Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Opið hús hjá
leikskólanum
STYKKISH: Opið hús verður
í leikskólanum í Stykkishólmi
í dag, miðvikudaginn 22. apríl,
frá klukkan 14:00 – 16:00. Þar
sýna börnin vinnu vetrarins og
nýjungar í skráningu á starf-
inu verða kynntar. Í tilkynningu
segir að allir séu velkomnir, sér-
taklega væntanlegir nemendur
og fjölskyldur þeirra.
-mm
Synja beiðni um
tækjakaup
AKRANES: Bæjarráð Akra-
ness hefur synjað beiðni Fjöl-
brautaskóla Vesturlands (FVA)
um styrk til að endurnýja bún-
að málmtæknisviðs skólans. Um
var að ræða kaup á suðuvél fyr-
ir 420.000 krónur og endurnýj-
un á gasbúnaði fyrir 750.000
krónur. Í desember 2014 synj-
aði bæjarráð styrkbeiðni frá
skólanum um 2.390.000 krónur
til endurnýjunar á búnaði iðn-
brauta. Það var í framhaldi af
þessu sem skólameistari sendi
endurnýjaða styrkbeiðni nú í
apríl um kaup á búnaðinum fyr-
ir málmtæknisvið. Erindið var
tekið fyrir á bæjarráðsfundi 16.
apríl. „Bæjarráð getur því mið-
ur ekki orðið við erindinu,“ er
skráð í fundargerð.
–mþh
Þungatakmarkan-
ir tefja sorplosun
BORGARBYGGÐ: „Vegna
þungatakmarkana á vegum í
Borgarbyggð verða enn meiri
tafir á losun sorps í dreifbýli,“
segir í tilkynningu á vef sveitar-
félagsins. „Fólk er beðið um að
sýna þessu skilning og beðist er
velvirðingar á töfum sem orð-
ið hafa undanfarið.“ Þá segir að
af ýmsum ástæðum hafi dregist
að ljúka söfnun á rúlluplasti en
vonast til að það takist fyrir lok
þessarar viku eða í byrjun næstu
ef bílarnir komast um.
–mm
Hestafólk sýnir
Fjósum áhuga
DALIR: Hestafólk í nágrenni
Búðardals hefur sýnt útihúsun-
um á Fjósum í útjaðri þorps-
ins áhuga. Það hefur óskað eftir
að fá þau til afnota undir hest-
hús. Byggðarráð tekjur jákvætt
í að auglýsa útihúsin að Fjósum
til sölu eða leigu en óskar um-
sagnar umhverfis- og skipulags-
nefndar um hvernig fyrirliggj-
andi hugmyndir falli að aðal-
skipulagi Dalabyggðar. Byggð-
arráð vísaði málinu að öðru
leyti til sveitarstjórnar.
-þá
Ökumaður með
amfetamín
VESTURLAND: Þrír öku-
menn voru í umdæmi lögregl-
unnar á Vesturlandi teknir fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna
í liðinni viku og tveir fyrir ölv-
un við akstur. Að sögn lögreglu
var einn af þessum ökumönnum
með um 15 grömm af amfeta-
míni í sínum fórum. Voru efn-
in haldlögð. Fjögur umferðaró-
höpp urðu í vikunni, öll án telj-
andi meiðsla og litlum skemmt-
um á ökutækjum. –þá
Frumtillögur
um landfyllingu
AKRANES: Faxaflóahafn-
ir hafa lagt fram frumtil-
lögur sínar fyrir bæjarráð
Akraness að landfyllingum
á hafnarsvæði Akraneskaup-
staðar. Eins og Skessuhorn
hefur greint frá þá eru áætl-
anir uppi um að gera stóra
landfyllingu sunnan við hús
HB Granda á Akranesi yfir
að aðalhafnargarðinum þar
sem meðal annars verður
fyllt upp í Steinsvör. Tillög-
ur Faxaflóahafnar voru lagð-
ar fram á fundi bæjarráðs 16.
apríl.
