Skessuhorn


Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015 Víða hefur verslunarrekstur í fá- mennari byggðum í landinu reynst þungur síðustu árin og áratug- ina. Skemmst er að minnast þess að verslun var lokað í Hrísey fyr- ir skömmu og glöggt hefur stað- ið með að halda opinni verslun á Reykhólum. Dalir eru ekki fjöl- mennt svæði en þar eru þó kostur að í gegnum héraðið liggur Vest- fjarðavegur. Umferð í gegnum Dalina hefur verið að aukast síð- ustu árin, fyrst og fremst vegna tilkomu Djúpvegar um Þrösk- ulda sem og mikillar aukningar ferðamanna. Þetta hefur orðið til þess að verslun hefur verið að efl- ast í Búðardal. Ingvar Bæringsson verslunarstjóri hjá Samkaupum Strax í Búðardal segist hafa orðið vel var við þessa þróun. „Yfir sum- arið, sérstaklega þegar vel viðrar, er ösin hérna eins og í Kringlunni í Reykjavík. Vetrarumferð ferða- manna hefur líka verið að aukast og það eykur verslunina hjá okk- ur líka,“ sagði Ingvar þegar blaða- maður Skessuhorns leit inn til hans í verslunina í síðustu viku. Erfiðara að áætla inn- kaup yfir sumarið Samkaup Strax er eina matvöru- verslunin í Búðardal og tók Ingvar formlega við starfi verslunarstjóra síðasta haust eftir að hafa leyst af um tíma. Hann kom til starfa í Samkaupum haustið 2011, byrjaði þá að steikja hamborgara þar eins og hann orðar það. „Þetta átti bara að vera aukavinna en varð smátt og smátt að aðalstarfi. Það má segja að ég hafi verið á réttum stað á réttum tíma því fljótlega var ég var gerður að aðstoðarverslunarstjóra. Svo leið ekki á löngu áður en versl- unarstjórinn hætti og ég var látinn leysa hann af um tíma. Ég kann ágætlega við mig í þessu starfi. Það er líflegt og skemmtilegt, reynd- ar svolítill erill oft á tíðum en það leysist í samstarfi við gott starfs- fólk,“ segir Ingvar. Spurður um hvernig það sé að áætla innkaup og þar með vörunýtingu í versl- un eins og í Búðardal segir Ingvar að það sé miserfitt eftir árstíðum. „Það er mun auðveldara að vetrin- um þegar viðskiptavinirnir eru að stærstum hluta heimafólk sem er að kaupa sömu nauðsynjavörurnar frá viku til viku. Það er strembn- ara yfir sumarið. Þá er meðal ann- ars betra að fylgjast vel með veð- urspám til að áætla söluna. Ann- ars er það líka þannig að varðandi suma vöru er ómögulegt að áætla. Stundum hef ég tekið inn vöru sem ég hef búist við að hreyfist lít- ið en hefur svo rokselst. Svo á móti þá pantar maður stundum vöru og gerir ráð fyrir að hún rokseljist en svo kemur annað á daginn. Það má segja að þetta sé ein af skemmti- legri hliðunum við að sinna versl- unarrekstri. Það er ekkert á vísan að róa, þótt vissulega sé betra að hafa fast land undir fótum.“ Mjólkurfræðingurinn fór í verslunina Ingvar er frá bænum Þorbergs- stöðum í Dölum þar sem hann ólst upp. Hann er mjólkurtæknifræð- ingur að mennt frá Óðinsvéum í Danmörku. Byrjaði að starfa hjá MS í Búðardal 1991 og ekki leið á löngu þar til hann fór á iðnsamning hjá fyrirtækinu. Hann nam mjólk- urfræðina og mjólkurtæknifræð- ina á tíunda áratugnum og starfaði síðan hjá MS fram á árið 2009. Þá hætti hann hjá MS og gerðist með- eigandi Þorgríms Guðbjartsson- ar á Erpsstöðum í rjómabúinu sem byggt var upp á Erpsstöðum. „Ég er ennþá að vinna hjá Þorgrími við að gera skyrkonfektið. En það kom í ljós að ég hafði ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa að rjóma- búinu með honum og það varð til þess að ég dró mig út úr rekstrin- um og seldi honum minn hlut árið 2012,“ segir Ingvar. Öll reynsla nýtist Aðspurður segir Ingvar að sér hafi fundist tímabært eftir tuttugu ára starf í mjólkursamlagi að breyta til og fara að gera eitthvað annað. Hann segir verslunarmennskuna skemmtilega tilbreytingu. En nýt- ist reynsla hans úr starfi mjólkur- fræðingsins hjá Samkaupum? „Já, það þýðir alla vega ekki að senda mér ónýta osta,“ segir Ingvar og hlær en bætir við: „Í mjólkurfræð- inni eins og í annarri iðn lærir maður svolítið um fyrirtækjarekst- ur og líka í sambandi við starfs- mannahald og verkstjórn. Allt nýt- ist þetta og líka reynsla sem fæst af mismunandi störfum,“ segir Ing- var. Hann segir að starfsmenn séu að jafnaði sex yfir vetrartímann hjá Samkaupum Strax í Búðardal, fyr- ir utan starfsmann sem kemur tvo daga vikunnar til að fylla á hill- urnar í búðinni og starfsmann sem vinnur við kjúklingatilboð á föstu- dögum. Yfir sumarið þurfi svo að fjölga starfsfólki verulega, þar sem að yfir þann tíma margfaldast verslunin. þá Ösin stundum eins og í Kringlunni - segir Ingvar Bæringsson verslunarstjóri hjá Samkaupum Strax í Búðardal Ingvar Bæringsson verslunarstjóri hjá Samkaupum í Búðardal. Verslun Samkaupa í Búðardal er við þjóðleiðina á Vestfirði. „Menntun núna! í Norðvestur- kjördæmi“ er tilraunaverkefni um eflingu menntunar í kjördæm- inu. Markmið verkefnisins eru að efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám á vinnustað í kjördæminu, auka sam- starf atvinnulífs og fræðsluaðila í kjördæminu um starfstengt nám, fjölga einstaklingum sem ljúka iðn- námi og efla íslenskukunnáttu inn- flytjenda í kjördæminu. Verkefnið er liður í átaki til þess að hækka mennt- unarstig í íslensku atvinnulífi og er fjármagnað af aðilum vinnumark- aðarins. