlega og mun leita allra leiða til að komast að því hvernig þetta gat gerst um leið og félagið vinnur að frekari lausnum til að auðvelda kaupendum að takast á við þessi óvæntu útgjöld. Því miður eru þetta ekki fyrstu mistökin sem eiga sér stað í byggingarfram- kvæmdum hérlendis og væntanlega ekki þau síðustu heldur. Það er þó bót í máli fyrir kaupendur að íbúð- irnar eru seldar undir kostn- aðarverði. Niðurstaðan er að félaginu urðu á alvarleg mistök, það er óumdeil- anlegt. Margar spurningar hafa vaknað. Hvernig gat þetta gerst og af hverju tók enginn eftir neinu fyrr en að verkinu var að mestu lokið? Útreikningarnir höfðu farið í gegnum hendur margra lærðra að- ila á viðurkenndum og virtum stofnunum og félögum. Vonandi mun óháð endurskoðun á málinu leiða í ljós svörin við þessum og fleiri spurningum. Nú hafa flestir kaupendur sam- þykkt nýtt verð íbúðanna og marg- ir eru þegar fluttir inn. Það er von okkar í stjórn FEB að íbúar Ár- skóga 1 og 3 muni, þrátt fyrir þessa leiðu uppákomu, njóta þess- ara góðu íbúða um ókomin ár. kom í ljós að hallinn or- sakaðist fyrst og fremst af vantöldum fjár- magnskostnaði og lágu þau mistök hjá bygg- ingarnefnd félagsins. Þessi vanreiknaði fjár- magnskostnaður fór því miður fram hjá öllum þeim eftirlitsaðilum sem að málinu komu. Þetta er augljóslega mikið áfall fyrir kaup- endur íbúðanna og einnig fyrir okkur í stjórn félagsins. Félag- ið, sem hefur lagt metnað sinn í að skila verkefnum vel af sér, mátti nú horfast í augu við að eitthvað al- varlegt hafði farið úrskeiðis. Þessar vikur sem liðnar eru frá því að hallinn kom í ljós hafa einkennst af látlausri vinnu til að kanna hvernig þetta gat gerst og er henni hvergi lokið. Það er ekki síður mikilvægt að finna leiðir til að lágmarka skað- ann fyrir kaupendur íbúðanna. FEB starfar án hagnaðarsjónarmiða Félag eldri borgara starfar án þess að hagnaðarsjónarmið séu í fyrirrúmi og á því í enga sjóði að sækja. Ef ekki tekst að selja íbúð- Áfall Eftir Sigríði Snæbjörnsdóttur Sigríður Snæbjörnsdóttir »Eftir mikla vinnu bæði stjórnar FEB og aðkeyptra sérfræð- inga kom í ljós að hall- inn orsakaðist fyrst og fremst af vantöldum fjármagnskostnaði. Höfundur er varaformaður FEB. sigridursnae@gmail.com irnar á kostnaðarverði blasir við að félagið fer í greiðslustöðvun og/eða gjaldþrot. Þá munu 12 þúsund fé- lagsmenn líða fyrir þessi mistök fyrir utan þau ómældu óþægindi sem kaupendur hafa nú þegar orðið fyrir. Ákveðið var að freista þess að fá kaupendur til þess að taka þennan halla hlutfallslega á sig þannig að heildarverð allra íbúða næði upp í kostnaðarverð sem kom að sjálf- sögðu illa við fólk eftir að hafa gert ráð fyrir lægra verði og er auðvelt að skilja vonbrigðin. Hagstæðara verð eftir minnkun á halla Eftir samningaviðræður við framkvæmda- og fjármögnunar- aðila tókst að ná samkomulagi um að minnka hallann úr 400 millj- VILTU TAKAVIÐ GREIÐSLUMÁNETINU? KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is 42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Það hefur verið fróð- legt að taka þátt í sam- tökunum Orkunni okk- ar, sem var stofnuð með það fyrir augum að fræða almenning um þriðja orkupakkann og reyna að hindra það að alþingismenn sam- þykktu hann. Við vorum nokkrir þverhausar úr hverfa- félagi Sjálfstæð- isflokksins sem fórum af stað og höfð- um samband við nokkra núverandi og fyrrverandi alþingismenn úr öllum flokkum og spurðum um álit þeirra á þriðja orkupakkanum og sáum að þeir voru sammála okkar skoðun, sem er sú að það væri fráleitt að sam- þykkja orkupakkann og missa þannig vald yfir orkumálum til erlendra stofnana og markaðs- væða orkuna. Það hefur verið fróð- legt að upplifa það að vera kölluð kverúlant, sjálfskipaður fullveld- issinni, einangr- unarsinni, trumpisti, sviðsljósafíkill, þjóðern- isremba, afturhalds- sinni, popúlísti svo að eitthvað sé nefnt. Það hefur verið fróð- legt að upplifa það að RÚV, ríkisútvarpið, hefur brugðist skyldu sinni, en á lögum samkvæmt (lög nr. 23, 3.gr) að „Vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni og al- menning varðar.