Skessuhorn


Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015 Marta Magnúsdóttir frá Grund- arfirði varð 10. og 11. apríl senni- lega fyrsti Vestlendingurinn sem fer á Norðurpólinn. „Ég veit ekki al- veg hvort ég er fyrst frá Vesturlandi. Ég er þó að minnsta kosti yngst,“ segir Marta sem er 22 ára gömul. Afar fáir Íslendingar hafa stigið fæti á Norðurpólinn. Þangað fara fáir nema fuglinn fljúgandi, harðasta af- reksfólk eða þeir sem eiga þess kost að komast þangað með flugvél eða þyrlu eins og Marta gerði. Ein frá Íslandi Rússar reka vísindabúðirnar Barneo sem eru í um 50 kílómetra fjarlægð frá sjálfum norðurpólnum. Stöðin er sett upp árlega og rekin í um tvo mánuði. Fundið er úr flugvél slétt íssvæði í grenndi við pólinn og fall- hlífahermenn stökkva út með bún- að. Þeir ryðja flugbraut á ísnum. Þá geta flugvélar lent með tæki og fólk. Barneo-rannsóknabúðirnar eru sett- ar upp. Þarna dvelja Rússar síðan í mars og apríl ár hvert. Mörtu var boðið að heimsækja búðirnar fyrr í þessum mánuði ásamt fjórum rúss- neskum ungmennum. „Ég stunda nám við Háskóla Íslands. Ég tók þátt í ráðstefnu um framtíð norð- urskautsins sem var haldin í Rúss- landi í febrúar. Þar var auglýst eftir fimm háskólanemum á aldrinum 18 – 29 ára frá löndum á norðurslóð- um sem vildu þiggja boðsferð á veg- um rússnesku landafræðistofnunar- innar í Barneo-stöðina. Ég sótti um og var ein þeirra fimm sem komust í gegnum froval af um 150 umsækj- endum,“ segir Marta. Mjög undarleg upplifun Allar ferðir og uppihald var greitt af Rússum. Marta flaug til Noregs og þaðan áfram til Longyearbyen á Svalbarða. Þar hitti hún rússneska ferðafélaga sína. Ætlunin var að fljúga með rússneskri flugvél þaðan til Barneo. Sú vél hafði hins vegar bilað og þau töfðust í nokkra sólar- hringa í Longyearbyen. Marta segir að það hafi verið mjög undarleg tilfinning að lenda loks á ísauðninni við Norðurpólinn. „Þetta var mjög óvenjulegt. Það er ekkert þarna, maður veit bara að maður er á Norðurpólnum. Ann- ars er þetta bara ís, kuldi og sólin á lofti allan sólarhringinn. Þarna stóð og hugsaði; „Gott og vel, nú er ég á Norðurpólnum.“ Hún dvaldi í 30 klukkustundir á ísnum ásamt fé- lögum sínum. „Það var lítið sof- ið. Þetta var allt svo skrítið. Eigin- lega gerðum við samt ekki mikið. Mér liggur við að segja við vorum bara eitthvað að væflast þarna. Við fylgdumst með vísindafólkinu að störfum og böðuðum okkur í sjón- um. Það var búið að gera holu í ís- inn sem sjór flæddi upp í gegnum. Þegar ég kom upp úr sögðu Rúss- arnir að nú væri ég orðin Rússi,“ hlær Marta. Komin aftur heim „Þeim var tamt að grípa í vodka til að hlýja sér og reyndu að koma mér í þessa menningu en það gekk lítt. Annars voru þeir mjög almenni- legir og viðkunnanlegir. Rússarn- ir voru ekkert að láta litla ensku- kunnáttu stoppa sig í að spjalla. Það skildi enginn hvað ég Íslendingur- inn var gera þarna. Ég ekki held- ur. Ég er enn smám saman að átta mig á þessu öllu. Þetta voru mjög skrítnir dagar. Þarna var rannsókna- stöð með vísindafólki en líka ýmiss konar annað fólk. Til dæmis sjón- varpsfólk, manneskjur sem voru að hlaupa maraþon og hermenn und- ir alvæpni. Þessa daga sem ég var þarna stóð yfir stór rússnesk heræf- ing á heimskautasvæðinu.