Morgunblaðið - 07.06.2008, Side 6
6 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Atli Vigfússon
Aðaldalur | „Við vorum með góða
uppskeru síðastliðið haust,“ sagði
Bergljót Hallgrímsdóttir leik-
skólastjóri í Aðaldal sem var önnum
kafin við að sá gulrótum og setja nið-
ur kartöflur í beð með börnunum í
Barnaborg fyrir skömmu.
Allir höfðu auðsjáanlega mikla
ánægju af þessari tilbreytingu í
skólastarfinu og munu eflaust bíða
með eftirvæntingu þar til plönturn-
ar fara að koma upp.
Það hefur verið venja í skólanum
um langt árabil að setja niður á vor-
in og fylgja ræktuninni eftir með
hirðingu og vökvun.
Uppskeran hefur oft verið góð að
hausti og hefur orðið af þessu mikill
lærdómur þar sem nemendur skól-
ans fá mikla fræðslu um umhverf-
ismál. Þau vinna ásamt kennurum
sínum og leiðbeinendum m.a. að
jarðgerð í þar til gerðri tunnu sem
þau setja í allar matarleifar og fleira
sem til fellur og getur átt heima í
tunnunni.
Barnaborg fékk nýlega Grænfán-
ann í annað sinn og innan skólans er
starfandi sérstök umhverfisnefnd
sem gerir sérstakar áætlanir um að-
gerðir og markmið til umhverf-
isbóta í skólanum.
Bergljót segir að hver skóli búi við
ákveðið sjálfstæði þannig að skólinn
geti skapað sér sérstöðu og verið
öðruvísi en aðrir á einhverju sviði.
Það er ekki bara gaman að setja
niður kartöflur og sá gulrótum því
það er líka gaman að undirbúa jarð-
veginn með börnunum áður en rækt-
un hefst. Þá er tekið úr jarðgerð-
artunnunni og sett í margar litlar
hjólbörur, keyrt í garðinn, dreift og
stungið upp en síðan eru búin til beð
sem fljótt verða tilbúin fyrir gróð-
ursetningu. Áhuginn hefur sann-
arlega skilað sér og börnin hafa orð-
ið meðvitaðri um það sem skiptir
máli í þeirra eigin umhverfi.
„Megum við vökva,“ sögðu svo all-
ir þegar búið var að setja niður og
allir fengu vökvunarkönnur til þess
að taka þátt í ræktuninni.
„Meg-
um við
vökva“
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Ræktun Krakkarnir Karolína, Hilmar, Eyrún, Máni, Edda og Þráinn hafa öll ánægju af ræktunarstörfunum.
Börn víða um land eru að setja niður kartöflur þessa dagana
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
VERÐI yfirvinnubann hjúkrunarfræðinga að
veruleika mun ríkja neyðarástand á Landspítalan-
um (LSH). Þetta segir Álfheiður Árnadóttir, for-
maður hjúkrunarráðs LSH, og undir það taka aðr-
ir hjúkrunarfræðingar af ólíkum deildum
spítalans. Álfheiður segir ekki annað í stöðunni en
að loka þurfi deildum og fækka aðgerðum og verði
spítalinn þá rekinn eingöngu fyrir bráðatilfelli.
Í apríl sl. voru 1.045 hjúkrunarfræðingar í al-
mennum störfum hjá LSH, þ.e. ekki í stjórnunar-
störfum, og af þeim var einungis tæpur fimmt-
ungur skráður með 100% starfshlutfall.
Langflestir, eða rúm 40%, eru með minna en 80%
starfshlutfall. Nánast allir hjúkrunarfræðingar
taka þó nokkurn fjölda aukavakta í hverjum mán-
uði þannig að ljóst er að þeir vinna mun meir en
kveður á um í ráðningarsamningi þeirra.
Taka aukavaktir af skyldurækni
Að sögn Elsu B. Friðfinnsdóttur, formanns Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH), er með-
alstarfshlutfall hjúkrunarfræðinga 77% en þeir
séu undir miklum þrýstingi til að taka aukavaktir
umfram það sem þeir vilja. Hún segir starfshlut-
fall í ráðningarsamningi hvers og eins hjúkrunar-
fræðings ekki skipta miklu máli – fólk í 100%
vinnu taki jafnmikið af aukavöktum og aðrir.
„Fólk tekur þessar aukavaktir vegna þess að það
er þrábeðið um það og gerir það þá vegna þess að
það veit hvernig ástandið er annars á deildinni ef
enginn mætir. Þetta er af skyldurækni og nauð-
syn.“
Í fyrra var farið í gegnum starfshlutföll starfs-
manna, m.a. hjúkrunarfræðinga, og kom þá í ljós
að nokkrir voru skráðir með afar lágt starfshlut-
fall, eða undir 50%, en voru komnir í yfir 100%
vinnu með aukavöktum. Skv. heimildum blaðsins
voru þessir einstaklingar með yfir hálfa milljón í
laun. Að sögn Guðrúnar Bjargar Sigurbjörnsdótt-
ur, aðstoðarhjúkrunarforstjóra LSH, var talað við
þessa einstaklinga, sem greinilega gátu verið
skráðir með hærra starfshlutfall en raun bar vitni,
og á þetta ekki að vera til staðar í dag.
Guðrún Björg segir sumarið vera erfitt tímabil
þar sem margir séu í fríi. Meiri yfirvinna sé því
unnin á sumrin. Hún telur að manna þurfi 50-60
aukavaktir á hverjum sólahring en Álfheiður segir
töluna vel geta farið í 100 yfir sumartímann.
Á næstunni munu meðlimir FÍH kjósa um yf-
irvinnubannið. Úrslitin verða að öllum líkindum
tilkynnt eftir rúmar tvær vikur. Styðji félags-
mennirnir bannið mun það taka gildi 10. júlí nema
það takist að semja.
Neyðarástand verði af yfirvinnubanni
Sumar deildir beinlínis háðar því að hjúkrunarfræðingar séu viljugir til að vinna aukavinnu svo unnt
sé að sinna bráðaþjónustu, segir Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir aðstoðarhjúkrunarforstjóri LSH
!
"# $ %&
' ( $
) !
+(#2'
LÖGREGLAN hefur tekið til rann-
sóknar tvær nýjar kærur sem lagðar
hafa verið fram á hendur fyrrver-
andi háskólakennara við HR vegna
meintra kynferðisbrota gegn börn-
um. Kærur á hendur manninum eru
alls níu og kom sú síðasta fyrir rúmri
viku. Maðurinn hefur sætt gæslu-
varðhaldi vegna málsins síðan 11.
apríl og rennur gæsluvarðhaldið út
7. júlí. | orsi@mbl.is
Níu kærur
vegna kyn-
ferðisbrota
DÓTTIR Fisc-
hers, sem hann
átti með filipp-
seyskri konu,
mun brátt hljóta
sinn skerf í rúm-
lega 240 milljóna
króna dánarbúi
Fischers. Þetta
kemur fram í
dagblaðinu Inqui-
rer á Filippseyjum. Frestur til að
skila inn kröfu í búið rann út 17. maí
sl. og er filippseyskur lögfræðingur
stúlkunnar vongóður fyrir hönd
stúlkunnar. Hún kom í heimsókn til
Íslands í september 2005 og segir
dagblaðið að hann hafi sent þeim
mæðgum pening og hringt reglu-
lega. | andresth@mbl.is
240 millj.
fyrir Fischer
Bobby Fischer