Morgunblaðið - 07.06.2008, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 23
www.fi.is, fi@fi.is, sími 568-2533
M
bl
1
01
30
89
Skráð
u þig
inn
- drífð
u þig
út
Nýir félagsmenn
velkomnir í FÍ.
Árgjaldið er kr. 4.900.
Félagsmenn fá glæsilega
árbók, afslátt í ferðir og
skála, og afslátt í fjölda
verslana.
Félagsmenn í Ferðafélagi Íslands,
munið eftir árgjaldinu!
- kemur þér við
Einar K. Guðfinnsson
til bjargar bændum
Fara aldrei oftar byssu-
lausir á bjarnarslóðir
Lætur morðhótanir
ekki stöðva sig
Nærmynd af Maríu Sig-
rúnu sjónvarpskonu
Pétur Örn er rólyndis-
maður á náttbuxum
Íslenskt teknó þykir
aðal á Myspace
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
að allir starfsmenn REI séu með
starfstilboð annars staðar frá en þeir
hafa samt kosið að vinna áfram hjá
fyrirtækinu vegna þess að þeim þykir
vænt um verkefnin sem þeir vinna að.
Megnið af líftíma fyrirtækisins hefur
það verið í ólgusjó en á sama tíma er
fyrirtækið að þróa verkefni eins og á
Djibouti, Indónesíu og Filippseyjum.
Þetta eru verkefni sem eru það hátt
metin að sjóðir, eins og IFC, sem er
hluti af Alþjóðabankanum, eru til-
búnir að koma inn í verkefnin strax
frá byrjun.
Í Djibouti er verið að fara inn í eitt
fátækasta land heims, þar sem með-
altekjur eru tveir dollarar á dag. Við
erum að bjóðast til að gjörbreyta
stöðu þjóðfélagsins með því að lækka
framleiðslukostnað raforku verulega
og tryggja nægt framboð. Íbúarnir
binda miklar vonir við að loksins séu
komnir einhverjir sem vilji gera eitt-
hvað í raun og veru. Þetta er límið
sem heldur hópnum saman og gerir
að verkum að hann hefur ekki yf-
irgefið fyrirtækið, þótt ekki hafi verið
gaman að vinna við þær erfiðu kring-
umstæður sem hafa verið síðustu
mánuði. Við óttumst líka að orðspor
Íslands á jarðhitamarkaði muni bíða
verulegan skaða ef við hlaupum frá
verkefninu án þess að fyrir því séu
sæmilegar ástæður. En verkefnið er í
gangi og verður vonandi að veru-
leika.“
Sérstakur tími
Hvaða lærdóm má draga af REI-
málinu?
„Ég held að saman komi í REI-
málinu margir þættir sem gera það
mjög sérstakt. Pólitíkin í Reykjavík
var erfið og samband stjórnenda
Orkuveitunnar og meirihluta borg-
arstjórnar varð stirt eftir að þeir
höfðu gagnrýnt okkur mjög lengi og
hart. Það var ekki búið að jafna þann
ágreining. Almenningur var orðinn
þreyttur á sögum um einkaþotuferðir
og veisluhöld auðmanna. Sameining
REI – GGE var sett í þetta sam-
hengi. Það var sérstakur tími í þjóð-
félaginu og borgarstjórn sem gerði að
verkum að REI-málið var blásið upp.
Ég er viss um að viðbrögðin yrðu
ekki þau sömu í dag. Við sjáum at-
vinnuleysi handan við hornið og frétt-
ir af fjöldauppsögnum birtast svo að
segja á hverjum degi. Fólk er farið að
átta sig á því að hlutirnir koma ekki
af sjálfu sér, það þarf að hafa fyrir
þeim. REI-málið varð vegna þess að
þjóðin var tilbúin í uppgjör, ekki bara
menn innan borgarstjórnar, heldur
einnig almenningur sem var ósáttur
við ríkidæmið og misskiptinguna sem
virtist blasa við.“
Hvenær kemur í ljós hvað þú ætlar
að gera?
„Þegar ég hef tekið ákvörðun. Í
augnablikinu er ekki ákveðið hvað ég
geri. Tækifærin bíða og ég mun grípa
eitthvert þeirra.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
„Þá var eins og fólki í þjóðfélaginu
brygði, það sagði þetta vera svo
óréttlátt, þarna væru augljóslega á
ferð menn sem ætluðu sjálfum sér
mikinn gróða og væru í blekking-
arleik. Ef okkur hefði ekki gengið
svona vel, ef við hefðum verið að
berjast fyrir hugmyndinni í hálft
ár, þá hefði fólki ekki fundist stór-
hneyksli vera á ferðinni. Ég held að
við höfum fyrst og fremst verið
fórnarlömb eigin velgengni.“
Fórnarlömb
eigin velgengni