Morgunblaðið - 07.06.2008, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 51
Á FIMMTUDAG var hin árlega
menningarhátið Grand Rokk sett
með viðhöfn, en hátíðin stendur til
sunnudags.
Í dag, laugardag hefst dagskrá
menningarhátíðar kl. 12 með tón-
leikum South River Band úti í garð-
inum við Grand Rokk sem kallaður
er Grand Rock Square.
Leikfélagið Peðið frumsýnir
Skeifu Ingibjargar kl. 15 og Sól-
mundur, uppistandari Íslands fer
með gamanmál kl. 18. Loks munu
Vinir mannsins og félagar halda tón-
leika ásamt félögum kl. 22.
Á sunnudag ætla Gæðablóðin að
slá á létta strengi kl. 14 og kl. 16
hefst uppboð á listaverkum sem
unnin hafa verið á rokkstaðnum
góða á meðan menningarhátíðin hef-
ur staðið yfir. Verða einnig boðnar
upp bækur frá Bókabúð Braga
Kristjánssonar.
Hátíðinni lýkur með bravör kl. 18.
Menningarhátíð
á Grand Rokk
Morgunblaiðið/Svanhildur Eirksd
Grandvarir Hljómsveitin South River Band treður upp í portinu í dag
BRESKI leikstjórinn Guy Ritchie er með mynd um spæjarann
Sherlock Holmes í bígerð. Ritchie mun bæði leikstýra og skrifa
handrit myndarinnar sem byggð verður á nýrri teiknimynda-
sögu eftir Lionel Wigram. Leikstjórinn, sem er eiginmaður
Madonnu, er sagður ætla að beina spjótum sínum að „hæfi-
leikum spæjarans í hnefaleikum og skylmingum“ og reyna
þannig að sýna Holmes í öðru ljósi en áður hefur verið gert.
Sherlock Holmes er skráður í Heimsmetabók Guinness sem sú
persóna sem oftast hefur verið leikin á hvíta tjaldinu en alls
hafa 70 leikarar túlkað kappann í rúmlega 200 kvikmyndum.
Reuters
Hjónakorn Ritchie og Madonna.
Gerir mynd um
Sherlock Holmes