Morgunblaðið - 29.08.2019, Side 64
64 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
50 ára Jóhann er
Akureyringur, fæddur
þar og uppalinn. Hann
hefur búið þar alla tíð.
Þaðan hefur hann sótt
sjóinn en er nú á bát á
Dalvík, háseti á Björg-
vin EA-311. Jóhann hef-
ur verið á sjó frá því að hann var ungur
maður, fyrst í kringum 1990.
Maki: Valrún Helga Magnúsdóttir bók-
haldsmaður, f. 1968. Hún er Akur-
eyringur.
Börn: Tvíburarnir Heiðar Gauti og Lilja
Katrín, f. 2002, og Gunnborg Petra, f.
2004.
Foreldrar: Hjónin Pétur Heiðar Sigurðs-
son múrari, fæddur 1942, og Gunnborg
Hugrún Gunnarsdóttir, fædd 1948. Þau
búa í Víðilundi á Akureyri.
Jóhann Pétursson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú veist að þótt fólk tali og tali,
þarf ekki að vera að nokkur maður skilji
það sem sagt er. Mundu að erfiðleikarnir
eru til þess að sigrast á þeim.
20. apríl - 20. maí
Naut Forðastu að eiga viðskipti við þá,
sem þú getur ekki treyst. Reyndu að snúa
erfiðri reynslu upp í jákvætt tækifæri til
þoska og lærdóms.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu viss um að þú njótir þess
sem þú upplifir jafnóðum, í stað þess að
vera með hugann við framtíðina. Vendu þig
af því að keyra skoðanir þínar ofan í aðra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það liggur í augum uppi að þú
þarft að sleppa tökunum á ákveðnum hlut-
um lífi þínu. Farðu þó ekki of geyst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er rétti tíminn til að gera breyt-
ingar hvort heldur er heima fyrir eða í
starfi. Samræður við foreldra og fjöl-
skyldumeðlimi skipta máli.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Samskipti við stofnanir eða hið op-
inbera koma flatt upp á þig á einhvern
hátt. Hafðu hugfast að aldrei er hægt að
gera svo að öllum líki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér tekst að koma umbótum til leiðar í
vinnunni, þú sérð hvernig hlutirnir mega
betur fara. Spjallaðu við samstarfsfólk þitt
og fáðu viðbrögð við álitamálum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Aðstæðurnar sem þú ert í í
dag skipta máli. Láttu ekki hugfallast held-
ur gakktu æðrulaus til verks. Forðastu að
skuldbinda þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Notaðu daginn til að huga að
fjármálunum. Breyttu til og farðu eftir því
sem þú telur best.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir fengið tækifæri til að
nýta auð einhvers þannig að það verði öll-
um í hag. Gleðstu líka yfir smáu hlutunum
sem þú nærð í gegn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er ástæðulaust að þú látir
skoðanir þínar liggja í láginni. Mundu að
það kemur alltaf að skuldadögum og því
þarf að kunna sér hóf í fjárfestingum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt rétt sé að fara eftir reglunum
að öllu jöfnu er líka þroskandi að leita
nýrra leiða. Fólk finnur að þú nýtur lífsins
og langar til að slást í hópinn.
er 2. flokkur Keflavíkur varð Ís-
landsmeistari 1978. Hann prófaði
einnig ýmsar aðrar íþróttagreinar.
um íþróttir, byrjaði ungur að spila
fótbolta í Keflavík og lék upp alla
yngri flokkana en hætti á toppnum,
S
igurbjörn Gunnarsson
fæddist 29. ágúst 1959 í
Keflavík. Þar ólst hann
upp, rétt við íþróttavöll-
inn, „við félagarnir vor-
um því mikið þar, ásamt því að
þvælast niður á bryggju og upp í
heiði og víðar“, segir hann. Sigur-
björn gekk í Myllubakkaskóla og
Holtaskóla sem svo heita nú, lauk
frá þeim síðarnefnda landsprófi, fór
síðan í framhaldsdeild, sem var
fyrsti bekkur menntaskóla. Þaðan lá
leiðin í Menntaskólann við Hamra-
hlíð en þar lauk Sigurbjörn stúd-
entsprófi árið 1978.
Sigurbjörn var kennari við Barna-
skólann í Keflavík veturinn 1978-
1979 en hóf síðan nám við Háskóla
Íslands. Hann fór í félagsfræði í eitt
ár en síðan í viðskiptafræði. Hann
útskrifaðist með cand. oecon.-gráðu
árið 1985 en fór síðar og lauk MBA-
námi við Edinborgarháskóla í Skot-
landi á árunum 1994-1995. Sigur-
björn vann sumarstörf m.a. í bygg-
ingarvöruverslun, frystihúsi,
byggingarvinnu og síðan fjögur
sumur í Fríhöfninni á Keflavík-
urflugvelli.
