Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 66

Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 66
Bestur Vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson fékk 5 M í ágúst. ÁGÚST Kristján Jónsson kris@mbl.is Bakvörðurinn sprettharði hjá KR, Kristinn Jónsson, fékk fimm M í ein- kunnagjöf Morgunblaðsins í ágúst. Fékk hann M í öllum leikjunum fjór- um í mánuðinum og er næsthæstur í einkunnagjöf blaðsins á tíma- bilinu. Kristinn er með 14 M eins og samherji hans Óskar Örn Hauksson. Einu færra en Ásgeir Börkur Ásgeirs- son og einu meira en Hall- grímur Már Steingrímsson. KR-ingar eru í afar góðri stöðu fyrir lokasprettinn í Pepsi Max deildinni í knatt- spyrnu. Liðið er með sjö stiga forskot á Breiðablik og fjórar umferðir eftir. „Næsti leikur skipt- ir mestu máli. Sama gamla tuggan. Auðvitað verða þetta hörkuleikir því mikið er undir hjá öllum þeim liðum sem við eigum eftir að mæta. Þetta verður erfitt en við erum á fínu róli og með mjög gott lið,“ sagði Kristinn þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Hann óttast ekki að KR-ingar falli í þá gryfju að reyna að verja forskot sitt frekar en að vera sókn- djarfir. „Nei við erum með það þroskað lið og með leik- menn sem hafa verið í þess- um slag áður. Ég held að þessi staða komi ekki til með að hafa áhrif á okkur á þann hátt.“ Allir nálægt sínu besta KR hefur verið langstöðugasta lið- ið í sumar. KR og ÍBV hafa skorið sig úr á toppnum og botninum. Að öðru leyti virðast allir geta unnið alla í deildinni. Hverju þakkar Kristin þessa stöðugu spila- mennsku KR-liðsins? „Ég held að við getum talað um alla í liðinu. Allir í liðinu hafa spilað hrika- lega vel og verið nálægt sínu besta. Þegar við höfum átt leiki þar sem við náum ekki að sýna okkar besta þá höfum við þó varist vel og verið með grunngildin í lagi. Við vit- um einnig að í liðinu eru menn sem eru nógu góðir til að búa til mörk og ráða úrslitum í leikjum. Við erum með góðan leikmannahóp og í honum hefur skapast liðs- heild,“ benti Kristinn á. Grunnurinn lagður í fyrra Mikill munur er á stiga- söfnun KR-liðsins á milli tímabila. Þó er leikmannahóp- urinn svipaður og sami þjálfarinn heldur um stjórnartaumana. Þá vann KR tíu leiki af tuttugu og tveimur en nú hefur liðið unnið tólf af átján. Spurður út í muninn á frammistöðu KR á milli ára segir Kristinn að ekki hafi verið fallið frá þeim áherslum sem lagðar voru í fyrra heldur reynt að út- færa þær betur. „Grunnurinn fyrir þetta tímabil var lagður í fyrra. Í janúar í fyrra byrjuðu Rúnar (Kristinsson) og Bjarni (Guð- jónsson) að vinna með viss atriði. Keyrt var á því í fyrra en bætt ofan á í ár. Menn vita til hvers er ætlast og hvernig þeir vilja að liðið spili. Nú er betri taktur í liðinu og leikmenn þekkja betur þann sem spilar við hlið- ina á þeim. Nú er meiri þekking hjá hverjum og einum varðandi leik- skipulagið. Erfitt er að benda á eitt- hvað sérstakt en þegar stöðugt er verið að vinna með sömu áhersl- urnar þá er hægt að bæta ofan á grunninn. Þegar leið á tímabilið í fyrra fannst mér skilningur aukast á milli manna og okkur tókst þá að þróa okkar leik. Var það tekið skrefinu lengra á undirbúningstímabilinu og reynt er að gera liðið sífellt betra.