-mþh
Vilja fá varaaflið
fyrr í gang
SNÆFELLSBÆR: Bæjar-
stjórn Snæfellsbæjar ræddi
rafmagnsmál í bæjarfélag-
inu á fundi sínum þriðju-
daginn 14. apríl. Umræðan
var af gefnu tilefni, segir í
fundargerð, vegna tíðra raf-
magnstruflana í bæjarfélag-
inu. Vegna þess vill bæjar-
stjórn Snæfellsbæjar koma
því á framfæri að staðan í raf-
magnsmálum í Snæfellsbæ
sé ótæk. Varaafl er til og
það eigi ekki að taka marga
klukkutíma að koma því til
notenda í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar
skorar því á stjórn RARIK
að kanna hverjar séu ástæð-
ur þess að það taki svona
langan tíma að koma vara-
aflinu til íbúa. Bæjarstjórn
óskar eftir skriflegu svari frá
stjórn RARIK, það er hvern-
ig fyrirtækið ætli að bregð-
ast við þessu ástandi þannig
að afhending á varaafli taki
sem skemmstan tíma. Jafn-
framt vill bæjarstjórn taka
fram að Snæfellsbær hefur í
gegnum tíðina átt í ágætum
samskiptum við stjórnendur
og starfsmenn RARIK, segir
í fundargerðinni.
–þá
Á bæjarstjórnarfundi á Akranesi
síðdegis á þriðjudag í liðinni viku
lögðu bæjarfulltrúar Samfylk-
ingarinnar á Akranesi, þau Ingi-
björg Valdimarsdóttir og Valgarð-
ur Lyngdal Jónsson, fram eftirfar-
andi tillögu:
„Bæjarstjórn Akraneskaupstað-
ar skorar á ríkisstjórn Íslands og
Alþingi að tryggja aðkomu þjóð-
arinnar að ákvörðun um fram-
hald aðildarviðræðna Íslands við
Evrópusambandið og að ákvörð-
un um framhald aðildarviðræðna
verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Bæjarstjórn Akraness áréttar einn-
ig stuðning sinn við samþykkt
stjórnar Sambands íslenskra sveit-
arfélaga frá 28. febrúar 2014 þar
sem stjórnin hvetur til þess að Al-
þingi tryggi sveitarfélögunum í
landinu svigrúm til að koma sjón-
armiðum sínum á framfæri áður
en til breytinga á stöðu aðildar-
viðræðna kemur.“
Eftir nokkrar umræður var þessi
tillaga borin upp til samþykktar
og felld með sex atkvæðum full-
trúa Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins og óháðra. Þrír
fulltrúar Bjartrar framtíðar og
Samfylkingarinnar greiddu hins
vegar atkvæði með henni. Í fram-
haldi af þessu lögðu bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins fram bókun:
„Innganga Íslands í Evrópusam-
bandið hefur verið umdeilt mál í
íslensku samfélagi allt frá því að
meirihluti Alþingis óskaði eft-
ir inngöngu í Evrópusamband-
ið árið 2009. Málið er á forræði
Alþingis og ríkisstjórnar og bæj-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á
Akranesi treysta alþingismönnum
til að leiða málið til lykta þann-
ig að sem víðtækust sátt náist um
það.“
mþh
Tekist á um ESB umsókn í
bæjarstjórn Akraness
Frá mótmælum vegna ESB umsóknarinnar á Austurvelli í fyrra.
Svavar Halldórsson tók form-
lega við stöðu framkvæmdastjóra
Landssamtaka sauðfjárbænda
(LS) síðastliðinn föstudag. Þetta
kom fram í frétt á vef Bænda-
blaðsins. „Þetta var bara hug-
mynd sem kom upp, að hugsa
aðeins út fyrir rammann og fá
einhvern sem kæmi með ferska
strauma til að taka við þessu
starfi,“ sagði Þórarinn Ingi Pét-
ursson, formaður LS um ráðn-
inguna í samtali við Bændablað-
ið. Svavar hefur starfað á fjöl-
miðlum og að undanförnu hef-
ur hann rekið fyrirtækið Íslensk-
ur matur og matarmenning sem
framleiðir fjölmiðlaefni með
áherslu á mat og matvælafram-
leiðslu.
mm/ Ljósm. bbl.is
Svavar Halldórsson ráðinn til
sauðfjárbænda