Morgunblaðið - 07.06.2008, Qupperneq 48
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
Afríka United – Áhugafótboltamenn
frá Marokkó, Nígeríu, Kólumbíu,
Serbíu, Kósóvó og Gambíu stofna
nýja Afríku á Íslandi og senda lið í
3. deildina með speki þjálfarans
glymjandi í eyrunum: „We’re not
having fun, we’re playing football!“
Strákarnir okkar – Stjarna KR-
liðsins kemur út úr skápnum og
missir við það skápinn í búnings-
klefanum en verður þess í stað
stjarnan í nýstofnuðu hommaliði.
Leikstjórinn Róbert Douglas hafði
áður komið að íslenskri fótbolta-
menningu í Íslenska draumnum.
Fever Pitch – Colin Firth leikur
bíósjálf rithöfundarins Nick
Hornby sem kynnist loksins konu
sem veitir Lundúnaliðinu Arsenal
einhverja samkeppni um þráhyggju
hans. Samnefnd bandarísk end-
urgerð er vitaskuld helgispjöll enda
búið að skipta um íþrótt.
Bend It Like Beckham – Myndin
sem kom Keiru Knightley á kortið.
Þó er stjarna myndarinnar ótvírætt
hin indverskættaða Parminder
Nagra sem berst við indverska sem
og breska feðraveldið til þess að fá
að sparka í bolta – en því miður
virðist barátta indverskættaðra
leikkvenna til þess að komast að í
Hollywood ekki síður erfið en bar-
átta þeirra fyrir að fá að sparka í
bolta.
Offside – Íran er að spila við
Bahrain í undankeppni HM og
nokkrar stúlkur vilja endilega sjá
leikinn – en konum er bannaður að-
gangur og því dressa þær sig upp í
karlmannsgervi og reyna að smygla
sér inn á völlinn. En lögreglan
kemst í málið og úr verður há-
pólitísk gamanmynd.
Gregory’s Girl – Gregory er aðal-
framherjinn í fótboltaliði skólans
síns – þangað til Dorothy tekur
stöðuna hans og hann er sendur í
markið. En vitaskuld blómstrar ást-
in á milli nýja og gamla sentersins.
The Football Factory og Green
Street Hooligans fjalla báðar um
hvimleiðasta fylgifisk fótboltans,
fótboltabullurnar. Sumsé nóg af
slagsmálum en lítið um fótbolta.
Kicking & Screaming – Uppburða-
lítill lúser (Will Ferrell) er fenginn
til þess að þjálfa lélegasta krakka-
liðið í fylkinu. Söguþráður óteljandi
bandarískra bíómynda – en hér
loksins er íþróttin fótbolti. Jesse
Dylan, sonur Bob, leikstýrir.
Goal! – Fótboltamelódrama í þrem-
Írönsk rangstöðutaktík
Listin og fótboltinn – EM 2008
Kvenréttindi, heimsstyrjaldir, samkynhneigð, bardagaíþróttir og innflytjendur –
allt tengist þetta fótbolta með mismunandi hætti í neðangreindum bíómyndum
Svitadropi
Zidane kastar
mæðinni.
Umkringdur 3. deildin er bara byrj-
unin hjá liðsmönnum Afríku.
ur hlutum þar sem rakin er hin
klassíska saga bláfátæka stráksins
frá Rómönsku Ameríku sem er
góður í fótbolta og nær við illan
leik að komast að hjá evrópsku
stórliðunum. Þriðja myndin verður
frumsýnd á næsta ári.
Shaolin Soccer – Það er merkilegt
að engum skuli hafa dottið í hug að
sameina austrænar bardagaíþróttir
og fótbolta fyrr en í þessari mynd –
að undanskildum Eric Cantona,
vitaskuld.
Escape to Victory – Nokkrir stríðs-
fangar ákveða að nota leik við úr-
valslið nasistanna til þess að flýja.
Sjaldan hafa jafnmiklir úrvalsleik-
arar (Michael Caine og Max von
Sydow) mætt jafnmiklum úrvals-
fótboltamönnum (Pelé, Osvaldo Ar-
dilles, Bobby Moore og Paul van
Himst). Hvað Sylvester Stallone er
að gera í þessum félagsskap er
óljóst.
Joyeux Nöel – Á aðfangadag árið
1914 héldu franskir, þýskir og
skoskir hermenn upp á jólin með
því að semja tímabundinn frið,
klifra upp úr skotgröfunum og spila
fótbolta. Svona ætti auðvitað að
leysa öll stríð.
Zidane: Svipmynd af 21. öldinni –
Hverri hreyfingu meistarans fylgt
eftir í 90 mínútur, já eða þangað til
rauða spjaldið fer á loft …
When Saturday Comes – Sean
Bean er líkast til frægasti stuðn-
ingsmaður Sheffield United – og
hér fær hann að lifa drauminn með
því að klæðast treyjunni í þessari
sögu um bæjarrónann sem kemst á
samning.
In the Hands of the Gods – Heim-
ildarmynd um fimm breska sirk-
usfótboltamenn sem nota knatt-
tæknina til þess að safna fyrir ferð
til Buenos Aires til þess að hitta
goðið sjálft, Diego Armando Mara-
dona, og taka í hönd Guðs.
48 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
„HANN er að koma,“ segir Guð-
bjartur Finnbjörnsson tónleikahald-
ari en tvísýnt var um komu tónlistar-
mannsins í kjölfar dræmrar
miðasölu. En hvað varð til þess að
Paul Simon ákvað að koma?
„Góða veðrið,“ segir Guðbjartur
og hlær. „Nei, ég segi svona. Það
náðist að semja við alla aðila sem
koma að þessum tónleikum, svo að
segja upp á nýtt. Menn vissu að tón-
leikarnir stóðu höllum fæti en voru
engu að síður ákveðnir í að halda
áfram og halda tónleikana. “ segir
Guðbjartur og hvetur alla Íslend-
inga til að tryggja sér miða á tón-
leikana sem hann segir að verði án
efa flottustu tónleikar ársins.
„Paul Simon sjálfur var ólmur í að
koma hingað og spila og tveimur
dögum áður en tónleikarnir fara
fram er von á honum og hópnum og
þá verður strax ráðist í að undirbúa
og æfa fyrir tónleikana,“ segir Guð-
bjartur svo upprifinn að blaðamaður
stenst ekki freistinguna og spyr
hann hvort næstu stórtónleikar séu
jafnvel þegar komnir á kortið.
„Nei,“ svarar Guðbjartur og hlær
lítið eitt. „Ekki eins og stendur. Ég
ætla að klára þetta og gera það vel
svo allir geti gengið frá þessum tón-
leikum sáttir. Síðan sjáum við bara
til.“ hoskuldur@mbl.is
Paul Simon kemur
Reuters
Meistari Paul Simon mun flytja alla sína stærstu smelli frá ferli sem verður
að teljast mjög gifturíkur.
Tónleikar Paul Simon fara fram í
Laugardalshöll þriðjudaginn 1. júlí.
Miðasala fer fram á midi.is, í Skífu-
verslunum í Reykjavík og BT úti á
landi.