Skessuhorn


Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015 Aldrei hefur veiðst jafn vel af þorski í hinu svokallaða netaralli Hafrann- sóknastofnunar í Faxaflóa og nú í apríl frá því þessar rannsóknir hóf- ust fyrir 20 árum. Svipaða sögu er að segja úr Breiðafirði en þar hefur veiðin aðeins einu sinni verið betri. Það var árið 2012. Tveir netabátar frá Vesturlandi tóku þátt í netarall- inu sem framkvæmt var fyrr í þess- um mánuði. Þetta voru Magnús SH frá Hellissandi, sem sinnti rann- sóknum í Breiðafirði, og Þórsnes SH frá Stykkishólmi, sem stundaði rannsóknaveiðar í Faxaflóa. Aldrei meiri afli í Faxaflóa Netarallið fer þannig fram að lögð eru þorskanet með mismunandi möskvastærðum víðs vegar á veiði- slóð. Þau eru látin liggja í tólf tíma áður en þau eru dregin. Aflabrögð í netin eru skráð og upplýsingarn- ar síðan notaðar sem eitt af viðmið- um í stofnstærðarrannsóknum Haf- rannsóknastofnunar. „Þetta var annað árið sem við tök- um þátt í þessum vísindaveiðum. Niðurstöðurnar hvað varðar afla- brögð sýna að þetta var besta net- arallið til þessa í Faxaflóanum. Það var fiskur út um allt. Við lögðum net mjög víða um Faxaflóann og út af Reykjanesi, allt frá Malarrifi suð- ur að Eldey á svokölluðum Skerjum. Bestur afli fékkst undir Hafnarbergi rétt norður af Reykjanesi. Við feng- um líka til dæmis góðan afla fjórar mílur vestur af Akranesi. Þar veidd- ust tíu tonn í eina tólf neta trossu. Fiskurinn var allsstaðar mjög stór og fallegur. Við fengum alls 300 tonn í rallinu,“ segir Margeir Jóhannesson skipstjóri á Þórsnesi SH. Næstbesta veiði í Breiðafirði Svipaða sögu er að segja af niður- stöðum um borð í Magnúsi SH frá Hellissandi. „Þetta voru næstbestu aflabrögð í Breiðafirðinum frá 2012 sem er metárið þar til þessa. Við fengum um 280 tonn af þorski eða um 320 tonn í allt í þessu netralli,“ segir Sigurður V. Sigurðsson skip- stjóri á Magnúsi SH. Bæði Margeir og Sigurður voru í landi á föstudag í síðustu viku þegar blaðamaður Skessuhorns hitti þá að máli. Margeir var ásamt áhöfn sinni að taka net Þórsness aftur um borð í Stykkishólmshöfn og gera bátinn tilbúinn á veiðar eftir hrygningar- friðun þorsksins sem staðið hefur yfir frá því fyrir páska. Henni lauk í gær, þriðjudaginn 21. apríl. Þá máttu netabátarnir leggja veiðarfæri sína á nýjan leik. Sigurður kollegi Margeirs var hins vegar önnum kaf- inn við tiltekt í veiðarfærum í hús- næði Skarðsvíkur ehf. í Rifi sem ger- ir Magnús SH út. Niðurstöðurnar í netrallinu munu efalítið styrkja þá ályktun sem draga má af stofnmælingum Hafrann- sóknastofnunar nú í vetur, að þorsk- stofninn sé nú í betra ásigkomulagi en um langa hríð. mþh Metafli í netaralli við Vesturland Sigurður V. Sigurðsson skipstjóri á Magnúsi SH. Margeir Jóhannesson skipstjóri á Þórsnesi SH. Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa um 600 manns með fjöl breytta menntun og bakgrunn. Árleg framleiðslugeta er um 300 þúsund tonn af hágæða áli. HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: • Meistaragráða í verkfræði eða sambærileg menntun • Reynsla af verkefnastjórnun • Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum • Hæfni í mannlegum samskiptum • Sterk öryggis- og umhverfisvitund Við leitum að metnaðarfullum og öflugum liðsmönnum á umhverfis- og verkfræðisvið Norðuráls. Störfin sem um ræðir fela í sér undirbúning og stjórn á marg þættum og krefjandi verkefnum á Grundartanga. Sótt er um á www.nordural.is, umsóknar- frestur er til og með 30. apríl nk. Upplýsingar veita Einar F. Björnsson, framkvæmdastjóri Umhverfis- og verkfræðisviðs, og Valka Jóns- dóttir starfsmannastjóri í síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði heitið. Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna, endurmenntun og starfs- þróun, frábæran starfsanda og samstarfsfélaga. Starfinu fylgir góð starfsaðstaða í lifandi umhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi. SPENNANDI STÖRF Á UMHVERFIS- OG VERKFRÆÐISVIÐI STARFSSVIÐ: • Undirbúningur verkefna og verkefnastýring • Rekstur og þróun umhverfismála • Umsjón með gerð og eftirfylgni áætlana • Kostnaðareftirlit • Greining og upplýsingagjöf innanhúss og til opinberra aðila

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.