Morgunblaðið - 29.08.2019, Page 80
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
afsláttur af
vörum fyrir
svefnherbergið
29. ágúst - 9. september
20-50%
BELLISSIMO rúmföt. 140x200,60x63 cm. 7.995 kr. Nú 5.995 kr.
Tónleikaröðinni Sumarjazz lýkur í
Salnum í Kópavogi í dag kl. 17 með
tónleikum Hot Eskimos. Hljóm-
sveitin mun flytja útsetningar á ís-
lenskri popp-, rokk- og pönktónlist
auk erlendra laga og frumsamins
efnis. Sveitina skipa Karl Olgeirs-
son píanóleikari, Jón Rafnsson
kontrabassaleikari og Kristinn
Snær Agnarsson trommuleikari.
Hot Eskimos ljúka
Sumarjazzi
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 241. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sif Atladóttir er á meðal reyndustu
leikmanna íslenska kvennalands-
liðsins í knattspyrnu sem mætir
Ungverjum í fyrsta leik sínum í und-
ankeppni EM 2021 á Laugardalsvelli
í kvöld. Ákveðin endurnýjun er að
eiga sér stað hjá landsliðinu og Sif
telur að eldri leikmenn liðsins hafi
skapað gott umhverfi fyrir þá yngri
til að stíga inn í á síðustu árum.
Tekur fagnandi á móti
ungviðinu í landsliðinu
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Fimmtu systkina-
tónleikarnir
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Söngvarinn Ragnar Bjarnason,
Raggi Bjarna, er að undirbúa sig
fyrir kveðjustund á stóra sviðinu, en
síðustu stórtónleikar hans verða í
Eldborg í Hörpu nk. sunnudags-
kvöld, 1. september. „Ferillinn hefur
verið ótrúlegt ævintýri í manns-
aldur, ég hef unnið með dásamlegu
fólki og hef ekkert nema gott um
þetta að segja,“ segir goðsögnin,
sem glímdi við veikindi í sumar.
Raggi er engum líkur. Hann hefur
verið í bransanum lengur en elstu
menn muna eða í um 70 ár – verður
sjálfur 85 ára í næsta mánuði – og
margir héldu að hann hefði sungið
sitt síðasta á stórtónleikum í Hörpu í
mars sem leið, en það er öðru nær.
„Blessaður vertu, ég mæti galvaskur
og keyri þessa tónleika í gegn,“ segir
söngvarinn síkáti um tímamóta-
viðburðinn á sunnudag, en hann ek-
ur annars um í amerískum kagga,
Mercury Grand Marquis 2006.
„Tónleikarnir í mars heppnuðust
virkilega vel og ég hef hitt marga
sem skemmtu sér alveg konung-
lega,“ heldur Raggi áfram. „Ég var
líka mjög ánægður með þá enda
tókst allt eins og til stóð.“ Hann bæt-
ir við að þar sem ekki sé hægt að
snúa tímavélinni til baka sé ljóst að
hann syngi ekki eins mikið á manna-
mótum hér eftir sem hingað til. „Ég
held áfram að dúlla eitthvað á meðan
heilsan og röddin leyfa og get þess
vegna lent aftur í Hörpu en ég kveð
stóra sviðið á sunnudagskvöld.“
Vegna veikinda þurfti Raggi að af-
lýsa nokkrum viðburðum í sumar, en
hann segist vera orðinn góður. „Ég
var orðinn slappur undir lokin á leik-
sýningunum um Elly og söng sitj-
andi á þeirri síðustu með aðstoð
Katrínar Halldóru, en kláraði verk-
efnið,“ segir hann.
Glæsilegur ferill
Ferill Ragga er með þeim glæsi-
legri. Gene Krupa var fyrirmynd
allra trommara og Raggi byrjaði að
spila á trommur í gagnfræðaskóla.
Frank Sinatra var fyrirmynd allra
söngvara og ekki leið á löngu þar til
Raggi var kominn í KK-sextettinn
og farinn að syngja „My Way“ og
aðra smelli sem féllu í kramið hjá
landanum og gera enn.
„Ferillinn er auðvitað með ólík-
indum, þegar maður hugsar um
hann,“ segir Raggi og hristir höf-
uðið. „Ég var til dæmis 19 vetur á
Sögu og Sumargleðin gekk fyrir
fullu húsi á hverjum einasta stað í 15
sumur. Ég var auðvitað með greif-
ana með mér, Bessa, Magga, Ómar
og fleiri snillinga.“ Létt handar-
hreyfing að hætti hússins og svo
heldur hann áfram: „Nú er ég líka
með allt liðið; Katrínu, Lay Low,
Palla, Þorgeir, Eyþór, Ómar og
fleiri. Hörkulið. Toppana.“
Eðlilega hefur Raggi frá mörgu að
segja frá löngum ferli og saga er á
bak við hvert lag. „Ég hef sungið
mörg lög og ekkert eitt er í sérstöku
uppáhaldi, en „My Way“ er sérstakt
vegna þess að það reynir á og sker
úr um hvort menn kunna að syngja
eða ekki.“ Og það kann Raggi heldur
betur.
Morgunblaðið/Eggert
Tónleikar Þorgeir Ástvaldsson, Ómar Ragnarsson og Katrín Halldóra Sigurðardóttir klappa Ragga Bjarna lof í lófa
á afmælistónleikunum í Hörpu í mars sem leið. Hann stígur á sama svið á sunnudag, sennilega í síðasta sinn.
Raggi þakkar fyrir sig
Mætir galvaskur í Hörpu eftir erfið veikindi í sumar
Söngvarinn síkáti hefur skemmt fólki í um sjö áratugi
Systkinin Guðfinnur og Kristín
Sveinsbörn syngja saman á sínum
fimmtu systkinatónleikum í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld
kl. 20.30. Með þeim leikur Elena
Postumi á píanó og gestasöngvari
verður Marta Kristín Friðriksdóttir
sópran. Á efnisskránni eru sönglög
Árna Thorsteinssonar, þýsk söng-
ljóð eftir Loewe og Schubert og í
seinni hluta tónleikanna verða flutt
ýmis brot úr óperum eftir Mozart
og Bizet.