Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 68
Lítið óvænt í liðsuppstillingunni
Jón Þór Hauksson, þjálfari íslenska
liðsins, er að stýra liðinu í sínum
fyrsta keppnisleik í kvöld gegn
Ungverjalandi en það er afar mik-
ilvægt fyrir hann sem þjálfara að
byrja vel enda var ráðning hans
talsvert gagnrýnd á sínum tíma.
Ungverjaland er í 45. sæti FIFA-
listans en íslenska liðið er í 17. sæti
og því ljóst að liðið á að fara með
sigur af hólmi, sér í lagi þar sem
leikurinn er á heimavelli. Þjálf-
arinn hefur sjálfur sagt að hann
eigi von á því að
íslenka liðið
verði meira með
boltann í leiknum
og Ungverjar
muni liggja til
baka.
Bakverðir liðs-
ins munu því
þurfa að taka
virkan þátt í
sóknarleiknum
til þess að opna fyrir kantana.
Hægribakvarðarstaðan er stærsta
spurningarmerkið en Ásta Eir
Árnadóttir gæti óvænt komið inn í
byrjunarliðið enda talsvert meira
sóknarþenkjandi en Ingibjörg Sig-
urðardóttir. Miðverðir liðsins verða
þeir sömu og hafa spilað flesta vin-
áttuleiki þess undir stjórn Jóns
Þórs og þá verður að teljast líklegt
að þjálfarinn muni stilla upp með
tvo afturliggjandi miðjumenn og
svo Dagnýju Brynjarsdóttur þar
fyrir framan.
Líklegt byrjunarlið Íslands:
Markmaður: Sandra Sigurð-
ardóttir.
Varnarmenn: Ingibjörg Sigurð-
ardóttir, Sif Atladóttir, Glódís
Perla Viggósdóttir, Hallbera
Guðný Gísladóttir.
Miðjumenn: Sara Björk Gunn-
arsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir,
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir.
Sóknarmenn: Hlín Eiríksdóttir,
Elín Metta Jensen, Agla María Al-
bertsdóttir. bjarnih@mbl.is
Jón Þór Hauksson stillir upp sínu fyrsta byrjunarliði í keppnisleik í kvöld gegn Ungverjum
Jón Þór
Hauksson
68 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
EM 2021
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Sif Atladóttir, einn reyndasti leik-
maður íslenska kvennalandsliðsins í
knattspyrnu, er ánægð með þá
endurnýjun sem er að eiga sér stað
hjá landsliðinu. Ísland mætir Ung-
verjalandi á Laugardalsvelli í kvöld
í fyrsta leik sínum í undankeppni
EM 2021 og liðið leikur svo gegn
Slóvakíu 2. september á Laugar-
dalsvelli. Sif telur að enginn leikur
í undankeppninni sé gefins enda
kvennaboltinn á hraðri uppleið alls-
staðar í heiminum en Ísland leikur
í F-riðli undankeppninnar ásamt
Ungverjalandi, Lettlandi, Slóvakíu
og Svíþjóð.
„Þessi undankeppni leggst vel í
mig og það er gott að vera loksins
komin heim aftur,“ sagði Sif í sam-
tali við Morgunblaðið á æfingu ís-
lenska liðsins á Laugardalsvelli á
þriðjudaginn síðasta. „Það er langt
síðan við spiluðum á Laugardals-
velli þannig að þetta verður bara
gaman. Það sýndi sig og sannaði á
HM að kvennaknattspyrnan hefur
gefið mikið í á undanförnum árum.
Í dag veit maður aldrei nákvæm-
lega hvað maður fær frá mótherj-
um sínum þannig að við þurfum að
eiga góðan leik og einbeita okkur
að okkur sjálfum ef við ætlum okk-
ur sigur á fimmtudaginn (í dag).“
Mikilvægt að byrja vel
Leikirnir gegn Ungverjalandi og
Slóvakíu verða fyrstu keppnisleikir
liðsins undir stjórn Jóns Þórs
Haukssonar sem tók við þjálfun
liðsins af Frey Alexanderssyni í
október á síðasta ári.
„Þetta eru auðvitað tveir þjálf-
arar með sínar hugmyndir en þeir
eiga það báðir sameiginlegt að vera
góðir þjálfarar. Ég er mjög hrifinn
af Jóni Þóri en Freysi vann mjög
gott starf fyrir landsliðið þannig að
heilt yfir eru þetta bara tveir þjálf-
arar með kannski mismunandi
áherslur. Fótbolti er hins vegar
alltaf fótbolti og þegar allt kemur
til alls snýst þetta um að skora
fleiri mörk en andstæðingurinn.
