Morgunblaðið - 07.06.2008, Page 1
L A U G A R D A G U R 7. J Ú N Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
154. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
FJÓRIR NAGLAR BUBBA
GUÐMUNDUR ÞÓRODDSSON
Uppgjör við REI-
mál og meirihluta
FYRSTU skóflustungurnar að kerskála álvers
Norðuráls í Helguvík voru teknar í gær. Svo
margir fengu skóflu í hönd að sumir segja langt
komið með að taka grunninn. Fjármálaráðherra
lá ekki á liði sínu heldur kom þúfu einni langleið-
ina út af framkvæmdasvæðinu með hraustlegri
sveiflu. Engum sögum fer þó af því hvort stjórn-
arformaður Century Aluminium, móðurfélags
Norðuráls, fékk á sig mold, en hann lítur undan
gusunni á myndinni. Fleiri þyrluðu upp mold-
viðri en þrír mótmælendur voru fjarlægðir af
samkomunni fyrir ólæti. Það var hins vegar sam-
dóma álit stjórnmálamanna og framkvæmda-
aðila í Helguvík í gær að álverið verði lyftistöng
fyrir atvinnulíf og samfélag á Suðurnesjum. | 8
Fjármálaráðherrann tók óvenju hraustlega á skóflunni
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fyrstu skóflustungurnar teknar að kerskála álversins í Helguvík
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
FRESTUN byggingar nýja háskóla-
sjúkrahússins kemur til álita í
tengslum við gerð fjárlaga næsta
árs, skv. upplýsingum formanns
fjárlaganefndar.
Búast má við að tekjur ríkisins,
m.a. af veltusköttum, muni minnka
umtalsvert á síðari hluta ársins og á
því næsta vegna samdráttarins í
efnahagslífinu. Útgjöld munu á hinn
bóginn aukast vegna ákvarðana rík-
isstjórnarinnar í tengslum við kjara-
samningana og umsamdar launa-
hækkanir. Fjármálaráðuneytið spáir
19,6 milljarða kr. halla á ríkissjóði
2009 og 15 milljarða halla 2010.
Vinna við fjárlagagerð fyrir næsta
ár er hafin af fullum krafti. Skoða á
rækilega hvar tækifæri eru í rík-
isrekstrinum til hagræðingar. Ýmis
stór verkefni verða einnig skoðuð.
,,Það má vel vera að það séu líka ein-
hver önnur verkefni sem hugsanlega
þurfi að fresta vegna þess að þau eru
ekki komin nógu hratt fram. Þar er
ég að tala um háskólasjúkrahúsið,“
segir Gunnar Svavarsson, formaður
fjárlaganefndar. Segir hann þetta
koma til greina, „miðað við það að
verkið er bara ekki nógu langt kom-
ið. Það er enn þá á umræðu- og
hönnunarstigi,“ svarar hann. Spurð-
ur um aðrar stórframkvæmdir, s.s.
Sundabraut segir Gunnar að hún sé
enn þá í skipulags- og hönnunarfasa
„og það er eins með hana eins og há-
skólasjúkrahúsið að þetta eru stór
verkefni sem taka mjög langan tíma
á forstigi. Þar af leiðandi má vel vera
að þau komi ekki eins hratt inn og
gert var ráð fyrir.“
Fresta nýja spítalanum?
Spá minnkandi tekjum og yfir 30 millj-
arða halla á ríkissjóði 2009 og 2010
Í HNOTSKURN
»Ríkissjóður hefur skilaðsamtals 170 milljarða
tekjuafgangi undanfarin fjög-
ur ár.
»Búast má við viðsnúningiog hallarekstri á næsta og
þarnæsta ári.
»Skv. frumkostnaðarmatiráðgjafateymis C.F. Möller
arkitekta er áætlaður kostn-
aður við byggingu nýja há-
skólasjúkrahússins sagður
vera tæpir 60 milljarðar.
Fréttaskýring | 28
Tillaga um millidómstig
NEFND á vegum dóms-
málaráðherra skilar af sér áliti um
millidómstig í næstu viku. Allar
líkur eru á því að mælt verði með
því að nýr, sjálfstæður dómstóll
verði settur á fót. Hann verði skip-
aður sex dómurum í tveimur deild-
um.
Kostnaður við dómstólinn ræðst
af umfangi hans, en um 90% kostn-
aðar er leiga á húsnæði – sem
mælt er með að verði í Reykjavík –
og svo laun starfsmanna. Ef allt
gengur eftir ætti ekki að taka
meira en ár frá því að breyting á
lögum um meðferð sakamála verð-
ur samþykkt á Alþingi þar til dóm-
stóllinn tekur til starfa.
Helgi Magnús Gunnarsson, for-
maður félags ákærenda, fagnar
því ef tekið verður upp millidóm-
stig. » 16
Morgunblaðið/ÞÖK
Alice Walker hefur barist fyrir
bættri stöðu kvenna en gleymdi að
hugsa um dóttur sína. V.S. Naypaul
barði ástkonu sína. Góðir höfundar
geta verið vont fólk.
Vondir
rithöfundar
Þórarinn Eldjárn hefur ekki pælt
mikið í fyndni en hefur þráð mjög
að vera talinn fyndinn. Hann segist
líka lúmskari en fallegt megi teljast
í viðtali við Þröst Helgason.
Þráð að vera
talinn fyndinn
LESBÓK
Arnar Eggert Thoroddsen tónlist-
argagnrýnandi á í ástar-haturssam-
bandi við Alison Morissette sem
hefur sent frá sér nýja plötu. Hann
útskýrir hvers vegna.
Að elska Alison
Morissette
Wake
me up
>> 49
Leikhúsin í landinu
Hlutabréf lækka en olíu-
verð nær nýjum hæðum
VÍSITÖLUR í kauphöllum í Evr-
ópu og Bandaríkjunum lækkuðu
mikið í gær eða að jafnaði um 1,5-
3,0%, í kjölfar mikillar hækkunar á
verði hráolíu. Verð á olíutunnu
hækkaði um heila 11 dollara og fór
upp í tæpa 139 dollara. Verðið hef-
ur aldrei verið hærra. Lækkun á
gengi dollars vegna slæms atvinnu-
ástands í Bandaríkjunum hafði
áhrif á verðið. Atvinnuleysið jókst
úr 5,0% í apríl í 5,5% í maí. » 19
Pappalöggur
LÖGREGLAN í Kanada hefur
tekið pappalöggur í sína þjónustu
til að hafa hemil á ökuföntum og
draga úr umferð-
arslysum. „Lögg-
urnar“ þykja æði
raunverulegar, svo
mjög að vörubíl-
stjóri í Vancouver
gaf sig á tal við
eina þar sem hún
„stóð“ við fjölfarna
götu þar í borg.
Kanadamenn eru
ekki manna fyrstir
til að fara þessa óvenjulegu leið en
lögreglan varar ökumenn við því að
lifandi lögga geti leynst á bak við
pappann.