“ Hugurinn er hér heima Kristinn varð 29 ára í mánuðinum og á því nóg eftir á knattspyrnuvell- inum. Hann segist vera kominn heim til að vera og ekki er á döfinni að fara aftur utan í atvinnumennsku en hann lék um tíma bæði í Svíþjóð og Noregi. „Ég held að ég geti alveg sagt að ég er í boltanum á öðrum forsendum en fyrir fjórum til fimm árum. Ég stefni ekki lengur að því að fara út og spila en reyni að gera eins vel og ég get hér heima. Ég er ánægður á Ís- land og er ekki að horfa lengra en það. Mér líður vel í Vesturbænum sem er góður staður að vera á, sér- staklega þegar vel gengur,“ sagði Kristinn Jónsson. Leikmenn toppliðsins vita til hvers er ætlast  Kristinn Jónsson, leikmaður KR, fékk flest M í einkunnagjöfinni í ágústmánuði Kristinn Jónsson » Er 29 ára gamall bakvörður á sínu öðru ári hjá KR. » Er uppalinn hjá Breiðabliki og á að baki 148 leiki í efstu deild fyrir liðið. » Hefur leikið 8 A-landsleiki og í atvinnumennsku sem láns- maður hjá Brommapojkarna í Svíþjóð 2014 og svo með Sarpsborg og Sogndal í Noregi á árunum 2016-2017. 4-4-2 Lið ágústmánaðar hjá Morgunblaðinu Pepsi Max-deild karla 2019 Fjöldi sem leikmaður fékk í mánuðinum33 Varamenn: Haraldur Björnsson, Stjörnunni Birkir Valur Jónsson, HK Callum Williams, KA Ásgeir Börkur Ásgeirsson, HK Ólafur Ingi Skúlason, Fylki Andri Adolphsson, Val Kristján Flóki Finnbogason, KR 2 3 3 3 3 3 3 Daði Freyr Arnarsson FH Pétur Viðarsson FH Þorsteinn Már Ragnarsson Stjörnunni Arnþór Ari Atlason HK Daði Ólafsson Fylki Kári Árnason Víkingi R. Viktor Örn Margeirsson Breiðabliki Steven Lennon FH Patrick Pedersen Val Kristinn Jónsson KR Alfons Sampsted Breiðabliki 2 3 5 33 3 3 3 4 4 3 Morgunblaðið/Árni Sæberg 66 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 Bræðurnir Brynjólfur Darri Will- umsson og Willum Þór Willumsson eru báðir í 26 manna æfingahóp ís- lenska U21 árs landsliðsins í knatt- spyrnu fyrir leikina gegn Lúxem- borg og Armeníu í undankeppni EM í september en Arnar Þór Við- arsson, þjálfari íslenska liðsins, kynnti hópinn í gær. Leikurinn gegn Lúxemborg fer fram hinn 6. september á Víkingsvelli og leik- urinn gegn Armeníu 9. september líka á Víkingsvelli en þetta eru fyrstu leikir Íslands í undankeppn- inni. Brynjólfur hefur farið mikinn með Breiðabliki í undanförnum leikjum og hefur skorað þrjú mörk í fjórum leikjum fyrir Blika í ágúst- mánuði en hann er fæddur árið 2000. Willum Þór hefur farið vel af stað með hvítrússneska liðinu BATE á þessari leiktíð og hefur komið við sögu í tíu leikjum með liðinu á tímabilinu. Fjórum sinnum hefur hann verið í byrjunarliðinu en BATE er í öðru sæti úrvalsdeild- arinnar með 43 stig, tveimur stig- um minna en topplið Dinamo Brest, en BATE á leik til góða. Alls eru sextán leikmenn úr úr- valsdeildinni, Pepsi Max-deildinni, í hópnum en FH á flesta fulltrúa eða þrjá; Daða Frey Arnarsson, Jóna- tan Inga Jónsson og Þóri Jóhann Helgason. Þá eiga nokkur lið tvo fulltrúa í hópnum en þeir Finnur Tómas Pálmason, varnarmaður KR, og Valdimar Þór Ingimund- arson, sóknarmaður Fylkis, eru einu leikmennirnir í hópnum sem hafa ekki leikið áður með U21 árs landsliðinu. Fylkir, ÍA og Víkingur Reykjavík eiga öll tvo fulltrúa í æfingahópnum og þá leika tíu leik- menn sem atvinnumenn erlendis, þar af fjórir í Danmörku. Hinn 4. september næstkomandi verður lokahópurinn svo kynntur en æfingahópinn í heild