“ Marta segir að þessi ferð hafi þó eflt áhuga hennar á norðurslóðamálefnum, en ekki þó þannig að hún hyggist leggja þann málaflokk fyrir sig sérstaklega í framtíðinni. „Ég bý í Grundarfirði þó ég stundi nám í Reykjavík og verð fyrir vestan í sumar. Þar er ég að fara að vinna í upplýsingamiðstöðinni og á gisti- heimili foreldra minna sem heit- ir Gamla pósthúsið. Síðan fer ég að vinna sem sjálfboðaliði fjórar vikur í sumarbúðum í Hörðalandi í Vest- ur-Noregi, svo á skátamót í Viðey og svo þriggja vikna bakpokaferða- lag um Ísland,“ segir Marta heim- komin til landsins eftir þessa ævin- týraför. Lesa má nánar um norður- pólsferð Mörtu Magnúsdóttur og skoða ljósmyndir á bloggsíðu henn- ar (www.martamagnusdottir.blogs- pot.com/). mþh Yngsti Íslendingurinn og líklega fyrsti Vestlendingurinn á Norðurpólinn Marta önnur frá hægri ásamt rússnesku ferðafélögum sínum úr hópi umsækj- enda. Þetta eru þau fimm sem voru valin úr 150 manna hópi. Marta Magnúsdóttir var á Norðurpólnum föstudaginn 10. og laugardaginn 11. apríl síðastliðinn. Hér flaggar hún fána Grundarfjarðar þar. Í bakgrunni eru rúss- neskar þyrlur sem voru notaðar til að flytja fólk um 50 kílómetra leið frá Barneo- búðunum nákvæmlega á sjálfan Norðurpólinn. Glæsilegur floti 33 fornbíla víða að úr heiminum keppti í ralli og akst- ursleikni í Hvalfirði og Borgar- firði á sunnudaginn. Keppnin hófst með rallakstri um Hvalfjörð þar sem leiðin lá um Kjósarskarð. Síðan var keppt í akstursleikni við Hernáms- setrið á Hlöðum. Áfram var haldið í vestur og rallað um Melasveit og síð- an áfram í Borgarnes þar sem aftur var keppt í akstursleikni, í þetta sinn við Olís. Síðan var haldið að Hvann- eyri þar sem enn var keppt. Leiðin lá svo um Borgarfjörð þar sem ekið var að Hraunfossum og snæddar kleinur og drukkið kaffi í Brúarási. Síðan var kvöldverður og gist á Hótel Hamri í Borgarnesi. Fornbílarnir verða staddir á Ís- landi dagana 18. til 26. apríl. Þeir héldu á mánudagsmorgun úr Borg- arfirði norður yfir heiðar. Ætlun- in er að aka hringinn kringum Ís- land í ferð sem hófst árla sunnu- dagsmorguns. Alls komu 33 fornbíl- ar hingað til lands á vegum samtak- anna Historic Endurance Rally Org- anisation eða HERO. Það er bresk- ur akstursíþróttaklúbbur sem skipu- leggur keppnir fyrir fornbíla. Margir bílanna eru afar fágætir. Þeir eru frá ýmsum löndum svo sem Bretlands- eyjum, Írlandi, Noregi, Sviss, Hol- landi, Belgíu og Nýja Sjálandi. Keppnin sem nú er efnt til á Ís- landi felst í því að bílunum er ekið ákveðna leið samkvæmt leiðarbók innan tímamarka. Tímamörkin eru sett þannig upp að aldrei þarf að fara yfir hámarkshraða. Til viðbótar er svo keppt á bílunum í ökuleikni eða þrautaakstri þar sem bifreiðastæði eða stór svæði eru notuð til að setja upp brautir með keilum sem aka þarf kringum. Eins og sjá má á myndunum sem hér fylgja og voru teknar af blaða- manni Skessuhorns við Hlaði, í Borgarnesi og á Hvanneyri á sunnu- dag, þá er það afar fjölbreyttur bíla- floti frá árabilinu 1933 til 1981 sem tekur þátt í þessum leiðangri HERO- klúbbsins til Íslands. mþh Fjölbreyttur fornbílafloti í sunnudagsralli um Hvalfjörð og Borgarfjörð Þessi rauði Alfa Romeo Giulietta árgerð 1960 sem hér rennir í hlað á Hlöðum á Hvalfjarðarströnd hafði innanborðs ökuþóra frá Bret- landi og Sviss. Þessi veglegi Citroen DS Pallas árgerð 1974 frá Þýskalandi leið áfram af virðuleik. Margir íbúa á Hvanneyri mættu til að fylgjast með bílunum keppa þar. Þessi Ford Mustang árgerð 1965 kemur frá Írlandi. Þessir tveir herramenn, þeir Wouter Panis og Menno de Haan frá Belgíu og Hollandi, vísuðu því aðspurðir alfarið á bug að þeim væri kalt þó þeir sætu í opnum bíl um miðjan apríl uppi á Íslandi. Þeir væru vel klæddir. Þessi AC March Special árgerð 1938 er næstelsti bíll keppninnar og kemur frá Sviss. Bílarnir eru vinsælt myndefni eins og sjá má. Breskir ökumenn taka þátt á þessum Mercedes 280SL sem var smíðaður árið 1969. Þessi skemmtilega útbúni Austin Morris Mini Pickup er frá árinu 1980 og er belgískur. Þessi veglegi bíll er árgerð 1933 og þannig 82 ára gamall. Hann er af gerðinni Talbot 105 Vanden Plas Tourer. Ökuþórarnir Wouter Panis og Menno de Haan gættu sín vandlega þegar þeir óku yfir Hvítárbrúna.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.