Skessuhorn


Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausn- arorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyr- ir klukkan 15 á mánudögum. Þeir sem ekki hafa að- gang að tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síð- asta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum inn- sendum lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni. 58 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Margur verður af aurum api“. Vinningshafi er: Ásbjörn Steinarsson, Sandabraut 17, Akranesi. mm Arður Menn Samhlj. Grugg Afbragð Orð- heldinn Gæsla Tónn Veitti Villt Lag Ríki- dæmi Eftir- sóttur 6 Bylgja Jurt 1050 Ókunn- ur Atlot Býsn 8 Samið Fákur Þröng 1 Þaut Hár Írafár Sáð- lönd Afrek Tóku Eldur Kák Atlaga Grind Trjáteg. Leyfist Tunga Hlýt Tvíhlj. Kvað Uppbót Kvíslin 4 Deigur Kjassa Skál Kunni Sonur Afmá Sull 10 Klampa Ötul Nam Kubbar Rændi Kúgun Áhald 1001 Bjálka Temja 7 Vesæl Blað Aur 2 Býli Sjór Fyrr Baun Tölur Atorka Aldur Útlim Álit Þreyta Loka Sjó Vigtaði Svall Vætu Anga Klæði At- burður 9 Sérhlj. Samhlj. Étandi 5 Spann Galli Sjó Óregla Tónn Spil Dúnk Södd Leit 3 Eins um S Sk.st. Tónn Urga Keyrði Skessa Hvíldi Skot Glamur 11 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 Síðastliðinn fimmtudag var undir- ritaður í bæjarþingsalnum á Akra- nesi samningur milli Eldvarna- bandalagsins og Akraneskaupstað- ur um að efla eldvarnir á heimil- um og í fyrirtækjum og stofnunum á Akranesi. Markmið samstarfsins er meðal annars að þróa verkefni sem geta nýst öðrum við eldvarna- fræðslu og innleiðingu eigin eld- varnaeftirlits fyrirtækja og stofn- ana. Regína Ásvaldsdóttir bæjar- stjóri sagði við undirskrift samn- ingsins að þetta samstarf kæmi til viðbótar og eflingar þeim eld- vörnum sem viðhafðar hefðu ver- ið í stofnunum kaupstaðarins sem eru tæplega 20. Það myndi einnig ná til leigjenda á vegum Akranes- kaupstaðar sem og til þeirra sem njóta húsaleigubóta. Samstarf- ið felur í sér að Akraneskaupstað- ur innleiðir eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum í haust sam- kvæmt gögnum sem Eldvarna- bandalagið hefur útbúið. „Með samstarfinu við Eldvarnabanda- lagið förum við nýjar leiðir til að efla eldvarnir og öryggi fólks og njótum þar mikillar reynslu Eld- varnabandalagsins og efnis sem það hefur gefið út,“ sagði Regína enn fremur. Eldvarnabandalagið er sam- starfsvettvangur fjölmargra fyrir- tækja og stofnana um auknar eld- varnir á heimilum og vinnustöðum. Björn Karlsson forstjóri Mann- virkjastofnunar var viðstaddur at- höfnina og undirritunina í bæjar- þingsalnum. Hann sagði ánægju- legt og jákvætt hvað Akurnesing- ar sýndu öryggismálum mikinn áhuga. Eldvarnabandalagið hef- ur útbúið leiðbeiningar og önn- ur gögn vegna eigin eldvarnaeftir- lits fyrirtækja og stofnana og verða þau höfð til hliðsjónar í samstarf- inu við Akraneskaupstað. Þjálfaðir verða eldvarnafulltrúar sem ann- ast eftirlit með eldvörnum í stofn- unum bæjarins samkvæmt gátlist- um Eldvarnabandalagsins. Þá fá allir starfsmenn bæjarins fræðslu um eldvarnir á vinnustaðnum og heima fyrir og verður þeim af- hent handbók Eldvarnabandalags- ins um eldvarnir heimilisins. Eld- varnabandalagið leggur til allt efni og fræðslu án