sinni má sjá inni á mbl.is/sport. bjarnih@mbl.is Bræður í æfingahópnum Morgunblaðið/Ómar Barátta Brynjólfur Darri Willums- son í einvígi við Ólaf Karl Finsen. Körfuknattleiks- deild Grindavík- ur hefur gert tveggja ára samning við Dag Kár Jónsson en þetta staðfesti félagið á Face- book-síðu sinni í gær. Dagur spil- aði með Flyers Wels í Austurríki á síðustu leiktíð en var þar á undan í herbúðum Grindavíkur. Dagur er uppalinn hjá Stjörnunni í Garðabæ og lék þar til 2015. Hann fór til Bandaríkjanna í háskóla í kjölfarið en ári síðar var hann kom- inn til Grindavíkur, þar sem hann lék í tvö tímabil. Leikmaðurinn samdi aftur við Stjörnuna eftir þarsíðasta tímabil, en lék ekki með liðinu þar sem Flyers Wels bauð honum samning og nú er hann aftur genginn í raðir Grindavíkur. Dagur skoraði 10,5 stig að með- altali og gaf þrjár stoðsendingar í 36 leikjum í austurrísku deildinni á síðustu leiktíð. Tímabilið 2017-2018 skoraði Dagur 17 stig að meðaltali fyrir Grindavík og gaf sjö stoðsend- ingar. Hann var valinn besti leik- maður Grindavíkur um vorið. Þá var hann í íslenska landsliðinu sem vann brons á Smáþjóðaleik- unum fyrr á árinu. Daníel Guðni Guðmundsson mun stýra liði Grindavíkur í Dominos- deildinni í vetur en hann tekur við liðinu af Jóhanni Þór Ólafssyni sem ákvað að taka sér frí frá körfubolta eftir að síðasta tímabili lauk. sport@mbl.is Dagur Kár genginn til liðs við Grindavíkur Dagur Kár Jónsson Þvílíkur helvítis meistari og gleðigjafi sem Arnar Pét- ursson er. Ég kann svo vel að meta þegar íþróttafólk gefur af sér og gerir eitthvað extra fyrir áhorfendur, og það er óhætt að segja að í þeim efnum sé Arnar ekki síðri en að hlaupa maraþon eins og vindurinn. Jákvæðnin og gleðin geisl- aði hreinlega af manninum í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina, og þar sem hann geystist um á methraða gaf hann sér samt tíma til að gefa barnungum aðdáendum spaða- fimmur og brosa til alls þess magnaða stuðningsfólks sem raðaði sér við hlaupabrautina. Sumt af þessu frábæra fólki var þó reyndar ekki mætt út þegar Arnar hljóp hjá – það var ekki búist við því að nokk- ur ferðaðist á þeim hraða sem hann gerði. Yfir marklínuna fór hann svo á handahlaupum og skellti sér í armbeygjur, svona til að undirstrika fyrir fólki að það væri ekki að horfa á neitt venjulegan náunga og að enn væri hellingur af orku á tankn- um. Nóg orka þrátt fyrir að hann hefði hlaupið á 2:23,08 klukkustundum, eða heilu kort- eri á undan næsta manni. Mér reiknast til að Arnar hafi hlaupið maraþonið á með- alhraðanum 17,61 km/klst. Margir ættu erfitt með að end- ast mínútu á þeim hraða á hlaupabrettinu. Svo held ég að hann hafi bara hjólað af stað í eitthvert fjölskylduboð, meðal annars í gegnum Öskjuhlíðina þar sem hann glaðbeittur hvatti lúna eftirbáta sína sem fyrir hönd- um áttu síðustu kílómetrana í sínu maraþoni. Eftirbáta sem ekki nokkur séns var að gætu hreyft sig meira eftir að þeir sigldu loks í höfn. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is KNATTSPYRNA Undankeppni EM kvenna 2021: Laugardalsv.: Ísland – Ungverjaland .18.45 3. deild karla: Bessastaðavöllur: Álftanes – Reynir S.....18 HANDKNATTLEIKUR Reykjavíkurmót kvenna: Austurberg: ÍR – Víkingur...................19.30 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.