Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Vinnuskóli Borgarbyggðar auglýsir laus störf fyrir sumarið 2015.
Vinnuskólinn er fyrir unglinga í 8. – 10. bekk.
Vinnutímabil skólans er frá 8. júní – 10. júlí.
Vinnutími er frá 9:00 – 16:00 alla virka daga
nema á föstudögum, þá er unnið til 12:00.
Allir sem sækja um vinnu þurfa að kynna sér reglur vinnuskólans.
Þær má nálgast á vef Borgarbyggðar.
Umsækjendur þurfa að vera með lögheimili í Borgarbyggð.
Upplýsingar um kennitölu og bankareikning sem laun eiga að
leggjast inn á þurfa að koma fram á umsóknareyðublaði.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Ráðhúss Borgarbyggðar
að Borgarbraut 14 eða á www.borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til 8. maí n.k.
Ath: Þeir sem hætta við að vinna í Vinnuskólanum, t.d. ef þeir fá aðra vinnu áður
en vinnuskólinn hefst, þurfa að tilkynna það tómstundastjóra UMSB og draga
þannig umsókn sína til baka á netfangið siggi@umsb.is.
Vinnuskóli Borgarbyggðar
Sumarstörf
Forstöðumaður
Dvalaheimilis aldraðra í Stykkishólmi
Stykkishólmsbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu forstöðumanns Dvalarheimilis
aldraðra, Stykkishólmi. Um er að ræða 100% stöðu við hjúkrunar- og stjórnunarstarf.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf 1. júlí n.k., eða eftir nánara samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga.
Starfssvið:
Umsjón og ábyrgð á rekstri Dvalarheimilisins.
Umsjón og ábyrgð á umönnun heimilisfólks á dvalarheimili og á hjúkrunardeild.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Hjúkrunarfræðimenntun og íslenskt hjúkrunarleyfi.
Reynsla við stjórnun, starfsmannahald og rekstur á sviði heilbrigðis-þjónustu,
frumkvæði, metnaður, hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi, sem er sjálfseignarstofnun, tók til starfa 9. ágúst
1978. Á heimilinu eru 5 dvalarrými og 13 hjúkrunarrými auk dagvistar. Sextán íbúðir fyrir
aldraða eru tengdar Dvalarheimilinu. Starfsfólk eldhússins í Dvalarheimilinu sér um mat
fyrir vistmenn, en einnig fyrir þá íbúa í búseturréttaríbúðunum sextán sem þess óska og
fyrir starfsfólk og nemendur Grunnskóla Stykkishólms.
Umsóknir skulu berast bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi
eða á netfangið baejarstjori@stykkisholmur.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri, sími: 433 8100/863-8888 og
netfang: sturla@stykkisholmur.is
Upplýsingar um Stykkishólm má finna á heimasíðu bæjarins www.stykkisholmur.is
Sturla Böðvarsson
Bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar
Ráðhúsinu
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi
Magnús Þór Jónsson skólastjóri
Grunnskóla Snæfellsbæjar er á för-
um úr sveitarfélaginu. Í síðustu
viku var gengið frá ráðningu hans
sem skólastjóra Seljaskóla í Breið-
holti og mun hann taka þar til
starfa í sumar. Magnús hefur ver-
ið skólastjóri Grunnskóla Snæfells-
bæjar síðustu níu árin. Hann segir
fjölskyldumál ráða því að hann tók
þá ákvörðun að flytja. „Fjölskyld-
an er öll fyrir sunnan og ég ákvað
að grípa tækifærið þegar spennandi
tækifæri gafst. Ég þekki vel til í
Breiðholtinu, bæði bjó þar og starf-
aði um tíma,“ segir Magnús. Hann
var einmitt deildarstjóri og aðstoð-
arskólastjóri Breiðholtsskóla áður
en hann tók við skólastjórn í Snæ-
fellsbæ. „Ég hef átt gjöful og góð
ár hérna í Grunnskóla Snæfells-
bæjar og í samfélaginu í hópi frá-
bærs samstarfsfólks,“ sagði Magnús
í samtali við Skessuhorn.
Þess má jafnframt geta að staða
skólastjóra í Snæfellsbæ er auglýst í
Skessuhorni í dag.
þá
Magnús Þór á förum úr
Snæfellsbæ í Breiðholtið
Auður Inga Þorsteinsdóttir hef-
ur verið ráðin í starf framkvæmda-
stjóra Ungmennafélags Íslands
(UMFÍ) frá 1. júní næstkomandi.
Auður Inga er fædd árið 1978
og hefur undanfarin níu ár verið
framkvæmdastjóri Íþróttafélagsins
Gerplu í Kópavogi. Áður var hún
deildarstjóri á tveimur leikskólum í
Noregi og þar á undan gegndi hún
starfi yfirþjálfara hjá Gerplu. Þá
hefur Auður einnig þjálfað fimleika
hjá Gerplu og hjá Kolbotn í Nor-
egi. Auður Inga lauk B.Ed. gráðu
frá Kennaraháskóla Íslands árið
2002 og útskrifast í júní með MBA-
gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Hún var valin úr hópi ríflega sjö-
tíu umsækjenda en Hagvangur að-
stoðaði stjórn UMFÍ við ráðning-
arferlið. Hún tekur við starfinu af
Sæmundi Runólfssyni sem gegnt
hefur því í rúm 23 ár. mm
Auður Inga til UMFÍ
Þriðjudaginn 14. apríl var opinn
dagur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
í Grundarfirði. Þá var framtíðar-
nemendum skólans boðið að koma
og kynna sér námsefni og spjalla við
kennara. Vel var mætt enda af nógu
að taka og að mörgu að hyggja þeg-
ar maður undirbýr að feta mennta-
veginn.
tfk
Væntanlegir nýnemar kynntu
sér námsframboðið