Sigurbjörn hóf störf í Landsbank-
anum 1986, fyrst sem sérfræðingur
á fjármálasviði og síðan á markaðs-
sviði en fór svo til dótturfyrirtækis
bankans, Landsbréfa hf., sem deild-
arstjóri til 1995. Hann var ráðinn til
Vátryggingafélags Íslands (VÍS) ár-
ið 1995 og starfaði þar í 10 ár, fyrst
sem deildarstjóri eignastýringar en
síðar sem framkvæmdastjóri líf-
tryggingasviðs og fjármálaþjónustu.
Sigurbjörn tók árið 2006 við starfi
framkvæmdastjóra Lyfju hf. og
gegndi því þar til fyrr á þessu ári,
eða í 13 ár. Hann var jafnframt
stjórnarformaður Heilsu ehf. og
annarra dótturfélaga Lyfju.
Hann hefur setið í stjórnum fjöl-
margra annarra fyrirtækja, þ.á m.
Almenna hlutabréfasjóðsins hf.,
Ingvars Helgasonar hf., Nýju
teiknistofunnar ehf., Kaupáss hf.,
Portfarma ehf., Lýsingar hf., Horns
fjárfestingarfélags, Landsbréfa hf.
og er nú í stjórnum Kaupfélags
Suðurnesja svf. og Samkaupa hf.
Sigurbjörn er mikill áhugamaður
Sigurbjörn fór fljótlega að taka þátt
í félagsstarfinu í kringum íþrótt-
irnar, sat í stjórn Ungmennafélags
Keflavíkur í 10 ár og stjórn Íþrótta-
bandalags Keflavíkur í nokkur ár.
Hann var framkvæmdastjóri lands-
móts UMFÍ sem haldið var í Kefla-
vík og Njarðvík 1984, kjörinn fyrst í
stjórn Ungmennafélags Íslands
1983 og sat þar samtals í 18 ár.
Hann var síðan fulltrúi UMFÍ í
stjórn Íslenskrar getspár frá 1987-
2008 eða í 21 ár. Sigurbjörn er núna
félagi í Rótarýklúbbnum Reykjavík-
Breiðholt og er forseti klúbbsins
þetta starfsár. Hann hlaut starfs-
bikar Keflavíkur, íþrótta- og ung-
mennafélags árið 2004 og gullheið-
ursmerki félagsins árið 2013 og
hann hlaut einnig starfsmerki
UMFÍ árið 1984 og gullmerki sam-
takanna árið 1999.
Áhugamálin eru ýmis, íþróttirnar
ofarlega á baugi, félagsmál einnig
og þjóðmálin almennt, viðskiptalífið
einkum. Sigurbjörn les nokkuð af
Sigurbjörn Gunnarsson, viðskiptafræðingur og fv. framkvæmdastjóri Lyfju – 60 ára
Fjölskyldan Sigurbjörn ásamt börnum, tengdadóttur og afastrák í Alicante fyrr í mánuðinum. Frá vinstri eru
Brynjar Freyr, afmælisbarnið, Berglind, Silja, Hildur, Skúli og Rakel.
Íþróttir, þjóðmál og viðskipti
Hjónin Sigurbjörn og Jenný í golfferð í Englandi fyrr í sumar.
60 ára Þórunn Gyða,
leikskólastjóri í Rofa-
borg, er fædd og uppal-
in í Reykjavík. Þórunn
útskrifaðist úr Fóstur-
skóla Íslands 1981, lauk
M.Edframhaldsgráðu í
stjórnun menntastofn-
ana 2001 og viðbótardiplómu í opinberri
stjórnsýslu 2014.
Eiginmaður: Stefán Sigfús Stefánsson, f.
1956, sérfr. hjá Eimskip.
Börn: Signý heilbrigðisverkfræðingur, f.
1983. Stefán Björn lögmaður, f. 1987,
maki Kristbjörg Fjóla Hrólfsdóttir lög-
fræðingur, f. 1988. Bjarki íþróttafræð-
ingur, f. 1990.
Foreldrar: Björn Pálsson aðalbókari, f.
1923, d. 2003, og Helga Þórðardóttir
húsmóðir, f. 1917, d. 2004.
Þórunn Gyða Björnsdóttir
Til hamingju með daginn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is