Morgunblaðið - 29.08.2019, Síða 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Einstakur heimur ungbarnasunds
er kannaður í íslensku heimildar-
myndinni KAF sem verður frum-
sýnd hérlendis næstkomandi
fimmtudag, 5. september, í Bíó
paradís.KAF gefur innsýn í heim
Snorra Magnússonar þroskaþjálfa
sem hefur helgað líf sitt kennslu-
aðferðum í ungbarnasundi.
„Myndin er tekin upp í Skála-
túnslaug í Mosfellsbæ en þar hefur
Snorri byggt upp litríkan heim milli
fjalls og fjöru sem skýlir foreldrum
og börnum fyrir veðri og vindum
allan ársins hring,“ eins og aðstand-
endur myndarinnar orða það.
Í heimildarmyndinni er fylgst
með ungbörnum stálpast og þrosk-
ast í sundinu og því hvernig for-
eldrar kynnast börnum sínum í
gegnum upplifun í vatni.
Litríkur heimur
Þrjár konur koma að leikstjórn
myndarinnar, þar af tvær myndlist-
arkonur. Það eru þær Elín Hans-
dóttir, Anna Rún Tryggvadóttir og
Hanna Björk Valsdóttir sem sömu-
leiðis er framleiðandi myndarinnar.
Hanna segir myndina mikið fyrir
augað. „Myndin er mjög sjónræn.
Elín og Anna eru myndlistarkonur
svo við nálguðumst efnið út frá
myndræna þættinum. Heimurinn
sem Snorri hefur skapað í kringum
sig er einstakur. Hann er með þessa
hringlaga sundlaug sem er bara fyr-
ir ungbarnasundið og er þar búinn
að sanka að sér alls konar skemmti-
legum og litríkum hlutum.“
Áhugi kvennanna þriggja á ung-
barnasundi Snorra kviknaði þegar
Elín og Anna voru með sín börn í
sundi hjá honum. „Þær heilluðust
strax af starfi hans, sem þeim
fannst afhjúpa hvað við vitum lítið
um upplifun ungbarna á umhverfi
sínu á þessum fyrstu mánuðum lífs-
sins.“
Snorri hefur kennt ungbarnasund
í 28 ár en hann hefur kennt þús-
undum barna ungbarnasund. „Hann
er ákveðinn frumkvöðull á Íslandi
enda með þeim fyrstu til að fara út í
ungbarnasund. Hann er í grunninn
íþróttakennari og þroskaþjálfi og
þróar sínar eigin aðferðir byggðar á
sínu innsæi og sinni þekkingu,“ seg-
ir Hanna.
„Hans aðferðir eru aðeins öðru-
vísi en þær sem þekkjast úti í heimi.
Tímarnir eru byggðir upp á rútínu,
þar sem hann notar mikið söng, vís-
ur og slátt á vatnsyfirborðið. Hann
er því að tvinna saman hljóð, tungu-
málið og líkam-
lega upplifun af
vatninu.
Börnin læra að
þekkja lögin og
kynnast þannig
rútínunni og það
veitir þeim ör-
yggi.“
Viðfangsefni
heimildarmynd-
arinnar eru fleiri.
Í henni er rýnt í „árin sem enginn
man“ sem og sundmenningu Íslend-
inga.
„Myndin fjallar líka um fyrstu
mánuði í lífi barna, frá fæðingu og
til tveggja ára aldurs sem eru oft
kölluð árin sem enginn man. Sæunn
Kjartansdóttir gaf út bók með því
nafni sem mjög margir nýbakaðir
foreldrar lesa. Þetta er aldur sem
hefur ekki verið mikið kannaður en
rannsóknir hafa færst í aukana
undanfarin ár og þær hafa leitt í
ljós að börn á þessum aldri geta og
skilja meira en áður var talið og eru
fullfær um að eiga samskipti.
Það sem Snorri gerir náttúrulega
er að hann les börnin og er í sam-
skiptum við þau þó þau kunni ekki
að tala. Börnin geta tjáð sig án
orða. Það er svo mikil þróun og
mikill þroski sem á sér stað á þess-
um fyrstu mánuðum svo myndin
fjallar líka um það.“
Hvað sundmenninguna varðar
segir Hanna: „Það er allt þetta
heita vatn sem við höfum sem gerir
okkur kleift að vera lengur í sundi
en aðrar þjóðir í kringum okkur.
Það sem er svo sérstakt við ung-
barnasund á Íslandi er að við getum
verið með börnin í heitara vatni
lengur. Erlendis er þetta oft bara
hálftími einu sinni í viku vegna þess
að vatnið í laugunum er ekki eins
heitt. Laugin hjá Snorra er til dæm-
is frekar heit sem er betra fyrir
börnin. Íslensk börn fara mikið í
sund og ég held að mörgum finnist
gott að geta byrjað strax að fara í
sund.“
Í myndinni koma fram fræði-
menn sem segja frá ýmsu í
tengslum við fyrstu mánuði í lífi
barna. Hanna segir að mikil rann-
sóknarvinna liggi að baki myndinni.