endurgjalds. Garðar H. Guðjónsson, verk- efnastjóri Eldvarnabandalagsins, segir ánægjulegt að fá tækifæri til að þróa verkefnin í samvinnu við Akraneskaupstað og tæplega 20 stofnanir og nærri 600 starfs- menn hans. „Við bindum vonir við að reynslan af samstarfinu hér á Akranesi verði öðrum sveitarfé- lögum og fyrirtækjum hvatning til að feta sömu braut, segir Garð- ar. Til stóð að halda rýmingaræf- ingu í stjórnsýsluhúsinu við Still- holt 16-18 að lokinni undirskrift samningsins, en henni var frestað þar sem boðunarkerfi innanhúss reyndist ekki í lagi. Verður æfing- in haldin síðar. þá Í nýlegum tölum frá Hagstofunni kemur fram að gistinætur á hótel- um landsins í febrúar voru 194.800. Þetta er 21% aukning miðað við febrúar 2014. Gistinætur erlendra gesta voru 87% af heildarfjölda gisti- nátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 25% frá sama tíma í fyrra. Fjöldi gistinátta Íslendinga var svipaður milli ára. Flestar gistinætur á hótelum í febrúar voru á höfuðborgarsvæð- inu eða 145.200. Það er 18% aukn- ing miðað við febrúar 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 25.100. Af erlendum gest- um voru Bretar með flestar gistinæt- ur í febrúar, 76.200, því næst Banda- ríkjamenn með 30.500 og loks Þjóð- verjar með 13.400 gistinætur. mþh Ríkisstjórnin hefur lagt fram lagafrum- varp um að lögfesta kvótasetningu á makríl, en hann er ný tegund í íslenskri lögsögu. Einnig verða heimiluð frjáls viðskipti með hann innan sjávarútvegs- greinarinnar. Þessi gjörningur þýðir gjafakvóta fyrir tugi milljarða til aðila í greininni í boði stjórnvalda á sama tíma og launafólki eru skammtaðar launa- hækkanir úr hnefa í nafni stöðugleika! Undanfarin ár hefur makrílveiðum verið stjórnað frá ári til árs með reglu- gerðarheimildum sjávarútvegsráðherra en enn hefur ekki tekist að semja um veiðarnar milli þeirra strandríkja sem í hlut eiga. Makríllinn kom inn í lög- sögu okkar upp úr 2007 en fór ekki að veiðast að ráði fyrr en árið 2009 og hef- ur síðan þá skilað þjóðarbúinu, og sér- staklega uppsjávargeiranum, gífurleg- um tekjum. Árið 2010 var uppsjávar- geiranum sem hóf veiðar settar skorð- ur í 112 þúsund tonnum og í fram- haldinu var makrílnum úthlutað með reglugerð til fjögurra útgerðarflokka, þ.e. uppsjávargeirans, frystiskipa, ís- fisktogara og krókaaflamarksbáta. Frá árinu 2012 voru veiðunum settar þær skorður að aflinn færi til manneldis og gekk það eftir og skilaði margfalt meira verðmæti í kjölfarið. Stórskipaflotinn hefur ekki þurft að kosta til miklum fjármunum vegna makrílveiðanna heldur hafa þessar út- gerðir getað nýtt þann búnað sem fyrir var í veiðum og vinnslu og hefur þessi makrílveiði því verið algjör bónus og í raun hvalreki fyrir þær. Í dag eru um 114 minni bátar á mak- ríl þar sem eigendur hafa þurft að fara út í kostnaðarmiklar breytingar á bát- um sínum sem kosta allt frá 6 til 10 milljónum króna, sem er hátt hlut- fall af verðmæti bátanna. Makrílveið- ar minni skipa og báta hafa skipt miklu fyrir vinnslu í landi og oft verið for- senda þess að halda fiskvinnslu í landi gangandi yfir sumarið. Ráðherra hefur skýlt sér á bak við álit umboðsmanns Alþingis um að óheimilt sé að stjórna veiðunum áfram með reglugerðarheimildum og að