Kvennaknattspyrnan er komin það
langt að í dag eru engir leikir gef-
ins í þessu. Fyrsti leikur und-
ankeppninnar er á fimmtudaginn (í
dag) og þá byrjar þetta. Við klár-
um þann leik og getum svo talað
saman en markmiðið í þessari
undankeppni er einfaldlega að taka
einn leik í einu. Við vitum allar
hvað við viljum í þessari undan-
keppni og markmiðið er að sjálf-
sögðu að byrja þessa undankeppni
af krafti.“
Framtíðin björt hjá liðinu
Það er ákveðin endurnýjun að
eiga sér stað hjá íslenska kvenna-
landsliðinu og alls eru sex leikmenn
sem eru 19 ára eða yngri í hópnum
fyrir leikina gegn Ungverjum og
Slóvökum. Varnarmaðurinn fagnar
þessari þróun og segir að liðið hafi
skapað gott umhverfi fyrir yngri
leikmenn til þess að þrífast í.
„Við erum með góðan hóp af
reyndum eldri leikmönnum sem
kunna að taka á móti ungum leik-
mönnum. Það eru allir leikmenn
mikilvægir og við höfum skapað
gott umhverfi fyrir nýliða sem eru
að stíga sín fyrstu skref með lands-
liðinu. Við pössum vel upp á það að
raddir yngri leikmanna liðsins
heyrist því það er mikilvægt að
þær fái að tjá sig og láta í ljós sína
skoðun. Við erum með marga frá-
bæra leiðtoga í þessum hóp sem sjá
til þess að yngri leikmönnum liðs-
ins líði vel. Þessar ungu stelpur eru
auðvitað bara framtíð landsliðsins.
Þær eru með frábært hugarfar og
mikinn vilja til þess að læra og
bæta sig. Þær eru ennþá ungar og
eru ennþá að þroskast og þær
munu lenda í ákveðnu mótlæti sem
á endanum mun bara styrkja þær.
Þessar stelpur vita hvað þær vilja
og hversu langt þær vilja ná og það
er okkar hlutverk sem erum í eldri
kantinum í landsliðinu að hjálpa
þeim að taka næstu skref á sínum
ferli. Framtíðin er björt hjá þeim
og landsliðinu og það er virkilega
gaman að fá að vera þátttakandi í
þeirra fyrstu skrefum með íslenska
landsliðinu.“
Vill sjá fleiri taka skrefið
Sif leikur með sænska úrvals-
deildarliðinu Kristianstad en hún
hefur verið atvinnumaður frá árinu
2011. Hún viðurkennir að það geti
verið ákveðið sjokk fyrir leikmenn
að fara í atvinnumennsku í fyrsta
sinn en vonast til þess að fleiri ís-
lenskir leikmenn stígi skrefið og
gerist atvinnumenn á næstu árum.
„Umhverfið á Íslandi er mjög
sérstakt og sérstaklega hjá þessum
toppliðum. Umgjörðin hjá kvenna-
liðunum hérna heima er frábær,
bæði vellirnir, klefarnir, æfinga-
aðstæðurnar og æfingatímarnir.
Svo ferðu út í atvinnumennsku og
það er ákveðið sjokk að fara út,
það verður bara að viðurkennast.
Við erum ennþá að berjast fyrir
þessum réttindum úti og þá skiptir
hugarfarið öllu máli. Ég vil sjá
fleiri íslenska leikmenn taka skrefið
og fara út en það þarf hver og einn
að finna það hjá sjálfum sér hve-
nær rétti tímapunkturinn kemur.“
Það hefur reynst mörgum leik-
mönnum erfitt að brjóta sér leið
inn í byrjunarlið íslenska landsliðs-
ins á undanförnum árum en Sif
þekkir það sjálf að hafa ekki alltaf
átt fast sæti í liðinu. Hún ítrekar
hins vegar að aukavinna og rétt
hugarfar skili manni alltaf árangri
á endanum.
Allir þurfa að vinna fyrir sínu
„Landsliðið er sérstakt umhverfi
og við erum að hittast kannski sex
til sjö sinnum yfir árið. Að sanna
sig fyrir landsliðsþjálfara er allt
annað dæmi en að sanna sig fyrir
þjálfara sínum hjá félagsliði. Í
landsliðinu færðu kannski þrjá til
fjóra daga til að sýna þig og sanna
á meðan þú færð tækifæri til þess
alla daga vikunnar hjá félagsliðinu
þínu. Landsliðsþjálfarar eru líka
stundum að leita að mjög
ákveðnum hlutum sem henta
hverju sinni og þá getur reynst erf-
itt að sanna sig, jafnvel þótt maður
sé að standa sig vel á æfingum.
