Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Laugardaginn 18. apríl fór fram
athöfn á sal Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi þar sem af-
hentar voru viðurkenningar fyr-
ir góðan árangur í stærðfræði-
keppni fyrir unglingastig grunn-
skóla á Vesturlandi. Tíu efstu úr
hverjum árgangi var boðið að
mæta og taka við viðurkenning-
arskjölum. Auk þess fengu þrír
efstu úr hverjum árgangi pen-
ingaverðlaun; 20.000 krónur fyr-
ir fyrsta sæti, 15.000 fyrir annað
sæti og 10.000 fyrir þriðja sæti.
Sjálf keppnin fór fram föstudaginn
13. mars og var haldin í sautjánda
skipti. Keppnisgögn voru búin til
í Borgarholtsskóla og notuð við
tvo aðra skóla að auki, þ.e. FVA og
Fjölbrautaskóli Suðurnesja.
Þátttakendur voru 101 en mun
fleiri, eða 159, höfðu skráð sig til
keppni. Óveður hamlaði hins veg-
ar þátttöku stórs hluta. Þátttak-
endur nú komu úr Auðarskóla
í Dölum, Brekkubæjarskóla og
Grundaskóla á Akranesi, Grunn-
skólanum í Borgarnesi, Grunn-
skóla Borgarfjarðar á Kleppjárns-
reykjum, Heiðarskóla í Hvalfjarð-
arsveit og Klébergsskóla á Kjalar-
nesi. Kostnaður við keppnina var
greiddur af Norðuráli og Máln-
ingu hf.
Hér að neðan er listi yfir nem-
endur í tíu efstu sætum úr hverj-
um árgangi. Þeir sem voru í sætum
2 til 3 og 4 til 10 eru taldir upp í
stafrófsröð. Í 8. bekk var meðaltal-
ið 25,53 stig, af 100 mögulegum,
miðgildið 25 og besta lausnin var
upp á 70 stig. Í 9. bekk var með-
altalið 29,27 stig, miðgildið 25 og
besta lausnin var upp á 62 stig. Í
10. bekk var meðaltalið 36,23 stig,
miðgildið 31 og besta lausnin var
upp á 78 stig.
8. bekkur
1. Arnar Reyr Kristinsson,
Brekkubæjarskóla
2. Bára Sara Guðfinnsdóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi
3. Andri Snær Axelsson, Brekku-
bæjarskóla
4.-10. Arna Hrönn Ámundadótt-
ir, Grunnskólanum í Borgarnesi
4.-10. Björgvin Þór Þórarinsson,
Brekkubæjarskóla
4.-10. Davíð Örn Harðarson,
Brekkubæjarskóla
4.-10. Katrín María Óskarsdóttir,
Grundaskóla
4.-10. Marín Birta Pétursdóttir,
Grundaskóla
4.-10. Sjöfn Sólveig Sigurbjörns-
dóttir, Grundaskóla
4.-10. Steindór Gauti Guð-
mundsson, Grundaskóla.
9. bekkur
1. Bjartur Finnbogason, Grunda-
skóla
2.-3. Aron Máni Nindel Haralds-
son, Grunnskóla Borgarfjarðar
Kleppjárnsreykjum
2.-3. Eydís Lilja Kristínardóttir,
Auðarskóla
4.-10. Andri Freyr Eggertsson,
Grundaskóla
4.-10. Aron Bjarki Kristjánsson,
Grundaskóla
4.-10. Atli Teitur Brynjarsson,
Grundaskóla
4.-10. Guðbjörg Birta Sigurðar-
dóttir, Brekkubæjarskóla
4.-10. Gunnar Jóhannesson,
Brekkubæjarskóla
4.-10. Kristmann Dagur Einars-
son, Grundaskóla
4.-10. Tinna Von Gísladóttir
Waage, Brekkubæjarskóla.
10. bekkur
1. Halla Margrét Jónsdóttir,
Brekkubæjarskóla
2. Logi Örn Axel Ingvarsson,
Heiðarskóla
3. Steinþór Logi Arnarsson, Auð-
arskóla
4.-10. Edgar Gylfi Skaale Hjalta-
son, Brekkubæjarskóla
4.-10. Eiður Andri Guðlaugsson,
Grundaskóla
4.-10. Eiríkur Hilmar Eiríksson,
Brekkubæjarskóla
4.-10. Guðmundur Kári Þor-
grímsson, Auðarskóla
4.-10. Inga Dóra Sigurbjörns-
dóttir, Laugargerðisskóla
4.-10. Kári Haraldsson, Klé-
bergsskóla
4.-10. Svavar Örn Sigurðsson,
Brekkubæjarskóla.
mm
Aðalfundur Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Vesturlands var hald-
inn síðastliðinn föstudag. Í lok
fundar voru úrslit kynnt í stjórnar-
kjöri. Formaður fyrir næsta skólaár
var kjörinn Sævar Berg Sigurðsson.
Með honum í stjórn verða Finnur
Ari Ásgeirsson, Jón Hjörvar Val-
garðsson, Linda María Rögnvalds-
dóttir, Magðalena Lára Sigurðar-
dóttir og einn úr hópi nýnema sem
kjörinn verður í ágúst. Að loknum
aðalfundi bauð nemendafélagið
upp á pylsuveislu.
mm/ Ljósm. Linda; FVA
á Facebook.
„Sjávaúrútvegsráðuneytið hefur á
undanförnum dögum fylgst náið
með grásleppuveiðum í því skyni
að geta áætlað veiði á yfirstandandi
vertíð. Samkvæmt ráðgjöf Haf-
rannsóknastofnunar er miðað við
að heildarveiði á grásleppu á vertíð-
inni fari ekki umfram 6.200 tonn.
Búið er að veiða rúman þriðjung
af því heildarmagni,“ sagði í til-
kynningu frá ráðuneytinu síðastlið-
inn föstudag. Veiði á hvern dag er
nokkru meiri en á vertíðinni 2014
og þá hefur veiðileyfum fjölgað um
30%. Ekkert bendir því nú til ann-
ars en áætluðu heildarmagni verði
náð innan 32 daga markanna. Í
frétt ráðuneytisins 1. apríl síðast-
liðinn var þess getið að ákvörð-
un um fjölgun veiðidaga í 32 yrði
endurskoðuð þegar ætla mætti
að betri yfirsýn fengist yfir fjölda
leyfa og aflabrögð. Í ljósi framan-
greindra upplýsinga um veiðarn-
ar hefur ráðuneytið því ákveðið að
veiðidögum verði hvorki fjölgað né
fækkað, þeir verðið 32 á yfirstand-
andi vertíð. mm
Ný stjórn kjörin í
Nemendafélagi FVA
Nýja stjórnin í Nemendafélagi FVA.
Þorsteinn Bjarki Pétursson grætur ekki yfir að hverfa úr formannsstóli NFFA,
heldur er hann hér að skera lauk með pylsunum fyrir aðalfundargesti. Hann
stefnir á útskrift um næstu jól.
Grásleppu landað á Akranesi í síðustu viku. Ljósm. mþh.
Ráðuneytið staðfestir að
grásleppuveiðidagar verða 32
Fengu viðurkenningu og verðlaun fyrir
góðan árangur í stærðfræði
Þau voru mætt til að taka við viðurkenningum og verðlaunum. Ljósm. JH.