upp- sjávarfyrirtæki hafi kært þann þátt út- hlutunar makríls að öðrum en uppsjáv- arveiðigeiranum einum sé veitt hlut- deild í kvótanum. Þetta er skálkaskjól ráðherra því að sjálfsögðu er hægt með lögum að stjórna makrílveiðum með öðrum hætti eins og t.d. með því að leigja hann á ársgrundvelli eða að bjóða hann út innan skilgreindra marka. Rík- isstjórnarflokkarnir eru fyrst og fremst að fylgja eftir sinni stefnu með kvóta- setningu og framsali sem kallar um leið á brask og skuldsetningu innan grein- arinnar og jafnframt mikla samþjöpp- un á kostnað minni útgerða sem ekki munu rísa undir enn frekari skuldsetn- ingu. Þetta verður rothögg fyrir báta strandveiðihluta makrílveiðanna sem fá það litla úthlutun að þeir verða ann- að hvort að leigja makrílkvóta af öðrum eða selja sína makrílhlutdeild. Þarna er verið að búa til bólu-hagkerfi og sýnd- arverðmæti með því að koma því til leiðar með reglusetningu að versl- un hefst með makrílkvótann milli út- gerða í greininni með tilheyrandi við- bótar skuldsetningu. Fjármálastofnan- ir munu að sjálfsögðu fitna á aukinni skuldsetningu í greininni og með veð- setningu á makrílkvóta, eftirspurn eft- ir lánsfé eykst og vextirnir hækka í kjöl- farið. Með ráðstöfun ríkisstjórnarinnar er í raun verið að loka á nýliðun í makr- ílveiðum og á þá þróun sem verið hef- ur í vinnslu makríls til manneldis í fisk- vinnslum víða í sjávarbyggðum. Það er ömurlegt að stjórnvöld nýti ekki það gullna tækifæri sem nú gefst til jákvæðra breytinga með því að út- hluta þessari nýju tegund, makrílnum, með öðrum hætti en gert er í núver- andi kvótakerfi sem er mjög umdeilt og óréttlátt og engin sátt er um í þjóð- félaginu og hefur valdið mikilli sam- þjöppun með tilheyrandi byggðarösk- un. Ég tel skynsamlegt að við lögfestum með sérlögum að makrílkvótinn skuli leigður út á ársgrundvelli til þeirra fjög- urra útgerðarflokka sem hafa stundað veiðar undanfarin ár og endurskoðum kvótahlutfall þeirra innbyrðis. Leigan verði hlutfall af aflaverðmæti upp úr sjó og nýtist samfélaginu öllu. Það veit enginn hve makríllinn verð- ur lengi í íslenskri lögsögu þó við vilj- um og vonum að hann sé kominn til að vera. Hvers vegna að búa til úr þessari sameiginlegu auðlind peningamask- ínu fyrir þá sem fá gefins makrílkvóta og skuldsetja greinina samhliða þegar engin þörf er á slíku? Það afgjald sem ráðherra leggur til, þ.e. 10 kr. pr. kg., er brotabrot af varanlegri sölu á þorsk- kvóta í dag þó tekið sé tillit til þess að þorskurinn sé verðmætari tegund. Þessi gjafakvóta gjörningur er hneyksli og gerir ekkert annað en að hella olíu á eldinn í áframhaldandi deil- um meðal landsmanna um ráðstöfun sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar. Lilja Rafney Magnúsdóttir. Höf. er alþingismaður VG í Norðvest- urkjördæmi. Pennagrein Makrílgjafakvóti fyrir milljarða Súlurit sem sýnir þróunina undan- farin fjögur ár. Miðað við þetta má gera ráð fyrir að á næsta ári verði tvöfalt fleiri gistinætur en árið 2012. Mynd: Hagstofa Íslands. Gistinóttum á hótelum fjölgar enn Frá undirskrift samsamstafssamningsins í bæjarþingsalnum. Akraneskaupstaður í samstarf við Eld- varnabandalagið um átak í eldvörnum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.