Mín skilaboð til leikmanna sem eru
að reyna að brjóta sér leið inn í að-
alliðið, hvort sem það er hjá fé-
lagsliði eða landsliði, er að gera
alltaf sitt og ekki gefast upp. Auka
vinnan og rétt hugarfar mun á end-
anum skila manni árangri enda er
það lykillinn að öllu. Það er fyrst
og fremst gríðarlega mikill heiður
að vera kallaður í landsliðið og það
þurfa allir að vinna fyrir sínu sæti
hér, þar með talin ég sjálf,“ sagði
Sif Atladóttir í samtali við Morg-
unblaðið.
Fótbolti er bara fótbolti
Engin stig gefins í undankeppni EM 2021 Fagnar endurnýjuninni í íslenska
landsliðshópnum Vill sjá fleiri unga leikmenn stíga skref í átt að atvinnumennsku
Morgunblaðið/Hari
Reynd Sif Atladóttir spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2007 en hún á að baki 79 landsleiki fyrir Ísland.
EM 2021
» Ísland (10. sæti á styrk-
leikalista FIFA í Evrópu) er í
riðli með Svíþjóð (5.), Ung-
verjalandi (25.), Slóvakíu (26.)
og Lettlandi (40.).
» Efsta lið riðilsins kemst
beint á EM í Englandi 2021.
» Þrjú lið með bestan árangur
í 2. sæti í riðlakeppninni fara
beint á EM. Hin sex liðin sem
enda í 2. sæti fara í umspil um
þrjú síðustu sætin á EM.
Ekki á af norsku landsliðskonunni
Noru Mörk að ganga. Hún meiddist
á hné á dögunum með liði sínu CSM
Búkarest í Rúmeníu. Búist er við því
að skyttan verði frá í nokkra mán-
uði. Hún hefur átt sæti hjá Þóri
Hergeirssyni í norska landsliðinu í
handknattleik þegar hún hefur verið
heil heilsu. Nú er óljóst hvort Þórir
geti teflt henni fram á HM í Japan í
desember. Mörk sleit krossband í
hné í febrúar 2008 og þurfti að fara
í aðra aðgerð hálfu ári síðar.
Maryna Arzamasova, ein fremsta
800 metra hlaupakona í heimi, er
komin í bann eftir að hún féll á
lyfjaprófi. Efnið Ligandrol fannst í
sýni hennar, en það hefur svipuð
áhrif og anabólískir sterar. Efnið
hjálpar til við vöðvaaukningu og
þyngdartap. Arzamasova, sem er frá
Hvíta-Rússlandi, varð heimsmeistari
í 800 metra hlaupi í Peking árið
2015 og Evrópumeistari í Zürich ár-
ið áður.
Ekki liggur fyrir hversu langt bann
Arzamasova fær, en hún má ekki
keppa á HM í frjálsum íþróttum í
Doha sem hefst í næsta mánuði.
Eric Cantona
verður heiðraður
á morgun þegar
dregið verður í
riðla fyrir Meist-
aradeild Evrópu í
Monte Carlo. For-
seti UEFA, Aleks-
ander Ceferin,
mun afhenda
Frakkanum verðlaunin en verðlaunin
eru kölluð Forsetaverðlaun UEFA. Í
ilkynningu kemur fram að Cantona
sé ekki einungis heiðraður fyrir
snilli sína á vellinum heldur einnig
fyrir ýmislegt utan vallar eins og
mannúðarstörf eftir að ferlinum
sleppti.
Kylfingurinn Tiger Woods neydd-
ist til þess að gangast undir aðgerð
á hné í síðustu viku. Hann stefnir á
að snúa aftur á golfvöllinn eftir tvo
mánuði. Hinn 43 ára gamli Woods
vann sitt fyrsta risamót í 11 ár í
apríl, en hann segir að aðgerðin hafi
verið smávægileg á vinstra hné.
Hann vonast til þess að gera spilað
á nýju PGA-móti sem fram fer í Jap-
an síðustu helgina í októ-
ber.Woods hefur verið
þjakaður af meiðslum
síðustu ár og meðal
annars farið í fjórar
aðgerðir á baki og
fjórar á hné, fyrir
aðgerðina í síð-
ustu viku.
Eitt
ogannað