Skessuhorn - 22.04.2015, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 17. tbl. 18. árg. 22. apríl 2015 - kr. 750 í lausasölu
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Er þér annt
um hjartað?
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Gólfbónun
Teppahreinsun
Hreingerningar
Steinteppahreinsun
Gluggaþvottur
og fleira...
SK
ES
SU
HO
RN
2
01
5
Steinsstaðaflöt 27 • 300 Akranes
Sími 895 8081 • www.akraþrif.is
HREINGERNINGAR-
ÞJÓNUSTA
Líkur á víðtækum verkföllum í
hópi lægst launuðu stétta þessa
lands eru mikið að aukast. Um
95% launafólks sem heyrir undir
Starfsgreinasambandið samþykktu
verkfall náist ekki að semja í tæka
tíð. Kjórsókn var ríflega 50% en
atkvæðagreiðslu lauk á miðnætti á
mánudagskvöldið. Boðuð verkföll
og vinnustöðvanir sem fram undan
eru og þegar eru hafnar munu hafa
víðtæk áhrif um allt land og ná til
allra kima samfélagsins, enda tug-
þúsundir sem heyra undir aðildar-
félögin sem enn hefur ekki verið
samið við. Náist ekki að semja við
SGS hefst verkfall hjá þúsundum
verkafólks fimmtudaginn 30. apríl
og stendur fyrst um sinn yfir í hálf-
an sólarhring, frá hádegi til mið-
nættis. Eftir það taka við regluleg
sólarhringsverkföll þar til ótíma-
bundið verkfall hefst 26. maí. Ljóst
er að verkföllin munu hafa mikil
áhrif á fjölda vinnustaða um land
allt. Lítinn sáttatón er að finna í
vinnudeilunni. mm
Ásreikningur sveitarfélagsins Borg-
arbyggðar var tekinn til fyrri um-
ræðu í sveitarstjórn í gær. Rekstr-
arniðurstaða A og B hluta er sam-
kvæmt ársreikningi neikvæð um
103,9 milljónir króna. Það er mun
verri niðurstaða en gert var ráð fyr-
ir í fjárhagsáætlun en þar var áætl-
uð rúmlega milljón króna í tap.
Síðastliðinn föstudag mættu for-
svarsmenn Borgarbyggðar í innan-
ríkisráðuneytið til að sitja fund eft-
irlitsnefndar með fjármálum sveit-
arfélaga. Farið var yfir greiningu
á rekstri og fjárhagsstöðu Borgar-
byggðar í ljósi niðurstaðna úr árs-
reikningi 2014. Eins og fram hef-
ur komið þá stenst Borgarbyggð
ekki reglu um rekstrarjöfnuð sam-
kvæmt sveitarstjórnarlögum árið
2014 samkvæmt ársreikningi og
2015 samkvæmt áætlun þessa árs.
Á fundinum var auk þess farið yfir
þær aðgerðir og leiðir sem unn-
ið er að til hagræðingar í rekstri.
Þær helstu eru lækkun á yfirvinnu,
akstursgreiðslum, skert fjármagn
til búnaðarkaupa og stöðvun verk-
efna sem háð eru mótframlögum,
endurskoðun lána- og vaxtakostn-
aðar og hækkun á fasteignaskatti
og gjaldskrám. Nefnd sem Borgar-
byggð skipaði um rekstur og skipu-
lag fræðslumála og um eignamál
mun auk þess á næstu dögum skila
tillögum til hagræðingar.
Sjá nánar frétt á bls. 2
Samninganefnd SGS yfirgaf hús
ríkissáttasemjara á föstudaginn
án þess að vera með nýtt tilboð frá
atvinnurekendum í farteskinu. Nú
hafa félagsmenn samþykkt verkfall
sem að óbreyttu mun hefjast 30.
apríl.
Allt stefnir í hörð
átök á vinnumarkaði
Forsvarsmenn Borgarbyggðar
funduðu með eftirlitsnefnd
Eftir langan og fremur umhleypingasaman vetur bjóðum við sumarið velkomið með því að birta þessa sumarlegu mynd sem tekin var síðasta sumar í Skorradal. Fyrir-
sætan er Sigrún Þormar sem nú býr í dalnum en starfar í Snorrastofu í Reykholti þar sem hún tekur á móti þúsundum ferðamanna á ári hverju. Rætt er við Sigrúnu í
opnuviðtali í Skessuhorni í dag um fjölbreyttan starfsferil hennar. Sigrúnu hafði alltaf langað til að eiga íslenskan upphlut og í fyrra lét hún þann draum rætast og fékk
Kristínu Jónsdóttur ljósmyndara og nágranna á Hálsum til að smella af sér þessari stórgóðu mynd. Sjá nánar á miðopnu.
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Gleðilegt sumar!