Skessuhorn - 22.04.2015, Qupperneq 13
13MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Garðaþjónustan Sigur-Garðar
Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu
Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð
Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663
Hellulagnir - Hleðsla - Þökulagnir - Jarðvegsskipti
Trjáklippingar - Gróðursetningar - Garðsláttur - Plöntusala
Þjónusta í 25 ár
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Viðgerðir eru hafnar á ytra byrði
sementstankanna sem áður tilheyrðu
Sementsverksmiðjunni á Akranesi
en eru í leigu Norðmanna. Þessa
dagana er unnið að því að fleyga
lausa og sprungna steypu utan af
tönkunum. Verkið er unnið úr körfu
sem fest er á bómu bíls. Eins og sjá
má á myndinni er múr tankanna illa
farinn og mikið sem brýst af svo sér
í steypustyrktarjárnið.
mþh
Gert við veggi sementstanka á Akranesi
HB Grandi yrði það einstaka sjáv-
arútvegsfyrirtæki sem fengi stærst-
an hluta makrílkvótans. Það fengi
14,2% af makrílnum ef honum verð-
ur úthlutað í samræmi við það frum-
varp um skiptingu sem sjávarútvegs-
ráðherra hefur lagt fram verður að
veruleika. Samherji yrði í öðru sæti
með 12,7% og Ísfélag Vestmanna-
eyja í því þriðja með 11,9%. Fimm
hæstu útgerðirnar eru alls með um
57% kvótans. Þetta er meðal niður-
staðna útreikninga sem Fiskifréttir
hafa birt og byggja á frumvarpi ráð-
herrans. Það gerir ráð fyrir að byggt
verði á veiðireynslu áranna 2011 til
2014 við skiptingu kvótans til stóru
skipanna.
Fjórðungur af smábáta-
kvóta á Vesturland
Frumvarp ráðherrans gerir einnig
ráð fyrir því að kvóta verði skipt á
smábáta. Í þeirra tilviki er þó miðað
við aflareynslu áranna 2009 til 2014.
Makrílbátar sem stunduðu veiðar
2009 til 2012 fá auk þess 43% reikn-
uð ofan á veiðireynsluna til viðbót-
ar. Hugsunin á bak við það er sú að
með því sé verið að bæta þeim upp
frumkvöðlastarf við veiðarnar þar
sem menn voru að læra veiðitæknina
og komast upp á lag með að fanga
makrílinn. Fiskifréttir birta lista yfir
20 hæstu makrílbátana á tímabilinu
með útreikningum á því hvað þeir
hefðu fengið með álaginu þar sem
það á við. Í ljós kemur að helming-
ur þessara báta er frá Vesturlandi.
Það þarf ekki að koma á óvart í ljósi
þess að margir makrílbátar hafa ver-
ið gerðir út frá Akranesi og Snæ-
fellsnesi auk þess sem vel hefur oft
veiðst bæði í Faxaflóa og Breiðafirði.
Tíu efstu bátar á Vesturlandi fengju
alls 24,7% makrílkvóta smábátanna
í sinn hlut verði frumvarp sjávarút-
vegsráðherra að veruleika.
Hlutdeild hæstu smábáta af Vest-
urlandi í makrílkvóta
Sæhamar SH 233 3,7%
Brynja II SH 237 2,8%
Álfur SH 414 3,1%
Litli Hamar SH 222 2,6%
Særif SH 25 2,3%
Ísak AK 67 2,1%
Ingibjörg SH 174 2,3%
Tryggvi Eðvarðs SH 2 1,9%
Mangi á Búðum SH 85 2,1%
Fjóla SH 7 1,8%.
mþh
Mest af makrílkvótanum færi til HB Granda
Litli Hamar SH frá Rifi fengi í sinn hlut 2,6% af makrílkvóta smábátanna. Hér er báturinn í síðustu viku þar sem hann stendur
uppi og bíður sumarsins.
Ísak AK myndi fá 2,1% af makrílkvótahlutanum nái sjávarútvegsráðherra makríl-
frumvarpi sínu til samþykkis Alþingis. Víkurhvarf 5
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
Weckman sturtuvagnar
Víkurhvarf 5
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
2