“ Það hefur verið fróðlegt að upplifa falsfréttir samfélagsmiðla um Orkuna okkar þar sem samtökin eru sökuð um að dreifa dreifildum á leiði í kirkjugörðum. Því skal haldið til haga að félagsmenn samtakanna eru ekki fífl og hafa engan hag af því að dreifa lesefni á leiði látinna manna. Það hefur verið fróðlegt að upplifa það að skoðanir eldri manna og kvenna skipta ekki máli. Ég vil þá minna yngra fólk á það, að aldurinn færist yfir þau líka og vonandi verða þau ekki skoðanalaus í framtíðinni. Það hefur verið fróðlegt að upplifa það að tilheyra hópi sem verður fyrir einelti, að þá fara aðrir að sýna svo- kallaða hjarðhegðun: „Hjarðhegðun mannsins litast oft af því að mann- eskjan hermir eftir annarri mann- eskju þar sem hún trúir því að sú hegðun sé skynsamleg í stað þess að leitast sjálf eftir svari eða fara sína eigin leið.“ (Wikipedia) Það hefur verið fróðlegt að upplifa það að stjórnmálamenn eru tilbúnir að samþykkja þriðja orkupakkann þrátt fyrir að meirihluti kjósenda þeirra er á móti þeim gjörningi. Sam- kvæmt skoðanakönnun Bylgjunnar nýlega þá vilja 65% segja nei. Það hefur verið fróðlegt að upplifa það að flokkarnir Vinstri grænir, Pí- ratar og Samfylking vilja markaðs- væða raforkuna, sem þýðir að millilið- um fjölgar frá framleiðanda til neytenda, sem þýðir að verð hækkar. Það hefur verið fróðlegt að upplifa það að í fréttum RÚV segir að raf- orkuverð muni ekki hækka. Það þarf ekki mjög gáfaðan einstakling til að sjá að ef milliliðum fjölgar þá hefur það áhrif á vöruverð. Það mun hækka. Það hefur verið fróðlegt að upplifa það að mörgum er alveg sama um hvort við missum valdið yfir orku- málum til erlendra aðila. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með kjarki og dug Miðflokksmanna að standa einir með Orkunni okkar og reyna að upplýsa aðra alþingismenn um villigötur þeirra í orkupakkamál- inu. Það hefur verið fróðlegt að upplifa kraftinn og kjarkinn í öllum félögum mínum í Orkunni okkar sem eru tilbúin að verja sjálfstæði landsins í orkumálum. Það hefur verið fróðlegt að upplifa þetta allt og ég hef ennþá trú á því að alþingismenn noti samvisku sína og skynsemi og hafni þriðja orku- pakkanum í takt við vilja kjósenda sinna. Eftir Elinóru Ingu Sigurðardóttur »Ég hef ennþá trú á því að alþingismenn noti samvisku sína og skynsemi og hafni þriðja orkupakkanum í takt við vilja kjósenda sinna. Elinóra Inga Sigurðardóttir Höfundur er formaður Orkunnar okkar. elinoras@gmail.com Orkan okkar og umfjöllun um þriðja orkupakkann Mér þykir leitt að heyra að fólk sem kemur í viðtal í útvarpi kemur oft með í farteskinu „má ég sletta“, sem er uppáhaldssetning margra, því miður. Í flestum tilfellum kemur fólk sem er í starfi og maður skyldi ætla að þessir einstaklingar undirbúi sig og noti orðabók áður en viðkomandi mætir í við- talið. Mér finnst að Ríkisútvarpið eigi að sjá til þess að áminna fólk um ís- lenskt tal áður en það opnar munninn í útvarpi. Íslenskuunnandi. Íslenskt mál Tal Þeir sem tala í útvarpi eða sjón- varpi þurfa að vera vel máli farnir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.