Morgunblaðið - 07.06.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 9
FRÉTTIR
LAGERSALA
OUTLET
LAUGAVEGI 51 STÆRÐIR 42-54
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Sparifatnaður
fyrir útskriftir og
brúðkaup
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
HVÍTAR GALLABUXUR
str. 36-56
Laugavegi 44 • Sími 561 4000
www.diza.is
Diza
m
bl
1
01
36
41
FLOTTIR
BOLIR
Sundfatnaður
Sundskór, töskur og
fylgihlutir
10% afsl. af öllum
vörum í dag
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
AFDRÁTTARLAUSA túlkun á að-
stæðum mætti kalla það er skrif-
stofumaður úr Reykjavík hringdi í
sýsluskrifstofuna á Selfossi rétt eft-
ir stórskjálftann á fimmtudag til að
spyrja um pappíra sem hann vant-
aði. Var honum tjáð að skrifstofan
væri lokuð. Spurði hann þá hvers
vegna væri lokað og var tjáð að
ákveðnum Suðurlandsskjálfta væri
víst um að kenna. Svaraði hann þá
strax að þeir í Reykjavík hefðu líka
fundið fyrir skjálftanum en ekki
lokað skrifstofunni!
Hillurnar héldu velli
Í bókasafninu á Selfossi eru sér-
hannaðar „jarðskjálfta“-hillur sem
héldu velli að loknum látunum –
þótt á köflum hefðu þær sveiflast
eins og sauðdrukknar væru.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
KAFLASKIL verða í starfsemi
þjónustumiðstöðva vegna Suður-
landsjarðskjálftanna eftir helgi
þegar þjónustumiðstöðin í Aust-
urmörk 7 í Hveragerði verður
flutt yfir í Tryggvaskála á Sel-
fossi. Miðstöðin í Hveragerði verð-
ur opin frá 13-16 í dag, laugardag,
og á morgun, sunnudag, en upp
frá því verður dregið úr starfsem-
inni og látið nægja að hafa vakt í
stöðinni. Full starfsemi verður
hins vegar á Selfossi.
Þjónustumiðstöðvarnar voru
opnaðar laugardaginn 31. maí,
tveim dögum eftir skjálftana, og
starfsmenn þeirra hafa tekið á
móti 340 erindum. Þetta var upp-
lýst á blaðamannafundi sveitarfé-
laganna og þjónustumiðstöðvar á
skjálftasvæðunum í gær. Hefur
heldur dregið úr fjölda heimsókna
í þjónustumiðstöðvunum. Þjón-
ustan verður hins vegar í boði
langt fram eftir árinu eða svo
lengi sem þörf er fyrir hana
Ólafur Örn Haraldsson, verk-
efnisstjóri þjónustumiðstöðvanna,
sagði á fundinum að höfuðáhersla
væri lögð á andlega velferð fólks á
skjálftasvæðunum. „Það er að
koma til starfa fagfólk frá heil-
brigðiskerfinu, bæði héðan af Suð-
urlandi og Landlækni og Land-
spítalanum,“ sagði hann. „Þetta
fagfólk mun veita alhliða áfalla-
hjálp og sértæka hjálp með
áherslu á börn, fólk af erlendum
uppruna, eldra fólk og ýmsa aðra
hópa.“
Ólafur Örn sagði húsnæðismál
mjög aðkallandi og brýnt væri að
finna húsnæði handa þeim sem
ekki treysta sér til að búa í húsum
sínum, eða þeim sem misstu hús-
næði sitt í skjálftunum. Sveit-
arstjórar á fundinum upplýstu að
10-11 hús væru í sérstakri skoðun
í Ölfusi, þar af væru sum óíbúð-
arhæf. Unnið væri að því að finna
húsnæði handa viðkomandi tjón-
þolum. Í Árborg eru 8 hús óíbúð-
arhæf og sagði Ragnheiður Her-
geirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar,
að því fólki færi fjölgandi sem
treysti sér ekki til að vera heima.
„Það hefur gengið vel að útvega
húsnæði og allir sem þess hafa
óskað eru ýmist komnir í húsnæði
eða komast í það fyrir helgina,“
benti hún á.
Auglýsa eftir leiguhúsnæði
Í Hveragerði eru þrjú hús
óíbúðarhæf og líkt og í Árborg
fjölgar þeim íbúum sem ekki
treysta sér til að vera heima. „Og
það þarf auðvitað að bregðast við
því,“ sagði Aldís Hafsteinsdóttir
bæjarstjóri. Sveitarfélög á svæð-
inu munu auglýsa í sameiningu
eftir leiguhúsnæði og sagði Aldís
enga vanþörf á því á næstu vikum.