„Titillinn er tvíhliða. Hann nær
bæði til þess að börnin fara í kaf og
þess að við erum að kafa svolítið of-
an í viðfangsefnið.“
Að baki myndinni liggur mikil
rannsóknarvinna. „Við fengum
fræðimenn til þess að kafa ofan í
efnið með okkur. Þeir ræða um
þessa fyrstu mánuði og ár og um
þessar rannsóknir sem hafa verið
gerðar, hversu mikið ungbörn skilja
og skynja. Þó þau geti ekki tjáð sig
þá skilja þau miklu meira en marg-
ur heldur.“
Erlendir áhorfendur hissa
KAF var heimsfrumsýnd í mars
síðastliðnum á Salem Film Festival
í Bandaríkjum. Heimildarmyndin
hefur ferðast um heiminn og verið
sýnd á kvikmyndahátíðum í Evr-
ópu, Ástralíu og Mexíkó. Hún var
meðal annars valin á Sheffield Doc
Fest í Bretlandi sem er ein af
stærstu heimildarmyndahátíðum í
heimi.
„Ég held að erlendum áhorfend-
um hafi fundist hún mjög skemmti-
leg og finnist þetta mjög merkilegt,
enda hafa þeir kannski ekkert séð
svona áður. Börnin standa þarna í
lófum, börn sem geta ekki staðið
nema bara í sundinu. Svo fara þau í
kafið og margir hafa ekkert séð
svona áður og eiginlega trúðu ekki
að þetta væri hægt.“
Eins og áður segir er myndin
frumsýnd 5. september en hún fer í
almennar sýningar sama dag.
Hanna hvetur Íslendinga til að
skella sér í bíó. „Þetta er heimildar-
mynd sem er byggð upp eins og bíó-
mynd og við viljum náttúrulega
hvetja alla til þess að fara í bíó að
sjá hana. Íslenskar heimildarmynd-
ir eiga það skilið að fólk mæti í bíó.“
Merkileg börn standandi í lófum
Innsýn í sérstakan heim ungbarnasunds í Mosfellsbæ í nýrri heimildarmynd Erlendir áhorf-
endur hissa á getu barnanna Söngur og litadýrð í sundi Einnig rýnt í „árin sem enginn man“
Stilla úr KAF
Snorri og barn Ungbörnin finna til mikils öryggis í sundi hjá Snorra og hann hefur 28 ára reynslu af ungbarnasundi.
Anna Rún
Tryggvadóttir
Hanna Björk
Valsdóttir
Elín
Hansdóttir
Hljómsveitin múm gaf út sína fyrstu
plötu, Yesterday was Dramatic –
Today is OK, á Þorláksmessu árið
1999 og á morgun, 30. ágúst, verður
platan endurútgefin í sérstakri af-
mælisútgáfu.
Þau Gyða Valtýsdóttir, Kristín
Anna Valtýsdóttir, Gunnar Örn Tyn-
es og Örvar Smárason, sem skipuðu
múm, unnu plötuna sumarið 1999 og
var hún að mestu tekin upp í loftlít-
illi svitakompu, eins og segir í til-
kynningu, þar sem smiðir unnu
hörðum höndum í næsta herbergi
þannig að heyrnartól hljómsveit-
armeðlima komu sér vel.
„Það leið þó ekki á löngu þar til
heimurinn hafði opnað eyrun fyrir
lögunum 10 sem prýða plötuna og
áttu síðar eftir að verða staðfastur
burðarbiti í því sívaxandi virki sem
elektrónísk popptónlist var í upphafi
aldarinnar,“ segir í tilkynningunni
og að þegar platan hafi komið út hafi
elektrónísk tónlist almennt verið í
fullum blóma en samt sem áður hafi
hugmyndin um blöndun raftónlistar
og órafmagnaðar tónlistar verið
nokkuð ný af popp-nálinni. Á fyrstu
plötunni fléttaði múm saman þessa
ólíku þætti á „lífrænan og óþving-
aðan hátt“ og veitti tónlistarmönn-
um víða innblástur.
Platan kom út á alþjóðavísu árið
2001 og hlaut mikið lof erlendis, m.a.
í Pitchfork og Guardian. Í kjölfarið
var gefið út safn endurhljóðbland-
ana af lögum hennar og endurhljóð-
blandanir Ruxpin, Bix, μ-Ziq og Bio-
gen verða á afmælisútgáfu plötunn-
ar og á henni verður einnig að finna
nýjar endurgerðir Kronos-kvart-
ettsins, Hauschka og Sóleyjar.
Þýska útgáfufyrirtækið Morr
Music stendur að endurútgáfu plöt-
unnar sem verður fáanleg á netveit-
um og í formi þrefaldrar vínylplötu,
tvöfalds geisladisks eða snældu.
Hljómsveitin heldur í tónleikaferð
um Evrópu til að fagna útgáfunni og
afmælinu og kemur m.a. við í Zürich,
París, Brussel, London og Berlín.
Múm fagnar 20 ára af-
mæli frumburðar síns
Tvítug Fyrsta plata múm, Yester-
day was Dramatic – Today is OK,
verður tvítug á Þorláksmessu. Hún
kom út á alþjóðavísu árið 2001.