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi hefur undanfarin miss- eri tekið þátt í þessu verkefni og fékk í þeim tilgangi rúmlega átta millj- ón króna styrk í verkefni sem kall- ast „Tæknistoðir“ og verður námið í boði næsta haust. Tæknistoðir eru einkum ætlaðar fólki sem er á vinnu- markaði og hefur því reynslu úr at- vinnulífinu. Námið er ætlað fólki sem er að minnsta kosti 23 ára og hefur hug á að ná sér í starfstengd réttindi í bygginga- eða málmtækni- greinum. Hörður Baldvinsson verkefnis- stjóri hjá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi segir að með því að bjóða upp á þetta nám sé verið að koma til móts við þá sem vilja byrja tækninám í sinni heimabyggð. Það sé þannig uppbyggt að nemar þurfi ekki að fara um langan veg til að ná í grunnmenntun í viðkomandi iðn- grein. Ætlunin er að námið verði kennt í dreifnámi og stór hluti náms- ins fari fram í gegnum Internet- ið. Auk þess verða haldnar staðlot- ur þar sem nemendur koma saman og hitta leiðbeinendur og samnem- endur. „ Við vitum að það eru tals- vert margir á Vesturlandi sem vilja ná sér í löggild iðnréttindi og erum því að hvetja fólk til að afla þeirra. Þetta er spennandi verkefni og við erum stolt af því vera brautryðjend- ur á þessu sviði. Verkefnið nær til alls kjördæmisins,“ segir Hörður. Símenntunarmiðstöðin hefur áður kennt námsleiðina Menntastoðir með svipuðu fyrirkomulagi og hefur það reynst mjög vel. „Það er trú okk- ar að Tæknistoðir verði einnig vin- sælar meðal þeirra sem vilja starfa í bygginga- eða málmtæknigreinum,“ segir Hörður verkefnisstjóri. þá Tæknistoðir - verkefni til hækkunar menntunarstigs byrjar næsta haust Námið er einkum ætlað þeim sem starfa í bygginga- og málmtæknigreinum. Síðastliðið sunnudagskvöld bauð karlakórinn Söngbræður upp á aldar afmælistónleika í Reyk- holtskirkju. Söngbræðrakórinn var að vísu ekki stofnaður fyrr en árið 1978 en nafn hans var á sín- um tíma valið með skírskotun og til að heiðra minningu Söngfélags- ins Bræðranna sem starfaði í upp- sveitum Borgarfjarðar frá 1915 til 1958. Á tónleikunum á sunnudag- inn fluttu Söngbræður nokkur af sömu lögum og Bræðurnir sungu á sinni tíð auk hluta úr eigin söng- skrá. Kórnum stjórnaði sem fyrr Viðar Guðmundsson, um undir- leik á píanó sá Heimir Klemenz- son og kórbandið skipuðu þeir Bjarni Guðmundsson og Guð- bjartur Björgvinsson. Auk söngs á þessum vortón- leikum Söngbræðra var farið yfir sögu Bræðrakórsins. Bjarni Guð- mundsson á Hvanneyri hafði tek- ið saman í stuttu máli sögu Bræðr- anna. Kórnum stjórnaði alla tíð Bjarni Bjarnason bóndi og org- anisti á Skáney. Bræðranafnið var valið vegna þess að allir félagar í kórnum áttu þar bróður eða bræð- ur, utan söngstjórans. Bræðurn- ir æfðu mikið og sungu við fjöl- mörg mannamót í héraði á fyrri hluta síðustu aldar. Komu þeir flest starfsár sín saman að hausti, viku í senn, til æfinga á Skáney. Unnu kórfélagar að morgni við ýmis búverk en æfðu söng frá nón- bili og fram á kvöld þann tíma sem þeir dvöldu þar. Á tónleikunum á sunnudaginn var m.a. notað eitt af fjölskyldu harmoníum Bjarna frá Skáney, tónsproti hans úr hvalbeini og þá voru sýndar handskrifaðar nótur úr safni hans, en nótnasafn- ið er stórt. Bjarni Bjarnason starf- aði sem organisti í Reykholti í sjö áratugi og reyndar í fleiri kirkjum í héraðinu. Dóttursonur hans og nafni, Bjarni í Nesi, tók síðar upp þráðinn og var lengi organisti í Reykholti. Bjarni í Nesi þakkaði kórnum að loknum tónleikum fyr- ir framlag sitt og þessa upprifjun á starfi Bræðrakórsins. Þess má að lokum geta að stefnt er að því að sýna upptöku frá tón- leikunum á vef Skessuhorns eftir um tvær vikur. mm Söngbræður fylltu Reykholtskirkju Brot af handskrifuðu nótnasafni Bjarna Bjarnasonar var haft til sýnis á tónleikunum. Söngbræður og Viðar Guðmundsson söngstjóri. Snorri Hjálmarsson er þarna að hefja einsöng í einu laganna sem kórinn flutti. Viðar Guðmundsson spilar hér á harmoníum sem Bjarni Bjarnason hafði til afnota þegar hann var hjá afkomendum sínum í Birkihlíð. Harmoníum þetta er nú eign Reykholtskirkju.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.