Eftirskjálftavirknin á svæðinu
er ekki búin, upplýsti Steinunn
Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands. „Við erum
að enn að mæla 10-20 skjálfta á
klukkustund en síðustu daga hefur
aðeins einn skjálfti náð þremur
stigum á Richter,“ sagði hún.
Ekki hefði sést aukin virkni aust-
an Geitafells, þar sem kannski
hefði mátt búast við svipuðum
skjálfta.
Ólafur Helgi Kjartansson sýslu-
maður á Selfossi lagði áherslu á
að mikil vinna væri framundan og
mikilvægt væri að fólk leitaði eftir
aðstoð ef það teldi þess þörf.
Velferð fólks ofar öllu
Morgunblaðið/G.Rúnar
Mildi Börnum, fólki af erlendum uppruna og eldra fólki verður hjálpað sérstaklega, segir Ólafur Örn Haraldsson.
Mikil vinna er framundan hjá Sunnlendingum eftir jarð-
skjálftana en höfuðáhersla er lögð á andlega velferð fólks
Í HNOTSKURN
»Þjónustumiðstöð vegnajarðskjálftanna verður í
Tryggvaskála á Selfossi frá og
með mánudeginum en starf-
semi stöðvarinnar í Hvera-
gerði verður lokað á sama
tíma og aðeins höfð vakt þar.
»Um helgina verður þjón-ustumiðstöðin í Hvera-
gerði opin frá 13-16 báða dag-
ana. Um 340 erindi hafa borist
þjónustumiðstöðvunum frá 31.
maí.
Fundu líka fyrir
skjálftanum en
lokuðu ekki!
HÁTT í sjötíu tonn af íslensku og
norsku hvalkjöti sem ætluð voru til
dreifingar á Japansmarkaði liggja
enn óafgreidd í fyrsti í Japan, að því
er japanskir embættismenn fullyrða.
„Japönskum stjórnvöldum barst
engin umsókn um innflutningsleyfi,“
sagði japanski diplómatinn Hitoshi
Kawahara, aðspurður um málið.
Hvalveiðisinnar fögnuðu innflutn-
inginum til Japans, enda áratugur
liðinn frá því ríkin tvö áttu síðast við-
skipti með hvalkjöt.
„Þetta er bara brella. Þeir eru að
reyna að þvinga þessu kjöti upp á
japanskan almenning. Þar er enginn
nýr markaður,“ sagði Frode Pleym,
talsmaður Grænfriðunga, í samtali
við Reuters-fréttastofuna.
Á sama tíma
færði fræðimað-
urinn Anthony
Bergin rök fyrir
því í dagblaðinu
The Sydney
Morning Herald,
að einörð and-
staða Ástrala við
hvalveiðar kynni
að hafa fest
stefnu Japana í
sessi. Japönsk stjórnvöld væru undir
þrýstingi frá almenningi og stjórn-
sýslunni um að halda áfram veiðum,
nú þegar Kevin Rudd, forsætisráð-
herra Ástralíu, hygðist taka málið
upp í opinberri heimsókn sinni til
Japans sem hefst á morgun.
Íslenska hvalkjötið
ennþá í frystinum
Hátt í 70 tonn bíða afgreiðslu í Japan
Hnúfubakur
í Eyjafirði
Á umræðufundi Starfsgreinasam-
bands Íslands nýlega komu fram
áhyggjur af vaxandi ofbeldi í starfs-
umhverfi öryggis- og dyravarða.
Talið var að efla þyrfti samstarf að-
ila sem koma að öryggisvörslu og
mikilvægt væri að gera áhættumat
fyrir þessi störf á hverjum stað fyr-
ir sig. Þá var einnig talað um að
efla þyrfti menntun starfsfólks.
Dyravörður sem Morgunblaðið
ræddi við sagðist telja að ofbeldi
hefði aldrei beinst gegn dyravörð-
um sem slíkum, heldur væri fyrst
og fremst um að ræða tilvik þar
sem slegið væri að dyraverði þegar
hann stöðvaði átök. „Ef viðbragðs-
sveit lögreglu heldur áfram að vera
eins og hefur verið er nóg fyrir
okkur að halda manninum,“ sagði
dyravörðurinn og gaf lítið fyrir
hugmyndir um aukinn varnarbún-
að.
Um 30 aðilar frá ýmsum fag-
félögum sóttu fundinn. Í Reykjavík
einni starfa um 250 dyraverðir um
helgar og um 400 öryggisverðir eru
á landinu öllu.
Áhyggjur af
öryggis- og
dyravörðum
www.sjofnhar.is